Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.10.1971, Page 33

Læknablaðið - 01.10.1971, Page 33
LÆKNABLAÐIÐ 189 veitingar takmarkaðs lækningaleyfis (t. d. handa tannlæknum), heldur þarf hlutaðeigandi jafnframt að sanna kunnáttu sína fyrir læknadeild og hljóta meðmæli hennar. Slíkt yrði allþungt í vöfum og enn frekari skerðing á ábyrgð og valdsviði landlæknis. VI. Að lokum skal enn á það bent, að lagaboð sem þessi leysa ekki þann vanda, sem um er að ræða. Þau fela í sér starfsþvingun, sem þekkist ekki með öðrum stéttum, og samrýmast naumast lýðræðisleg- um leikreglum. Stjórn Læknafélags íslands. Til heilbrigðis- og félagsmálanefndar Alþingis. HÉRAÐSLÆKNISSTÖRF UNGRA LÆKNA FYRIR OG EFTIR STYTTINGU HÉRAÐSSKYLDU ÁRIÐ 1963 Könnun þessi er reist á gögnum, sem landlæknir hefur góðfúslega veitt aðgang að. Auk þess var aflað frekari upplýsinga, ef um einhvern vafa var að ræða, einkum meðal eldri árganganna. Borinn er saman starfstími lækna í héruðum utan Reykjavíkur að loknu embættisprófi frá Háskóla íslands fyrir og eftir styttingu héraðsskyldunnar svonefndu úr sex mánuðum í þrjá mánuði vorið 1963, svo og fjöldi þeirra, er sinntu slíkum störfum. Könnunin nær til tveggja hópa, alls átta árganga, annars vegar þeirra, sem útskrifuðust árin 1958-’61, og hins vegar árin 1963-’66. Læknum, er útskrifuðust árið 1962, er viljandi sleppt, þar eð erfitt var þá að komast í héruð. Nokkrir þeirra feng'u sjúkrahússtörf úti á landi tekin gild í staðinn, og margir fóru ekki í héruð fyrr en eftir styttingu héraðsskyldunnar, þannig að af 25 útskrifuðum luku aðeins þrír héraðsskyldu skv. eldri ákvæðum og meðan þau giltu. Á sama hátt er og sleppt þeim úr eldri hópnum, sem eingöngu störfuðu í héraði eftir styttingu héraðsskyldunnar, alls 8 af 74, enda stefnt að því að fá sem réttastan samanburð á starfstíma lækna og fjölda þeirra í héraði fyrstu árin að loknu prófi, meðan hin mismun- andi ákvæði giltu. Væru þessir 8 læknar hins vegar teknir með eldri hópnum, mundi meðaltími í héraði lækka úr 10.3 mán. (sbr. eftirfar- andi töflu) 1 9.6 mán., sem er nokkru minna en meðaltal yngri hóps- ins (9.9 mán.). Heildarstarfstími þessara 8 lækna var aðeins 34 mán. og meðaltími þeirra því 4.3 mán., þ. e. meira en helmingi styttri en meðaltími yngri hópsins, sem starfaði í héraði á sama tíma. Við útreikning heildarstarfstíma hópanna í héraði og meðalgildis fyrir starfstíma einstaklinga varð að reikna með 24 mán. hjá þeim læknum, sem lengur hafa starfað, þannig að talan er ekki raunverulegt meðaltal, þótt hún gefi réttan samanburð innan þessara marka. Slík mörk varð að setja, þar eð yngsti árgangurinn (’66) hefur af augljósum ástæðum ekki átt þess kost að starfa í héraði miklu lengur auk kandíd- atsstarfa. Þrátt fyrir það er ekki víst, að samanburðurinn sé alveg sanngjarn gagnvart yngri hópnum, því að sennilega eiga einhverjir
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.