Læknablaðið - 01.10.1971, Blaðsíða 95
LÆKNABLAÐIÐ
237
Háskóla íslands. Benti hann einnig á, að stytting vinnutíma
lækna skapaði aukna þörf þeirra jafnframt. Jóhann Þorkels-
son taldi takmörkun Svía á læknanámi áður fyrr ekki hafa
byggzt á hættu á offjölgun og fátækt lækna, heldur á tak-
mörkuðum kennslustofnunum. Svíar hefðu að vísu hlotið lækna-
skort af þeim sökum, en græddu hins vegar á því að fá
menntun erlendra lækna ókeypis. Þá bar Jóhann fram viðauka-
tillögu (fskj.) 14), sem fól í sér síðustu málsgrein ofangreindrar
tillögu, en jafnframt mótmæli við töku sendiráða og öðrum
álíka aðferðum, sem stúdentar hafa notað máli sínu til stuðnings,
en hún hlaut ekki samþykki.
2. „Aðalfundur Læknafélags íslands 1970, ályktar, að setja beri
lágmarksstaðal fyrir sjúkrahús og heilbrigðisstofnanir á grund-
velli tillagna nefndar L.R., sem birtist í Læknablaðinu, 1. og 2.
tbl. 1967.
Fundurinn telur, að eðlilegt sé, að læknasamtökin og stjórn-
endur áðurnefndra stofnana komi sér saman um slíkan lág-
marksstaðal í samráði við heilbrigðisyfirvöld“.
Tillaga þessi (frá stjórn L.R., fskj. 4, II) var samþykkt.
3. „Aðalfundur Læknafélags íslands 1970 lýsir ánægju sinni yfir
þeim árangri, sem náðist í kjarabaráttunni 1966, er læknar
ríkisspítalanna og Borgarspítalans fengu sérstök vinnuherbergi
og læknisfræðilegt bókasafn með góðri sérrita þjónustu.
Fundurinn ályktar, að læknum beri skylda til að hagnýta
sér þessa bættu aðstöðu til viðhaldsmenntunar, og bendir á,
að læknar þurfi að ætla sér nægan tíma á hverjum degi til
lesturs læknisfræðirita.
Fundurinn telur, að við samningagerðir beri læknafélögunum
að leggja ríka áherzlu á, að læknum sé ætlaður nægur tími til
lesturs og viðhaldsmenntunar“.
Tillaga þessi (frá stjórn L.R., fskj. 4, III) var samþykkt.
4. „Aðalfundur Læknafélags íslands 1970 samþykkir að stofna nú
þegar Félag embættislækna sem deild innan L.í. Skal stjórn
skipuð þremur aðalmönnum og tveimur varamönnum og skal
kosin á aðalfundi L.í. til tveggja ára í senn.
Fyrsta stjórn Félags embættislækna, kjörin á aðalfundi L.f.
1970 skv. þessari tillögu, skal setja félaginu nánari starfs-
reglur“.
Tillaga þessi frá Víkingi Arnórssyni (fskj. 1) var samþykkt.
Voru síðar á fundinum kosnir í stjórn félagsins þeir Jón Sig-
urðsson, formaður, Brynleifur Steingrímsson, ritari, Baldur
Johnsen og til vara Þórður Oddsson og Bragi Ólafsson (tillaga
frá Sigursteini Guðmundssyni, fskj. 15).
c) Allsherjarnefnd. Sigmundur Magnússon hafði orð fyrir nefndinni,
og voru eftirtaldar tillögur síðan teknar til meðferðar.
1. „Aðalfundur Læknafélags íslands 1970 lætur í Ijós áhyggjur
vegna hjúkrunarkvennaskorts, sem svo mjög hefur gert vart
við sig. Er fyrirsjáanlegt, að verði ekki ráðin bót á þessum
vandkvæðum, muni þau leiða til hnignandi heilbrigðisþjónustu.