Læknablaðið - 15.02.1996, Blaðsíða 82
184
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
Háskóli íslands
Endurmenntunarstofnun
Danska fyrir heilbrigðisstéttir
Einu sinni í viku, 12. febrúar til 25. mars kl. 16:00-19:00, samtals 20 kennslustundir.
Verð 12.800 krónur.
Yfirmarkmið: Að starfsfólk í heilbrigðisþjónustu geti sótt og tekið virkan þátt í fundum og
ráðstefnum sem haldnar eru á Norðurlöndum. Hámarksfjöldi þátttakenda er 14.
Undirmarkmið: Að starfsfólk í heilbrigðisþjónustu geti tekið niður glósur úr fyrirlestrum,
flutt fyrirlestra á áheyrilegan hátt og tekið þátt í hópumræðum.
Umsjón: Brynhildur A. Ragnarsdóttir norrænn kennsluráðgjafi.
Leiðbeinendur: Bertha Sigurðardóttir og Ágústa P. Ásgeirsdóttir kennarar í Verzlunar-
skóla íslands.
Einkenni vegna endurtekins álags á höndum, hálsi og fleiru
við vinnu „Repetetive Strain lnjury“
Haldið í samvinnu við Iðjuþjálfafélag íslands.
Fyrri hluti: 31. maí kl.08:30-12:00 5.500 krónur.
Opið öllum heilbrigðisstéttum.
Kynning á einkennum vegna endurtekins álags á höndum, hálsi og fleiru við vinnu og
greining á þeim mörgu sjúkdómum sem falla undir þennan flokk. Forvarnir (vinnuum-
hverfi, vinnustellingar, búnaður o.fl.) og hinir ýmsu meðferðarmöguleikar.
Seinni hluti: 31. maí kl. 13:00-17:00 9.500 krónur (fyrir báða hlutana).
Sérstaklega ætlað iðjuþjálfum, læknum og sjúkraþjálfum. Fyrri hlutinn er nauðsynlegur
undirbúningur. Framhald ætlað þeim sem vilja afla sér meiri sérþekkingar á þessu sviði.
Tekin fyrir sjúkdómstilfelli frá sjónarhóli læknis og iðjuþjálfa.
Fyrirlesarar dr. Emil Pascarelli, MD prófessor í klínískri læknisfræði við Columbia Uni-
versity í New York og prófessor í heilsuvernd við New York Hospital, Cornell Medical
Center og Jean Bear-Lehman, MS, OTR, FAOTA prófessor í iðjuþjálfun við Columbia
University í New York.
Námskeiðið fer fram á ensku; skráningarfrestur til 1. maí.
Upplýsingar og skráning í símum 525 4923 og 525 4924, bréfsíma 525 4080 og
tölvupósti endurm@rhi.hi.is