Læknablaðið - 15.12.1948, Qupperneq 40
LÆKNABLAÐIÐ
146
og spurðist fyrir um það, hvað
fólk þar um slóðir vissi um
sóttir þær, er gengið hefðu í
öræfum árin 1903 og 1905, og
hve margir hefðu þá dáið þar
skv. kirkjubókum. Sendi Bjarni
síðan mjög ítarlega og greinar-
góða skýrslu um þessi tvö sótt-
arár. Er þar lýst gangi sóttanna
og sjúklingar nafngreindir og
mun hann hafa leitað upplýs-
inga hjá nákomnu fólki þeirra,
auk þess, sem hann man sjálf-
ur. Hefur landlæknir góðfúslega
leyft mér afnot af bréfi Bjarna
Sigurðssonar. Faraldurinn 1903
segir hann að hafi verið nefnd-
ur barnaveiki, og dóu þá 7
börn á aldrinum 1—8 ára á
tímabilinu 9. okt.—22. des.
Hvort öll hafi dáið úr barna-
veiki eða aðeins 5 eins og segir
í skýrslu héraðslæknis, skiptir
hér ekki miklu máli. Um 8 ára
dreng, sem dó eftir fárra daga
legu, segir B. S. eftir bróður
hans, að skóf hafi komið í
munn og kok á honum. Um
5 ára telpu segir, að hún hafi
haft verk fyrir brjósti eftir að
hún lagðist og verið mjög þungt
um andardrátt síðustu nóttina
og fólkið hennar hafi verið í
vafa um hvort dánarorsökin
hafi verið lungnahólga eða
barnaveiki. Um þetta leyti hafi
og kvef hreiðst út í öræfum.
Annars virðist dánarorsök
hinna barnanna hafa verið tal-
in barnaveiki. Unglingsstúlka
varð og mjög slæm í hálsi en
batnaði. Þá veiktist og 24 ára
karlmaður, varð máttfarinn og
átti örðugt með að kyngja,
vegna magnleysis í hálsinum, en
batnaði eftir að hafa fengið
meðul frá E. B. á Reynivöllum.
„Engar lamanir komu fram í
þeim, sem fengu þessa veiki og
dóu úr henni, nema eðlilegt afl-
leysi, sem oft fylgir háum hita.
„En árið 1905 gekk hér löm-
unarveiki“ segir B. S. ennfrem-
ur og telur upp 7 sjúklinga, sem
allir fengu lamanir, þó að sum-
um batnaði alveg, og dóu 2, 8
ára drengur (19/3) og 26 ára
stúlka (17/3). Veikin virðist
hafa komið upp snemma í
mars, því að drengurinn, sem
dó, var einn af þeim fyrstu,
sem veiktust en hann dó 19.
mars eftir fárra daga legu. Einn
af sjúklingunum var konan, er
ég gat mn að ég liefði séð, og
hefur hún þá verið um það hil
að verða 25 ára eða verið ný-
orðin það. Fjórir sjúkl. hafa
verið á aldrinum um 20—26
ára, þá eru 2 ungar stúlkur og
loks einn 8 ára. Aldur sjúklinga
er því allur annar en 1903.
Er lömunarveikin kom upp í
öræfum, höfðu nokkrir öræf-
ingar verið nýkomnir úr ferð
austur í Höfn í Hornafirði, en
þar voru þá staddir nokkrir
aðkomumenn.. Veiktist systir
eins þeirra, 2 dögum eftir að
hann var kominn heim en hann
sjálfur (J. P.) nærri samtímis.
Ferðamennirnir höfðu í heim-