Læknablaðið - 15.12.1948, Blaðsíða 34
140
LÆKNABLAÐI f>
ingar til að annast hinar vanda-
samari rannsóknir, t. d. hinar
niargvíslegu endoscopiae og
cytologiskar skoðanir. Einnig
mun verða þörf fyrir fleiri
röntgenlækna með sérmenntun
í geislalækningum. Mikroscopi
ætti að viðhafa meira en nú
er gert, hæði í vafatilfellum og
við 'flokkun hinna ýmsu teg-
unda krabbameins. Við klim-
akteriskar menorrhagiae og
metrorrhagiae er sjálfsagt að
gerð sé abrasio og mikroscopi
hverju sinni, áður en sjúkling
er vísað í Röntgenmeðferð
vegna þessa.
Læknar þurfa að gera meira
að því en nú er, að fylgjast með
þeim sjúklingum, sem meðferð
hafa fengið vegna krabba-
meins. Sjúklingar, sem verið
hafa í geislalækningum vegna
illkynja æxla, koma nú til eft-
irlits á Röntgendeild Lands-
spítalans, eftir því sem við verð
ur komið. Slík athugun þarf að
ná til alls landsins. Sérstök
eyðublöð þarf að útfvlla fyrir
krabbameinssjúklinga. Þegar
sjúklingur er sendur heim, fær
læknir hans slíkt hlað með hon-
um, þar sem færðar eru helztu
upplýsingar um sjúkdóminn.
Læknirinn fylgist síðan með
sjúklingnum og færir inn upp-
lýsingar um ástand og líðan
hans hverju sinni, á 3 mánaða
hálfs og eins árs 'fresti.
Loks er æskileg sem nánust
samvinna í þessum efnum milli
lækna innhyrðis, t. d. milli kir-
urga, pathologa og geislalækna,
þannig að hver um sig fylgist
með í starfi hinna i hverju til—
felli.
III. Heilbrigðisyfirvöld og
aðrir opinherir aðilar. Skilning
liins opinbera á þessum mál-
um þarf að glæða, því að ríflegu
fé verður að verja til aukinnar
baráttu gegn illkynja æxlum.
Þannig þarf Röntgendeild
Landsspítalans hið fyrsta að fá
nýtt Röntgenlækningatæki, þar
sem allsendis ófullnægjandi er
að hafa aðeins eitt slíkt tæki
á öllu landinu. Húsrými deild-
arinnar þyrfti þá jafnframt að
aukast. Sjálfsagt er og að stefnt
sé að því, að geislalækninga-
deildin ha'fi 15—20 rúmum á að
sldpa handa sjúklingum, sem '
eru í meðferð. Víða erlendis
eru geislaskoðun oggeislalækn-
ingar aðskildar sérgreinar, og
fer þróunin hér vænlanlega í
sömu átt með vaxancli siarfi í
þágu krabbameinslækninga.
Fyrirkomulag það, sem nú er
á greiðslum fyrir vefjararm-
sóknir er þannig, að annað-
hvort verða læknar sjálfir eða
sjúklingarnir að greiða fyrir
þær úr eigin vasa. Telur nefnd-
in þelta fyrirkomulag með öllu
óviðunandi og sjálfsagt að því
verði breytt sem fvrst, þannig
að Tryggingarstofnunin kosti