Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.10.1971, Side 86

Læknablaðið - 01.10.1971, Side 86
230 LÆKNABLAÐIÐ frá könnun, er gerð var í héruðum landsins. Fylgir greinargerð um ofangreint efni sem fylgiskjal 18 og er lögð fram sem tillögur til stjórnar L.í. Næstur á mælendaskrá var Öm Bjarnason og ræddi hann um stöðlun læknamiðstöðva. Hann taldi. að búið væri að viðurkenna opinberlega, að læknamiðstöðvar væru bezta lausn læknaskortsins. Hann taldi, að núverandi héraðslæknar og starfandi læknar úti á landsbyggðinni, yrðu að halda áfram að berjast fyrir þessu máli og skapa þrýsting heiman frá úr héruðunum á hið opinbera, þ. e. frum- kvæðið þarf að koma heiman frá. Hann áleit að fella ætti niður númerakerfið og taka upp taxtagreiðslur, þar sem læknamiðstöðvar risu í þéttbýli. Hann taldi, að litlu héruðin mundu ekki geta staðið undir reksturskostnaði miðstöðvanna, þótt þau fengju þær gefins í upphafi. Aðstæður á hinum ýmsu stöðum, er læknamiðstöðvar yrðu væntanlega staðsettar á, væru mjög misjafnar og varla sambæri- legar. Enginn fastur staðall væri fyrir því, hvaða starfsemi og þjón- usta ætti að fara fram í læknamiðstöðvunum svo og, að launafyrir- komulag og skiptingu tekna þyrfti að skipuleggja. Hann ræddi um mögulegan tekjumissi héraðslækna og tekjur læknamiðstöðva. Hann taldi, að tími væri kominn til að rætt væri í alvöru um að stofn- setja embætti fjórðungslækna. Hann taldi og, að mikil nauðsyn væri á að koma upp „Central laboratorium“ úti á landi. Skóla þyrfti að koma upp fyrir ritara og annað aðstoðarfólk læknamiðstöðva og héraðslækna. Brynleifur Steingrímsson ræddi næst um sama mál, svo og Gísli Auðunsson, er taldi, að tímaskortur væri það, er háði almennum heim- ilislækningum mest. Hann taldi þær 10 mínútur, sem T.R. ætlaði í viðtal við hvern sjúkling, væru fjarstæða. 1/2 klst. væri meðaltími. Auknar kröfur fólks til þjónustu ykju starfið frá ári til árs, og væri vinnudagur héraðslækna sums staðar 10-12 tímar daglega, auk vakt- skyldu í 24 klst. á sólarhring. Hann taldi, að krafa um kaup og rekstur þyrlu væri fullkomlega réttlætanleg, og það væri áreiðan- lega framtíðarlausnin. Á snjóbílum hafði hann ímugust, vegna ýmissa þátta í notkun þeirra. Hann kvað reynslu sína af starfi í miðstöð og utan hennar vera þá, að munurinn væri ótrúlega mikill. Valgarð Björnsson taldi, að upplýsa þyrfti allan almenning betur um þjónustu þá, er læknamiðstöðvar myndu veita, og þá sérstaklega hina auknu og bættu þjónustu, er hann fengi, miðað við núverandi form. Arinbjörn Kolbeinsson tók mjög í sama streng og Valgarð, taldi, að mál þessi væru læknisfræðilegur, félagslegur og fjárhagslegur áróð- ur; þau væru mikilvæg, en undirbyggja þyrfti þau betur. Sigursteinn Guðmundsson sagði, að kominn væri tími til, að stofn- uð yrði læknamiðstöð á Blönduósi, undirbúningi væri langt komið, en leita þyrfti samþykkis sveitarfélaganna. Hann taldi, að sameina þyrfti hin litlu sveitarsamlög í stærri heildir. Hann taldi, að rekstrar- grundvöllur yrði ekki sá sami á stöðum, þar sem sjúkrahús eru þegar fyrir hendi, og þar sem þau eru ekki. Jóhann Þorkelsson ræddi um samstarf lækna í læknamiðstöðvum.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.