Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.10.1971, Page 13

Læknablaðið - 01.10.1971, Page 13
LÆKNABLAÐIÐ 173 hægt að gefa í þetta sinn, en lánuð voru um 460 tímaritaeintök og afhent um 250 ljósrit. Notkunin var mest frá lyflæknisdeild og þar næst frá skurðlæknisdeild. Not á safninu jukust mjög mikið frá ár- inu áður, ekki aðeins útlán, heldur líka eftirspurn eftir ýmiss konar heimildaþjónustu. Þjónusta safnsins hefur að sjálfsögðu beinzt að starfsliði Borgarspítalans, en við höfum þó eftir beztu getu reynt að sinna fyrirspurnum frá öðrum stofnunum og einstaklingum. Á landinu eru nú tvö læknisfræðibókasöfn á sjúkrahúsum, Borgar- spítalanum og Landspítalanum. Hins vegar er það þriðja í fæð- ingu, á Kleppi, og byrjað er að skrá bóka- og tímaritakost Heilsu- verndarstöðvar og Borgarlæknisembættisins. Áhugi mun vera fyrir hendi á Landakoti að koma upp safni, þannig að nú er óðum að birta í bókasafnsmálum heilbrigðisstéttanna. Ekki má heldur gleyma Bóka- safninu á Keldum og Rannsóknastofu Háskólans við Barónsstíg, en þessar stofnanir falla báðar inn í þennan ramma. í Háskólabókasafni er geymdur töluverður þekkingarforði í lækna- og heilbrigðisvísindum, en eins og allir vita, hefur safnið verið hálfgert olnbogabarn og ekki getað annazt hlutverk miðsafns allra kennsludeilda og stofnana Há- skólans. Læknisfræðibókasafn Landspítalans hefur að miklu leyti tekið á sig hlutverk Háskólasafns á sviði læknisfræðinnar, og sjá allir hugsandi menn, að slíkt er fráleitt, bæði vegna húsnæðisvandræða og starfsliðsfæðar Landspítalasafnsins, en einnig fráleitt vegna þeirrar þarfar, sem þegar hefur skapazt fyrir eitt miðsafn í læknisfræðum, sem þjóna þarf læknadeild Háskólans, stofnunum, sjúkrahúsum, sérfræð- ingum og starfandi læknum, bæði hér í Reykjavík og annars staðar á landinu. Ég held, að við gerum okkur öll grein fyrir því, að framtíðar- þjóðbókhlaða leysir ekki safnmál þessara aðila. í fyrsta lagi þurfum við á safni að halda, sem er staðsett sem næst helztu kennslu- og rannsóknastofnunum í læknisfræði og heilbrigðisvísindum. I öðru lagi þurfum við að reyna að láta af handbókahugsunarhættinum í safnamálum okkar. Við leysum engan vanda með því að hokra hvert í sínu horni og ímynda okkur að stofnanasöfnin, þar á meðal sjúkra- húsasöfnin, geti veitt fullnægjandi þjónustu, Ef til vill er þessi hugsunarháttur afsakanlegur. íslendingar hafa lengi borið virðingu fyrir bókum og verið miklir bókasafnarar. Þeir hafa viljað bækur í kringum sig eins og vini sína og þótt notalegt að geta rétt höndina eftir þeim. Hins vegar hefur þessi virðing ekki færzt yfir á bókasöfnin, — og eiginlega er það ekki neitt undarlegt eins og búið hefur verið að bókasafnamálum okkar. En í þessum ört smækkandi heimi og ört stækkandi þekkingarflóði, dugar ekki að taka mið af því ástandi í safnamálum, sem hjá okkur ríkir í dag. Við eigum og verðum að taka mið af þeim löndum, sem standa okkur framar og jafnvel fremst allra í þessum málum. Við verðum að kanna og læra að nýta þá möguleika, sem nýtízkusöfn hafa upp á að bjóða og koma þeim í framkvæmd hér. Væri ekki þægilegt fyrir lækna að geta horft á þær ráðstefnur á sjónvarps- skermi, sem þeir komast ekki til að sitja? Geta hlustað á heimsfræga fyrirlesara af segulbandi, eða fengið yfirlit um helztu nýjungar í grein
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.