Læknablaðið - 01.10.1971, Qupperneq 33
LÆKNABLAÐIÐ
189
veitingar takmarkaðs lækningaleyfis (t. d. handa tannlæknum), heldur
þarf hlutaðeigandi jafnframt að sanna kunnáttu sína fyrir læknadeild
og hljóta meðmæli hennar. Slíkt yrði allþungt í vöfum og enn frekari
skerðing á ábyrgð og valdsviði landlæknis.
VI.
Að lokum skal enn á það bent, að lagaboð sem þessi leysa ekki
þann vanda, sem um er að ræða. Þau fela í sér starfsþvingun, sem
þekkist ekki með öðrum stéttum, og samrýmast naumast lýðræðisleg-
um leikreglum.
Stjórn Læknafélags íslands.
Til heilbrigðis- og félagsmálanefndar Alþingis.
HÉRAÐSLÆKNISSTÖRF UNGRA LÆKNA FYRIR OG EFTIR
STYTTINGU HÉRAÐSSKYLDU ÁRIÐ 1963
Könnun þessi er reist á gögnum, sem landlæknir hefur góðfúslega
veitt aðgang að. Auk þess var aflað frekari upplýsinga, ef um einhvern
vafa var að ræða, einkum meðal eldri árganganna.
Borinn er saman starfstími lækna í héruðum utan Reykjavíkur
að loknu embættisprófi frá Háskóla íslands fyrir og eftir styttingu
héraðsskyldunnar svonefndu úr sex mánuðum í þrjá mánuði vorið
1963, svo og fjöldi þeirra, er sinntu slíkum störfum.
Könnunin nær til tveggja hópa, alls átta árganga, annars vegar
þeirra, sem útskrifuðust árin 1958-’61, og hins vegar árin 1963-’66.
Læknum, er útskrifuðust árið 1962, er viljandi sleppt, þar eð erfitt
var þá að komast í héruð. Nokkrir þeirra feng'u sjúkrahússtörf úti á
landi tekin gild í staðinn, og margir fóru ekki í héruð fyrr en eftir
styttingu héraðsskyldunnar, þannig að af 25 útskrifuðum luku aðeins
þrír héraðsskyldu skv. eldri ákvæðum og meðan þau giltu.
Á sama hátt er og sleppt þeim úr eldri hópnum, sem eingöngu
störfuðu í héraði eftir styttingu héraðsskyldunnar, alls 8 af 74, enda
stefnt að því að fá sem réttastan samanburð á starfstíma lækna og
fjölda þeirra í héraði fyrstu árin að loknu prófi, meðan hin mismun-
andi ákvæði giltu. Væru þessir 8 læknar hins vegar teknir með eldri
hópnum, mundi meðaltími í héraði lækka úr 10.3 mán. (sbr. eftirfar-
andi töflu) 1 9.6 mán., sem er nokkru minna en meðaltal yngri hóps-
ins (9.9 mán.). Heildarstarfstími þessara 8 lækna var aðeins 34 mán.
og meðaltími þeirra því 4.3 mán., þ. e. meira en helmingi styttri en
meðaltími yngri hópsins, sem starfaði í héraði á sama tíma.
Við útreikning heildarstarfstíma hópanna í héraði og meðalgildis
fyrir starfstíma einstaklinga varð að reikna með 24 mán. hjá þeim
læknum, sem lengur hafa starfað, þannig að talan er ekki raunverulegt
meðaltal, þótt hún gefi réttan samanburð innan þessara marka. Slík
mörk varð að setja, þar eð yngsti árgangurinn (’66) hefur af augljósum
ástæðum ekki átt þess kost að starfa í héraði miklu lengur auk kandíd-
atsstarfa. Þrátt fyrir það er ekki víst, að samanburðurinn sé alveg
sanngjarn gagnvart yngri hópnum, því að sennilega eiga einhverjir