Læknablaðið - 01.10.1971, Side 26
184
LÆKNABLAÐIÐ
rækileg skoðanakönnun milli aðalfunda er tilgangslaust ákvæði í lög-
um, nema nákvæmlega sé skilgreint, hvernig sú skoðanakönnun eigi
að fara fram, og er það allmiklum erfiðleikum bundið. Virðist jafnvel
eðlilegra að taka upp allsherjaratkvæðagreiðslu meðal lækna um
ákveðin mikilvæg mál. Slíkt fyrirkomulag á atkvæðagreiðslu meðal
lækna hefur verið rætt og athugað rækilega innan L.R., og var á aðal-
fundi L.R. fyrir tæpum áratug fellt að taka upp slíkt fyrirkomulag á
atkvæðagreiðslu. Að þessu athuguðu þótti ekki tímabært að koma
fram með lagabreytingartillögu að svo stöddu.
Innkaupamiðstöð lækna Enn hafa farið fram viðræður um stofnun
(Centromed) innkaupastofnunar lækna (Centromed), en
engar ákvarðanir hafa verið teknar í málinu.
Samstarf við BHM Bandalag háskólamanna hefur látið gera ævi-
tekjuútreikninga ýmissa stétta, en læknar voru
ekki teknir með í útreikningana að þessu sinni. Byggðist það á því, að
upplýsingar þær, sem nefnd BHM hafði fengið um kostnað við fram-
haldsmenntun, störf og laun lækna, voru í mörgum atriðum svo ófull-
komnar og í sumum tilvikum rangar, að stjórn L.í. taldi þær óhæfar
sem grundvöll við ævitekjuútreikninga. Þar sem ævitekjuútreikningar
voru þá komnir langt á veg, vannst ekki tími til þess að safna nægi-
lega nákvæmum og réttum upplýsingum fyrir reikninga þessa.
BHM vinnur nú að því að fá samningsrétt fyrir háskólamenntaða
menn í opinberum stöðum, og eru taldar nokkrar líkur á, að því marki
verði náð, jafnvel á næsta ári. Svo sem áður hefur verið bent á, er
sennilegt, að sá samningsréttur sé næsta lítils virði og muni ekki bæta
samningsaðstöðu lækna að láta BHM fara með kjaramál sín.
BSRB hefur samið drög að reglum fyrir starfsmat opinberra starfs-
greina, og hefur BHM átt áheyrnarfulltrúa við samningu þessara
reglna. Stjórn L.í. hefur fengið reglurnar til athugunar og álits, og var
BHM skv. ósk stjórnar þeirra samtaka sent eftirfarandi álit:
Til Bandalags háskólamanna. Reykjavík, 24.1. 1970.
Læknafélagi íslands hefur borizt „Drög að starfsmatskerfi“ sept.
1969 frá Bandalagi háskólamanna, sem samið er af aðilum frá BSRB
og ríkinu, en fulltrúi frá Bandalagi háskólamanna hefur fylgzt með
verkinu. Stjórn Læknafélags íslands telur, að starfsmat sé heppilegt
kerfi í þróuðu þjóðfélagi til þess að finna launahlutföll milli starfs-
greina.
Þegar litið er á verk þetta, „Drög að starfsmati“, má segja, að
það sé í mörgum atriðum vandlega unnið, en eins og höfundar þess
taka fram, þá er ekki við því að búast, að verkið sé vankantalaust.
Stjórn L.í. telur, að gera þurfi veigamiklar breytingar á umræddu
starfsmatskerfi, til þess að það geti verið grundvöllur fyrir mismun
á launagreiðslum ríkisins innan starfsgreina læknisfræðinnar og til
ákvörðunar á launahlutfalli milli lækna og annarra starfsstétta. Starfs-
þættir eru of fáir. Varðandi læknisstörf er eðlilegt, að frumkvæði sé
sérstakur starfsþáttur. Sá þáttur hefur mismunandi „vikt“ í ýmsum