Læknablaðið - 01.10.1971, Page 41
LÆKNABLAÐIÐ
197
Það má segja, að í málum, sem rísa af því, að lækni hafi
orðið á mistök í starfi, liggi aðalvandinn í mati á því, hvort
læknirinn hafi gert sig sekan um gáleysi. Samkvæmt hefð-
bundnum kenningum er svarið undir því komið, hvað góður og
skynsamur læknir, sem hefði verið í sporum þess, er verkið
vann, hefði gert.
Sönnunarbyrðin fyrir því, að mistök læknis séu þess eðlis,
að framangreind saknæmisregla nái til hans, hvílir á sjúklingn-
um.
Þá má geta þess, að fræðimenn eru yfirleitt þeirrar skoð-
unar, að dómstólar verði að sýna mikla varfærni og aðgát í
beitingu saknæmisreglunnar á mistök lækna sakir þeirrar sér-
stöðu, sem læknar hljóta að hafa í sambandi við framkvæmd
starfa síns, bæði vegna þess hversu starfið er erfitt og hvað
það almennt séð gerir miklar kröfur til læknisins. Þá má benda
á, að aðstaða læknisins hlýtur ætíð að skipta miklu máli, þannig
að lækni, sem orðið hefur á mistök við slæmar aðstæður, gæti
fyrirgefizt og hann sýknaður, en hins vegar myndi starfsbróðir
hans við betri aðstæður, sem t. d. hefði aðgang að fullkomnu
sjúkrahúsi, verið dæmdur bótaskyldur í sams konar tilviki.
Vegna þess hversu sérfræðilegt úrlausnarefnið hlýtur ætíð að
vera, þegar meta á, hvort mistök læknis séu bótaskyld, er það
í flestum, ef ekki öllum tilvikum aðeins á færi annarra lækna
að meta þetta, og mundu því slík mál ætíð vera dæmd í héraði
með tveimur sérfróðum mönnum, auk hins löglærða dómara.“
Hlutfallstölur þær, sem að ofan er vitnað í, varðandi framlög til
heilbrigðismála í ýmsum löndum, eru íengnar frá Efnahagsstofnun-
inni, hvað Island varðar, en erlendu tölurnar eru teknar úr bók eftir
Brian Abel Smith, sem heitir „An International Study of Health Ex-
penditure“, en bók þessi var gefin út af WHO í Genf 1967.
Samband við erlend Finnska læknafélagið bauð L.f. að senda full-
læknafélög trúa á norrænan fund, sem haldinn var í maí
sl., og var Sigurður S. Magnússon, læknir í
Svíþjóð, fulltrúi félagsins þar, þar sem ekki var kostur á að senda
mann héðan að heiman. L.í. hefur verið boðið að senda fulltrúa á
aðalfund brezka læknafélagsins, og er ákveðið, að Helgi Þ. Valdimars-
son, sem nú stundar framhaldsnám í London, verði fulltrúi L.í. á
þeim fundi. í maí sl. héldu stjórnir læknafélaga á Norðurlöndum sam-
eiginlegan fund í Ebeltoft í Danmörku, og var Arinbjörn Kolbeinsson
fulltrúi L.í. á þeim fundi. Birtist skýrsla frá þeim fundi sem fylgirit
með ársskýrslu. Aðalfundur WMA verður haldinn í Osló í ágúst, og
er ákveðið, að Arinbjörn Kolbeinsson verði aðalfulltrúi L.í. á þeim
fundi, en einnig mun mæta þar Jón Hj. Gunnlaugsson læknir. í apríl
sl. var haldið fyrsta alþjóðamót um hópsamvinnu lækna (Group
practice). Forseti þessa móts var íslenzkur læknir, Dr. Thorlaksscn.
Skrifaði hann L-í. og lagði áherzlu á, að L.í. stuðlaði að því, að íslenzk-
ir læknar gætu sótt þennan fund, bæði til þess að taka þátt í þessum
fyrsta alþjóðalæknafundi og til þess að halda sambandi við frændur