Læknablaðið - 15.04.1995, Blaðsíða 29
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81
311
Fjöldi kvenna
25 t
21-40 41-60 >60
Aldur
■ Með þvagleka □ Án þvagleka
Mynd 1. Algengi þvagleka eftir aldursflokkum.
= Tölfrœðilega marktœkt (p=0,002).
Hópur I: Vægur þvagleki (missa þvag sjaldn-
ar en vikulega að jafnaði).
Hópur II: Meðal (missa þvag nokkrum sinn-
um á viku).
Hópur III: Mikill (missa þvag daglega).
Ekki var gerð tilraun til að meta magn lek-
ans í hvert skipti.
Gerðirnar voru; áreynsluþvagleki (stress
incontinence), bráðaþvagleki (urgency incont-
inence), blandaður þvagleki (rnixed incontin-
ence).
Ennfremur var konunum skipt í hópa með
tilliti til grindarbotnsæfinga eftir því hvort þær;
a) komu einu sinni eða oftar í æfingahóp, b)
fengu send heim leiðbeiningarblöð, c) sögðust
gera æfingar sjálfar og þyrftu enga aðstoð, d)
gerðu engar æfingar og töldu sig ekki þurfa að
gera þær.
Kannað var í sjúkraskrám heilsugæslustöðv-
arinnar hversu margar konur hefðu leitað
þangað vegna þvagleka á síðustu 10 árum eða
voru þekktar vegna læknabréfa eftir aðgerðir
vegna þvagleka.
I september 1994 eða rúmlega hálfu ári eftir
að eiginleg meðferð hófst var sendur út nýr
spurningalisti (spurningalisti II) til allra sem
höfðu svarað fyrri lista játandi, alls 62 konur,
en ein kona lést á tímabilinu. Þar var spurt
hvort breyting hefði orðið, þvaglekinn væri
horfinn, óbreyttur, minni eða meiri en fyrir
ári, ásamt sömu spurningum og á fyrri lista um
stærð vandamálsins og áhrif þess á daglegt líf.
Sömuleiðis var spurt hvort viðkomandi gerði
nú grindarbotnsæfingar og þá hversu oft og
hvort hún hefði hafið hormónameðferð á ár-
inu. Engin af konunum fór í skurðaðgerð
vegna þvagleka á tímabilinu samkvæmt gögn-
um heilsugæslustöðvar.
Tölfræðilegar niðurstöður voru fengnar með
Fisher’s prófi og leitniprófum (Trend tests)
með hjálp Helga Sigvaldasonar verkfræðings.
Niðurstöður
Við spurningalista I bárust 112 svör eða
85%. Þar af voru 63 konur eða 56% með ein-
hvern þvagleka, og af þeim 32 konur eða 29%
af heildarhópnunt með talsverð eða mikil ein-
kenni. Aldursskipting alls hópsins sést á mynd
1. Ekki kom fram marktækt samband milli ald-
urs og þvagleka og mikil einkenni komu fyrir í
öllum aldursflokkum. Skipting eftir fjölda fæð-
inga sést á mynd 2 og er þvagleki marktækt
minni (p = 0,002) hjá óbyrjum og marktækt
vaxandi (p=0,02) með fjölda fæðinga. Myndir
3 og 4 sýna skiptingu í hópa eftir gerð þvagleka
og umfangi vandans.
Af konum með þvagleka höfðu sjö áður gert
grindarbotnsæfingar reglulega, níu fengið
hormónalyf og 10 farið í skurðaðgerð vegna
þvagleka og/eða blöðrusigs. Af þeim síðast-
töldu sögðu sjö árangur góðan eða sæmilegan
en þrjár lélegan. Samkvæmt skýrslum heilsu-
gæslustöðvarinnar voru aðeins fjórar af þess-
um 63 konum með þvaglekagreiningu í heilsu-
vandaskrá.
Við spurningalista II bárust 59 svör eða