Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.12.1948, Page 29

Læknablaðið - 15.12.1948, Page 29
LÆKNABLAÐIÐ 135 og Tryggingarstpfnunannnar. Stjórn L. I. hafði því ekki sett samningamálið eða tryggingar- lögin sem sérstakan lið á dag- skrá þessa fundar, þar sem ekkert nýtt viðhorf virtist hafa skapazt frá því síðasti fundur var haldinn. Þó verður það nú svo, að tryggingarlöggjöfin eða heilsugæzlukaflinn kemur til umræðu hér síðar á fund- inum, því forstjóri Tryggingar- stofnunarinnar, Haraldur Guð- mundson, hefur lofað að tala liér um þann kafla og gefst þá fundarmönnum tækifæri til að láta skoðanir sínar i ljós og gefa stjórn félagsins góðar bendingar og vegarnesti upp á framtíðina. Þriggja manna nefnd var skipuð á síðasta aðalfundi, lil þess að athuga og vera á verði gagnvart tryggingarlöggjöfinni. En eins og skiljanlegt er, af því sem að framan er sagt, þá hefur ekkert komið til hennar kasta, enda þótt hún hafi fylgzt með því, sem fram hefir farið í þessu efnum, enda var einn nefndarmanna lengst af for- maður Læknafélags Reykjavík- ur og því að sjálfsögðu ná- kunnugur öllu sem gerðist. 1 samhandi við væntanlegar umræður væri sjálfsagt að taka til athugunar þá uppástungu Páls V. Kolka, héraðslæknis, er hann skrifaði öllum héraðs- læknum þ. 7. marz s.l. ár, að héraðslæknar kysu 4 menn úr sínum hóp, einn úr hverjum landsfjórðungi, ásamt einum frá stjórn L. 1. í samninga- nefnd, til þess að semja við Tryggingarstofnunina. A síðasta aðalfundi var kosin þriggja manna nefnd milli funda til þess að athuga mögu- leilcana á að hefja aftur útgáfu árbókar L. í. Voru þessir kosn- ir í nefndina: Olafur Geirsson, Valtýr Al- liertsson og Pétur Magnússon. Frá þessari nefntl hefur stjórninni borizt bréf, þar sem rakin eru sum þau atriði, sem voru þess valdandi, að nefnd- ina brast kjark til að leggja út í þessa útgáfu, eins og á- statt var. Er það bréf svo- hljóðandi: „Á læknaþinginu 1946 var kosin nefnd til þess að athuga möguleika á að gefa út nýja Árbók L. 1. Það kom brátt í ljós, að kostnaður við slíka útgáfu hér yrði alltof hár og var því leitað tillioða um prentun bókarinnar í Kaupmannahöfn. Tillioð þaðan var kr. 12,000,00 danskar fvrir prentun, pappír og band, en sá böggull fylgdi skammrifi, að samning þurfti að gera til fimm ára inn sama útgáfukostnað. Augljóst þótti þá þegar, að þessi gjaldeyrir mundi ekki fást, livað þá að hann yrði tryggður til finmi ára. Við þetta bættist, að vonir um

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.