Bændablaðið - 07.02.2013, Síða 29
29Bændablaðið | Fimmtudagur 7. febrúar 2013
Þurrverkun hrossakjöts afurða
í Þykkvabænum
– ítalskar sælkeravörur í íslenskum búningi
Í Þykkvabænum – í litlu aflögðu
sláturhúsi – hefur Ítalinn Roberto
Tariello komið sér fyrir með vel-
vilja kartöflubænda og verkar
þar kjöt samkvæmt ítölskum
hefðum. Frá 2008 hefur hann
leiðsagt ítölskum ferðamönnum
um Ísland og hefur allt frá byrjun
gælt við þá hugmynd að vinna
íslenskt kjöt með gömlum ítölskum
aðferðum – og spyrða að einhverju
leyti saman við ferðaþjónustuna.
Íslenski armur fyrirtækisins – og
hægri hönd Roberto – er Ástríður
Ástráðsdóttir sem starfar við hlið
hans.
Roberto segir að hann hafi
flækst til Íslands sem ferðamaður
frá Bermúdaeyjum og strax heillast
af landinu. „Áður en ég kom til
Íslands hafði ég þvælst víða um heim
og starfaði með mörgum frábærum
matreiðslumönnum. Ég byrjaði
hins vegar mjög ungur að vinna við
matvælaframleiðslu og hjálpaði til
með fjölskyldunni við vinnslu alls
kyns kjötafurða. Þar eru gamlar
aðferðir haldnar í heiðri sem rekja
má allt aftur til Etrúska og Rómverja.
Það má segja að ég hafi snemma
þróað með mér ástríðu fyrir mat.
Þótt það sé af tilviljun sem
Roberto fann sér húsnæði undir
starfsemi sína í Þykkvabænum er það
á vissan hátt sögulega viðeigandi.
Aðalhráefni Roberto er hrossakjöt,
en sú afurð er í miklum metum á
Ítalíu. Þykkbæingar voru á árum
áður kannski kunnustu íslensku
hrossakjötsæturnar. „Þykkbæingar
hafa tekið mér mjög vel, boðið
mig velkominn og hjálpað mér af
stað. Framleiðslan hófst formlega
síðastliðið sumar með aðstoð og í
samvinnu við Kjötvinnsluna á Hellu
– þar sem öll hrávinnsla fer fram.
Ég fæ allt mitt kjöt af Suðurlandi.“
Vörurnar fást í sælkeraverslunum
„Vörurnar fást nú í Kjötvinnslunni
á Hellu og í nokkrum verslunum í
Reykjavík; Frú Laugu, Ostabúðinni,
Búrinu og Melabúðinni. Ég er nú að
vinna í því að auka gæði afurðanna
og að koma þeim víðar í dreifingu.
Ég ætla að bæta aðstöðuna í Þykkva-
bænum svo ég verði fær um að
geta tryggt betur gæði og tiltekið
framleiðslumagn.
Ég framleiði margar tegundir úr
þurrkuðu hrossakjöti og svínakjöti.
Mín aðferð er að grafa kjötið og
þurrka svo – og ég nota krydd og
aðferðir sem ég ólst upp við úr minni
fjölskyldu. Hrossakjötsvörurnar eru
kenndar við Þykkvabæ; salami,
bresaola, carpaccio og entrecote.
Hrossakjötið er mjög heilsusamlegt
kjöt, með lága fituprósentu en ríkt
af próteini, járni og vítamínum D
og B. Í framtíðinni langar mig til að
þróa hráskinku líka Parmaskinkunni
– og fleiri afurðir með náttúrulegum
þráavarnarefnum.“ /smh
HLUTI AF BYGMA
ALLT FRÁ GRUNNI AÐ GÓÐU HEIMILI
SÍÐAN 1956
Þú færð gluggana hjá okkur
Getum útvegað hágæðaglugga frá viðurkenndum framleiðendum.
Gluggar úr timbri, timbur/áli, áli og PVC (plasti)
Frábært verð, áratuga þekking og toppþjónusta.
Hafðu samband og við leysum málið með þér.
Fáðu nánari upplýsingar og tilboð
hjá okkur í síma 525 3000.
GLUGGAR
Reykjavík
F
A
GM
ANN
A
KLÚBBU
R
NÚ LÍKA FYRIR BÆNDUR!
ERTU BÚINN AÐ SKRÁ ÞIG?
Hrossakjöt er gæða hráefni, að sögn Roberto Tariello.
Myndir / smh