Læknablaðið - 15.04.1995, Side 92
364
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81
Gagnabankar fyrir heilbrigðisstéttir —
Medline
Greinar um læknisfræðileg
málefni skipta tugþúsundum á
ári hverju og birtast í þúsundum
tímarita. Einna þekktastur
gagnabanka fyrir lækna er
„Medline", sem er í eigu banda-
ríska læknabókasafnsins (U.S.
National Library of Medicine).
Hann geymir ágrip og tilvísanir í
um það bil átta milljónir greina
úr 3400 tímaritum frá 70 lönd-
um allt frá árinu 1966. Um það
bil 300.000 tilvísanir bætast við
árlega. Hægt er að kaupa
gagnagrunninn í heilu lagi eða
nokkur undirmengi af honum á
geisladiskum. Styttri útgáfur af
Medline hafa sérvaldar upplýs-
ingar eftir fræðigreinum, ná
styttra aftur í tímann eða eru
valdar með þrengri skilgrein-
ingum.
Fyrirtækið Silverplatter, sem
er bandarískt að uppruna, er
eitt þeirra fyrirtækja, sem hefur
sérhæft sig við að dreifa upplýs-
ingum á aðgengilegu formi til
stofnana, fyrirtækja og alrnenn-
ings. Silverplatter býður ýmsa
gagnabanka fyrir lækna á geisla-
diskum, þar með talið Medline
og undirmengi hans auk ann-
arra gagnasafna um læknis-
fræðileg efni.
Peim sem áhuga hafa gefst
kostur á að fá gagnagrunna til
reynslu í 30 daga án endur-
gjalds. Allar upplýsingar eru
veittar hjá fyrirtækinu Spurn sf í
Reykjavík, sími 62 90 55, sem
aðstoðar við notkun gagna-
grunnanna og leiðbeinir um val
á tæknibúnaði.
Úr fréttatilkynningu
Til áskrifenda erlendis
Eins og við gátum um í bréfi
til ykkar, hefur Læknablaðið
stofnað póstgíróreikning til að
auðvelda áskrifendum erlendis
að greiða áskriftargjöldin.
Askrifendur geta nú greitt
áskriftargjöldin á pósthúsi í við-
komandi landi og þarf að útfylla
sérstakan gíróseðil sem þar
fæst, fyrir útlönd. Áskrifendur
búsettir á Norðurlöndum sem
þess óska geta notfært sér þenn-
an greiðslumáta en einnig
áskrifendur í Pýskalandi og
Englandi.
Til þess að koma til móts við
aðra áskrifendur hefur Lækna-
blaðið nú einnig gert samning
við greiðslukortafyrirtæki um
greiðslukortaþjónustu. Hægt er
að greiða með VISA og Euro-
card og gildir einu hvort kortin
eru íslensk eða erlend.
Til þess að hægt sé að skuld-
færa greiðslukort þarf korthafi
að útfylla meðfylgjandi skuld-
færsluheimild og senda til
Læknablaðsins.
Peir áskrifendur sem hafa lát-
ið umboðsmann á íslandi sjá um
greiðsluna en óska framvegis
eftir að greiða sjálfir, láti okkur
vinsamlegast vita.
------------------------------------------------------------------------><
Skuldfærsluheimild
Ég undirritaöur/uð heimila hér með Læknablaðinu að skuldfæra greiðslukort
mitt fyrir áskrift að Læknablaðinu, kr. 6.000 - sex þúsund krónur.
Ég æski þess að upphæðin verði skuldfærð á □ Eurocard □ Visa
Númer korts:-----------------------------------Gildistími korts:________
Korthafi:_______________________________________________________________
Staður Dagsetning Undirskrift