Læknablaðið - 15.02.1996, Blaðsíða 78
180
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
Frá Rannsóknastofu í lyfjafræði
Dauðsföll af völdum þriggja morfínlyfja
Hjálögð er tafla með upplýs-
ingum um 10 dauðsföll, sem
rekja má til töku þriggja morfín-
lyfja (metadóns, ketóbemídóns
eða morfíns) með eða án ann-
arra lyfja, sem orðið hafa á ár-
unum 1992-1995 og komið hafa
til rannsóknar í Rannsókna-
stofu í lyfjafræði á vegum pró-
fessors Gunnlaugs Geirssonar,
Rannsóknastofu í réttarlæknis-
fræði. Telst okkur til, að tvö
þessara dauðsfalla séu vegna
metadóns einungis og eitt vegna
ketóbemídóns einungis. Hin
dauðsföllin eru vegna töku
metadóns eða morfíns í óhæfi-
lega stórum skömmtum ásamt
öðrum lyfjum.
Það vekur sérstaka athygli
okkar, að svo mörg slík dauðs-
föll skuli hafa orðið á einungis
fjórum árum, þar eð dauðsföll
af völdum morfínlyfja voru nán-
ast óþekkt hér á landi fyrir 1992.
Við höfum raunar bent heil-
brigðisyfirvöldum á þetta með
bréfi, sem dagsett er 21.11.1994.
Frá þeim tíma hafa hins vegar
orðið fimm slík dauðsföll eins
og taflan ber með sér og getum
við því ekki orða bundist.
Sérstaka athygli okkar vekur,
að helmingur þessara dauðs-
falla skuli vera vegna töku
metadóns. Finnst okkur sem
það þurfi sérstakrar rannsóknar
við.
Fréttatilkynning
Magn metadóns, ketóbemídóns eða morfíns í líffærum 10 einstaklinga (míkróg/g eða míkróg/ml)
er létust af völdum þessara Iyfja
Kyn Aldur Heili Blóð Lifur Þvag Athugasemdir
1992 Kona 71 0,32 0,22 2,4 0,90 Samv. eitrun vegna etanóls og metadóns
1992 Kona 41 0,29 0,24 0,72 - Samv. eitrun vegna geð- deyfðarlyfja og metadóns
1993 Karl 40 0,45 0,18 1,4 2,6 Metadón aðaldánarorsök (sprautufíkill)
1994*) Kona 51 - 0,70 - - Samv. eitrun vegna etanóls og metadóns
1994 Kona 39 2,0 0,40 4,5 11,0 Talin vera banvæn eitrun vegna metadóns
1995 Kona 46 - 0,8 - - Talin vera banvæn eitrun vegna ketóbemídóns
1995 Karl 43 - 0,4 - - Samv. eitrun vegna mor- fíns og amítriptýlíns
1995 Karl 61 - 0,2 - 1 Samv. eitrun vegna meta- dóns og fenemals
1995 Karl 56 - 0,3 - 1,1 Talin vera banvæn eitrun vegna metadóns
1995 Karl 59 — 0,2 — 10 Samv. banvæn eitrun vegna morfíns og klór- díazepoxíðs (?)
*) í blóðinu voru ennfremur amfetamín, dffenhýdramín kódeín og paracetamól í lækningalegri þéttni.