Læknablaðið - 15.04.1995, Blaðsíða 21
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81
305
Tafla I. Priggja lyfja meðferð gegn H. pylori; aldur og kyn sjúklinga, tímalengd eftirlits.
Meðferð 1 (14 dagar) Meðferð II (10 dagar) Allur hópurinn
Fjöldi 35 47 82
Karlar 27(77%) 25(53%) 52(62%)
Konur 8(23%) 22(47%) 30(38%)
Aldur Meðaltími frá meðferð til 50 ár (34-75) 48 ár (15-71) 49 ár (15-75)
eftirlits með speglun: Meðaltími frá meðferð 9,4 mán. (3-28) 16 mán. (2-32) 13,1 mán. (2-32)
til eftirlits í síma: 15,5 mán. 23,5 mán. 20,0 mán.
Tafla II. Árangur og aukaverkanir af þriggja lyfja meðferð gegn H. pylorí.
Meðferð I (14 dagar) Meðferð II (10 dagar) Allur hópurinn
Fjöldi 35 47 82
Uppræting á H.pylori 34(97%) 43(91%) 77(94%) x2=0,4 df1 NS
Endurkoma sára 1 (2,8%) 1(2,1%) 2(2,4%)
Einkenni (án H.pylori) 5(14%) 8(17%) 13(16%)
Tíðni aukaverkana 21(60%) 37(79%) 58(71%) x2=2,6 df1 p>0,1
Slæm aukaverkun 4(11%) 0(0%) 4(5%) p=0,03
árin á undan. Flestir höfðu tekið H2 blokka nær
samfleitt í mörg ár. Verðlag lyfja í maí 1994 var
lagt til grundvallar.
Staðtölulegur munur var metinn með x2
prófi og Fisher’s exact prófi og var p<0,05
talinn marktækur munur.
Niðurstöður
í meðferðarhópi I (14 daga meðferð) voru 35
sjúklingar, 27 karlar (77%) og átta (23%) kon-
ur, aldursdreifing 34-75 ár, meðalaldur 50 ár
(tafla I). Tíminn frá lokum meðferðar til eftir-
lits með speglun var að meðaltali 9,4 mánuðir
(3-24). Aðeins einn sjúklingur (karlmaður)
var H.pylori jákvæður 10 mánuðum eftir með-
ferðarlok sem gefur 97% árangur upprætingar
á H. pylori (tafla II). Sá sjúklingur hafði ekki
sár og var einkennalaus. Sjúklingar í meðferð-
arhópi I höfðu samtals verið 543 mánuði án
einkenna og lyfja frá lokum meðferðar til 1.
maí 1994. Fimm sjúklingar fengu væg melting-
aróþægindi án þess að um endursýkingu væri
að ræða. Einn sjúklingur (kona) með upprætta
H. pylori sýkingu fékk aftur skeifugarnarsár en
hún hafði tekið gigtarlyf.
í meðferðarhópi II (10 daga meðferð) voru
47 sjúklingar, 25 (53%) karlar og 22 (47%)
konur, aldursdreifing 15-71 árs, meðalaldur 48
ár (tafla I). Tíminn frá lokum meðferðar til
eftirlits með speglun var að meðaltali 16,0
mánuðir (2-32). Einkennalaus tími var að
meðaltali 23,5 mánuðir. Fjórir sjúklingar (þrír
karlar og ein kona) voru H. pylori jákvæðir við
skoðun tveimur, sex, 20 og 24 mánuðum eftir
meðferð sem gefur 92% árangur upprætingar á
H. pylori (tafla II). Einn þessara sjúklinga fékk
aftur sár (tafla II). Sjúklingar í meðferðarhópi
II höfðu samtals verið 1102 mánuði án eink-
enna frá lokum meðferðar til 1. maí 1994. Átta
(17%) sjúklingar fengu væg meltingaróþægindi
án endursýkingar.
Þrjátíu og einn sjúklingur var greindur með
CLO prófi og ræktun og var 100% samsvörun
milli prófanna. Fjórir sjúklingar sem voru H.
pylori jákvæðir eftir meðferð II voru greindir
bæði með CLO prófi og ræktun.
Aukaverkanir: Allir sjúklingar luku með-
ferðinni, enginn fékk 4. stigs aukaverkun. í
hópi I fékk 21 (60%) aukaverkanir, en 37
(74%) í hópi II (tafla II). í hópi I fengu fjórir
(11%) 3. stigs aukaverkun, en enginn í hópi II
(p = 0,03). Algengustu aukaverkanir voru nið-
urgangur (48%), ógleði (33%) og höfuðverkur
(27%). Af þeim sjúklingum sem fengu auka-
verkanir var í 71% tilfella um vægar aukaverk-
anir að ræða. Flestir sem fengu aukaverkanir
skráðu tvær eða fleiri. Sjúklingar skráðu lyfja-
töku á sömu blöð og aukaverkanir og kom þar