Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.02.1996, Side 16

Læknablaðið - 15.02.1996, Side 16
126 LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82 Table III. Indications for drug prescription. Number, gender and mean age. Number (%) Males (%) Females (%) Mean age years (±SD) Asthma 904 (66.9) 443 (69.5) 445 (64.3) 38 (±28) Chronic bronchitis 241 (17.8) 98 (15.4) 139 (20.1) 40 (±27) Emphysema 144 (10.7) 74 (11.6) 69 (10.0) 65 (±17) Cough 23 (1.7) 9 (1.4) 14 (2.0) 25 (±26) Common cold 19 (1.4) 5 (0.8) 13 (1.9) 19 (±24) Don’t know 20 (1.5) 8 (1.8) 12 (1.7) 32 (±24) Total 1351 637 692 41 (±28) Kennsla í notkun innöndunarlyfja. Alls svar- aði 1351 þessari spurningu, af þeim höfðu 1286 (95%) fengið kennslu í notkun innöndunar- lyfja. Flestir (84%) hjá læknum, 6,6% hjá hjúkrunarfræðingum í úðaskóla Vífilsstaða- spítala, 4,6% hjá öðrum hjúkrunarfræðingum, 3% hjá lyfjafræðingum og 1,9% annars staðar. Ástœður lyfjagjafar. Spurningunni „Við hverju fékkstu lyfin?“ svaraði 1351. Tafla III sýnir skiptingu eftir sjúkdómsgreiningum og einkennum og töldu langflestir (66,9%) að um astma væri að ræða. Kynjaskipting var svipuð við astma en fleiri konur tilgreindu langvinna berkjubólgu (tafla III). Einstaklingar með lungnaþembu voru elstir (65±17 ár) en þeir sem höfðu óljósar greiningar (hósti, kvef og veit ekki) voru yngstir. Heimilislæknar og aðrir sérfræðingar ávísuðu í svipuðu hlutfalli, sé tek- ið tillit til einstakra sjúkdómsgreininga. Einkenni astmalyfjanotenda. Tveir þriðju hlutar astmalyfjanotenda höfðu sögu um píp, ýl eða surg fyrir brjósti síðustu 12 mánuði, sem ■ Quit smoking □ Smoker - not daily ■ Never smoked ■ Smoker - daily Asthma Emphysema Ch. bronchitis oftast hafði orsakað mæði og verið án kvefs (tafla IV). Hópurinn með astma og langvinna berkjubólgu hafði oftast vaknað vegna hósta- kasta, en einstaklingar með lungnaþembu höfðu oftast fengið prednisólon töflur vegna lungnasjúkdóms á síðustu 12 mánuðum (tafla IV). Reykingar. Meðal allra notenda astmalyfja 16 ára og eldri reyktu 24% daglega en 5% reyktu stundum, 34% höfðu aldrei reykt og 37% voru hættir, að meðaltali fyrir 11 árum. Reykingavenjur og saga reyndust mismunandi eftir sjúkdómsgreiningum eins og fram kemur á mynd 5. Þannig voru daglegar reykingar al- gengari hjá þeim sem höfðu langvinna berkju- bólgu (37%) og lungnaþembu (29%) en astma- sjúklingum (20%). Hlutfall þeirra sem aldrei höfðu reykt var hæst meðal astmasjúklinga (40%). Lungnaþembusjúklingar voru oftast fyrrverandi reykingamenn (59%). Meðferð astma. Lyfjanotkun allra astma- sjúklinga 16 ára og eldri var athuguð sérstak- lega. Alls var um 591 einstakling að ræða og notuðu 93% þeirra sérhæfð beta,-adrenvirk lyf að staðaldri, 62% innöndunarstera og 19% teófýllín (mynd 6). Mjög fáir notuðu andkó- línvirk lyf (2,9%) eða natríumkrómóglíkat (1,2%). Þegar athugað var hvaða lyf voru notuð sam- an hjá astmasjúklingum 16 ára og eldri (mynd 6) kom í Ijós, að 31% fengu sérhæfð beta,- adrenvirk lyf sem einlyfjameðferð og 5% tóku innöndunarstera án þess að nota önnur astma- lyf að staðaldri. Stærsti hópurinn (57%) fékk sérhæfð beta2-adrenvirk lyf og innöndunar- stera og rúmlega fimmtungur þessa hóps not- aði einnig teófýllín. Teófýllín er þannig aðal- lega notað sem þriðja lyf ásamt sérhæfðum beta2-adrenvirkum lyfjum og innöndunarster- urn. Notkun þess eins sér var hverfandi (2%). Meðal þeirra 209 astmasjúklinga sem fengið höfðu prednisólon meðferð á árinu 1994 voru Fig. 5. Smoking and clinical diagnosis.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.