Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.10.1971, Page 32

Læknablaðið - 01.10.1971, Page 32
188 LÆKNABLAÐIÐ heilbrigðisyfirvalda, sem getið var í upphafi. Allan þennan tíma hafa heilbrigðisyfirvöld lítið raunhæft gert til að bæta úr þeim læknaskorti, sem var forsenda þessarar heimildar. Hún var þó á sínum tíma aðeins neyðar- og bráðabirgðaráðstöfun. Ekki er vitað til þess, að heilbrigðis- stjórnin hafi gert á því skipulega athugun, hvers vegna læknar fáist síður sjálfviljugir til starfa úti á landi en á höfuðborgarsvæðinu. Ábyrgðarleysi sem þetta kemur einnig fram í greinargerð með umræddu frumvarpi, þar sem að því er látið liggja, að læknastéttin sjálf hafi átt að koma með skjótvirkar úrbætur á læknaskortinum úti á landi. Flutningsmönnum frumvarpsins er þó vel kunnugt um, að það hefur verið hlutverk stjórnvalda en ekki læknasamtaka að ráða bót á vandkvæðum læknisþjónustu dreifbýlisins. Hins vegar hafa læknasamtökin stutt vaxandi áhuga ungra lækna á skipan heilbrigðisþjónustu, enda er þaðan helzt að vænta frjórra hugmynda, sem þeir geti sjálfir fellt sig við. Þannig var árið 1967 gerð athyglisverð könnun meðal ungra lækna og læknanema í síðasta hluta varðandi afstöðu þeirra til almennra lækninga. Niðurstöður þeirrar könnunar voru birtar í Læknablaðinu, 6. hefti 1968, og bentu til þess, að stofnun læknamiðstöðva og sérfræðiviðurkenning í heimilis- lækningum geti hindrað, að almennar lækningar eða heimilislækningar líði undir lok hér á landi, eins og fyrri athugun árið 1964 benti til. Kom m. a. í Ijós, að enginn ætlaði sér að starfa einsamall í héraði, en væru læknamiðstöðvar fyrir hendi, kusu litlu færri að starfa í dreif- býli en á Reykjavíkursvæðinu. Enn fremur hefur frá árinu 1967 farið fram að frumkvæði ungra lækna yfirgripsmikil könnun á vegum L.f. meðal héraðslækna á starfs- aðstöðu þeirra, hugmyndum þeirra um sameiningu læknishéraða og aðrar úrbætur, sem verða mættu læknisþjónustu dreifbýlisins að gagni. Nefnd á vegum L.í. vinnur nú að tillögum um staðsetningu og rekstur læknamiðstöðva á íslandi með hliðsjón af þessari könnun og öðrum upplýsingum, og er búizt við, að tillögur ásamt greinargerð liggi fyrir snemma á næsta ári. Það er skoðun stjórnar L.Í., að slíkar læknamiðstöðvar muni geta leyst vandamál heilbrigðisþjónustu dreifbýlisins að miklu leyti, ef rétt er um hnútana búið og jafnframt gerðar verulegar breytingar á sam- göngumálum og menntun aðstoðarfólks. Fleiri leiðir eru til að laða lækna til þessara starfa. Hefur að framan verið minnzt á sérfræði- viðurkenningu heimilislækna að loknu framhaldsnámi. Slíkar ráð- stafanir hljóta að vera heilladrýgri en að neyða reynslulitla lækna til að starfa einangraðir og hjálparlitlir úti á landi gegn eigin samvizku. Tómt mál er að tala um, að skort á læknisreynslu megi bæta upp með alúð og áhuga í starfi. Um slikt eru alþingismenn vart dómbærir íremur en aðrir leikmenn almennt, auk þess sem í þeirri fullyrðingu felst ósmekkleg aðdróttun að eldri héraðslæknum. V. Enn má geta þess, að í 2. gr. frumvarpsins, sem er breyting á 3. gr. núgildandi læknalaga, hefur orðið mikilvæg efnisbreyting, senni- lega af vangá, þar sem eigi nægja lengur meðmæli landlæknis eins til
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.