Læknablaðið - 01.10.1971, Page 83
LÆKNABLAÐIÐ
227
Einnig tóku til máls Gunnlaugur Snædal og Jóhann Þorkelsson,
og töldu báðir, að æskilegt væri, að samninganefnd væri ein fyrir öll
aðildarfélög L.í.
Brynleifur Steingrímsson taldi samningaumleitanir hníga í þá átt,
sem samninganefnd teldi æskilega, og meðan svo horfði, teldi hann
ekki ástæðu til þess að „brýna busana“. Hann gat þess, að Alþingi
1969 hefði sett lög, sem lúta að launum lækna og enginn „af hálfu
læknasamtakanna virðist vita um“. Þar gerir löggjafinn ráð fyrir
því, að samræmi sé milli launa héraðslækna og sjúkrahúslækna. Þá
hafði Brynleifur orð á því, að sér fyndist L.R. vera „óþarflega sjálf-
stæður“ aðili innan L.í.
Valgarð Björnsson tók sérstaklega undir það sjónarmið, að sam-
eiginleg samninganefnd væri fyrir bæði félögin. Hann taldi, að í
lögum L.R. væri beinlínis fram tekið, að L.í. hefði ekki umboð til
þess að semja fyrir hönd Læknafélags Reykjavíkur. Því mundi þurfa
lagabreytingu til þess að skipa eina samninganefnd.
Sigmundur Magnússon skýrði frá reynslu sinni af samstarfsnefnd
læknafélaganna. Reynslan af þeirri nefnd hefði ekki orðið eins góð
og í upphafi var ætlað. Nefndin var valdalaus. Gat aðeins lagt til
eitt og annað. Hann kvað aftur á móti ekkert því til fyrirstöðu, að
samninganefndir L.R. og L.í. færu sameiginlega á samningafundi við
T.R. Hvatti hann til þess, að svo yrði.
Baldur Sigfússon tók í sama streng.
Valgarð Björnsson spurði, hvort gjaldskrársamningar hefðu kom-
ið til kasta samstarfsnefndar.
Sigmundur Magnússon kvað lítið hafa verið um það. Aðalstarf
nefndarinnar, „áður en hún lognaðist út af“, var að gera tillögur um
gerð samninga sjúkrahúslækna.
Arinbjörn Kolbeinsson taldi, að sennilega þyrfti lagabreytingu
til þess að sameina samninganefndirnar. Hann lagði áherzlu á, að
samninganefndirnar hefðu með sér meiri og nánari samvinnu. E. t. v.
væri í náinni framtíð nauðsynlegt að gera róttæka breytingu á upp-
hyggingu L.í.
Skýrsla Domus Bjarni Bjarnason, formaður stjórnar Domus Medica,
Medica flutti skýrslu stjórnarinnar og las reikninga stofn-
unarinnar.
í upphafi gat hann þess, að ríkisstjórnin hefði samþykkt að
kaupa Nesstofu, en samt hefði enn ekki orðið úr kaupunum og lægju
til þess ýmsar ástæður. Þá hefur enn ekki verið ákveðið, hvað gert
verður við Nesstofu, þegar kaupin hafa verið gerð. Bjarni Bjarnason
kvaðst hafa rætt við ráðherra og stungið upp á því, að Nesstofa
verði í framtíðinni gerð að minjasafni lækna og lyfsala. Ráðherranum
hefði litizt vel á þessa hugmynd. Loks brýndi Bjarni fyrir læknum
að halda til haga og safna gömlum lækningamunum og tækjum, sem
síðar yrðu geymd í safni í Nesstofu, ef hugmyndin kærnist í fram-
kvæmd.
Að svo mæltu flutti hann skýrslu Domus Medica. Arinbjörn
Kolbeinsson, form. L.Í., hafði verið kjörinn í stjórn Domus Medica