Læknablaðið - 01.10.1971, Qupperneq 21
LÆKNABLAÐIÐ
179
sonar til formanns gerðardóms Læknafélags íslands. Þar með er málið
komið úr höndum stjómar Læknafélags íslands og í hendur gerðar-
dóms, sem ber ábyrgð á því, að málið fái rétta afgreiðslu. Ég vek
athygli á síðustu málsgrein 28. gr. Codex Ethicus, en þar segir, að
stjórn L.I. beri að fylgjast með framvindu máls og gera allt, sem er
í hennar valdi til þess að koma í veg fyrir óeðlilegan drátt á afgi’eiðslu
máls. Ég tel rétt að leiða athygli að því, að föstu dómendur gerðar-
dómsins eiga að skora á málsaðila, að þeir hvor um sig tilnefni lækni
í dóminn og annan til vara. Nú gæti komið upp sú staða, að þeir Gísli
G. Auðunsson og Ingimar S. Hjálmarsson gætu ekki komið sér saman
um lækni af sinni hálfu, og er þá ekki annarra kosta völ en gera úr
þessu eina máli tvö mál. Eins og Daníel byggir upp sína kæru, tel ég
ekkert því til fyrirstöðu, að þeir Gísli G. Auðunsson og Ingimar S.
Hjálmarsson hafi samaðild í þessu máli.
Fsk j.: V irðingarfyllst,
bréf, kæra. Guðmundur Ingvi Sigurðsson. (sign)
Málið var síðan lagt fyrir gerðardóm L.f. með bréfi dags. 16.12
1969. Formaður dómsins er próf. Jón Steffensen, en aðrir dómendur
eru Grímur Jónsson og Páll Sigurðsson. Til vara er ísleifur Halldórs-
son. Gagnasöfnun fyrir dóminn er ekki að fullu lokið. Nýr liður í máli
þessu er fyrirspurnarbréf frá Daníel Daníelssyni, dags. 18. desember.
Bréfi þessu hefur verið vísað til lögfræðings félagsins.
Domus Medica Stjórn L.í. hafa borizt reikningar D.M., og var af-
koma sjálfseignarstofnunarinnar á sl. ári tiltölulega
góð þrátt fyrir miklar skuldir og afborganir af þeim, og byggist það
einkum á hagnaði af rekstri samkomusalar. Auk stóra samkomusalar-
ins hefur minni samkomusalur verið innréttaður inn af aðalanddyri
hússins, og hefur hann verið notaður fyrir samkomur, svo og anddyrið
sjálft; þannig hefur nýting hússins verið mjög góð. Miklir erfiðleikar
hafa verið samt sem áður að annast veitingar, svo að vel væri fyrir
þá gesti, sem leigt hafa salinn. Má því segja, að komið hafi í ljós, að
rekstur salarins er allmiklum erfiðleikum bundinn. Til þess að hægt
sé að standa straum af afborgunum hússins, er óhjákvæmilegt, að sal-
urinn sé nýttur til annarra hluta en starfsemi læknafélaganna, en til
þess að unnt verði að losa litla salinn, þannig að hann geti verið fyrir
félagsstarfsemina eingöngu, þykir sýnt, að gera þurfi nokkrar breyt-
ingar og viðbætur við húsið sjálft. Af þessu tilefni skrifaði stjórn L.í.
eftirfarandi bréf til stjórnar Domus Medica:
Til stjórnar Domus Medica,
Bjarni Bjarnason formaður.
Reykjavík, 28.1. 1970.
Stjórn Læknafélags íslands vill hér með vekja athygli stjórnar
Domus Medica á nokkrum atriðum, sem hún telur ábótavant í sam-
bandi við samkomusalinn í Domus Medica: a) Salurinn er of lítill
fyrir stærstu fundi og samkvæmi lækna. b) Aðstöðu skortir til þess
að halda tvo eða fleiri fundi samtímis. c) Einnig skortir aðstöðu til