Læknablaðið - 15.02.1996, Blaðsíða 75
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
177
Ortópedísk medisín
á St. Franciskusspítalanum
Námskeið 1994. Þátttakendur og kennarar.
Síðastliðin fimm til sex ár hef-
ur fræðigreinin ortópedísk med-
isín (hreyfikerfisfræði, stoð-
kerfisfræði, bifkerfisfræði)
verið stunduð kerfisbundið við
St. Franciskusspítalann í Stykk-
ishólmi. Við spítalann starfar
sjúkrahúslæknir með 10 ára
reynslu í greininni, tveir heimil-
islæknar, sem báðir hafa sótt í
henni námskeið og þrír sjúkra-
þjálfarar með talsverða sérhæf-
ingu á þessu sviði. Undanfarin
ár hefur verið lögð mikil áhersla
á eflingu endurhæfingardeildar
sjúkrahússins með greiningu og
meðferð vandamála er tengjast
ortópedískri medisín að megin-
markmiði, en deildin sinnir
samhliða allri hefðbundinni
sjúkraþjálfun og endurhæfingu.
Sjúkrahúsið tekur við sjúk-
lingum með hvers kyns vanda í
hreyfikerfi til greiningar og
meðferðar og er hópur sjúk-
linga með vandamál tengd
mjóhrygg, brjósthrygg og háls-
hrygg langstærstur.
Undanfarin ár hafa orðið
miklar breytingar á íhaldssamri
meðferð bakvandamála, um-
fram allt brjóskloss og hefur
faghópurinn á SFS sett saman
sína eigin dagskrá fyrir bak-
sjúklinga. Tekur meðferð sjúk-
linga með ferskt brjósklos um
það bil tvær vikur að meðaltali
eins og sakir standa. Reyndar
hefur talsverðum fjölda sjúk-
linga með langvinna bak- og
rótarverki einnig verið vísað til
þessarar meðferðar og virðist
hún henta vel ýmsum öðrum en
brjósklossjúklingum.
Sjúklingar eru ýmist greindir
og meðhöndlaðir á göngudeild
eða lagðir inn og er ætlunin að
koma á næstunni á fót sérstakri
móttöku fyrir sjúklinga með
hreyfikerfisvandamál er falla
undir ortópedíska medisín, þar
sem læknir og sjúkraþjálfari
meta, greina og skipuleggja
meðferð í sameiningu.
Haldin hafa verið fjögur nám-
skeið í ortópedískri medisín á
vegum stofnunarinnar og hafa
læknar og sjúkraþjálfarar sótt
námskeiðinjöfnumhöndum, en
á þriðja tug hafa lokið brottfar-
arprófi. Er ætlunin að þeir sem
sótt hafa námskeiðin geti aflað
sér þjálfunar á móttöku þeirri
sem að ofan er nefnd þegar fram
í sækir en erfitt er að afla sér
góðrar þjálfunar í greininni er-
lendis.
Kennarar á námskeiðunum
hafa verið frá Bretlandi, auk
sjúkrahúslæknis og hefur stofn-
unin samband við allstóran hóp
kennara, aðallega á Bretlands-
eyjum, sem býr yfir mikilli
reynslu og þekkingu. Upphaf-
lega voru námskeiðin einskorð-
uð við grundvallarfræði
J. H. Cyriax, sem telst faðir þess-
arar fræðigreinar en eftir því
sem greinin þróast hefur verið
tekið inn ýmislegt efni frá öðr-
um frumkvöðlum, svo sem
R.McKenzie, Ongley & Dorm-
an og Maitland svo einhverjir
séu nefndir. Greiningaraðferð-
irnar eru hinsvegar frá Cyriax,
en þær eru langmest kenndar í
hinum enskumælandi heimi og
víðar.
Það er talið afar mikilvægt að
þróa námskeiðahald af þessu
tagi hér heimafyrir og hafa
bresku kennararnir lýst áhuga
sínum á að hér á landi verði
haldin námskeið í ortópedískri
medisín fyrir fagfólk frá bæði
Evrópu og Norður-Ameríku.
Næsta námskeið verður hald-
ið dagana 2.-7. júní að báðum
dögum meðtöldum. Þann 1. júní
verður haldið upprifjunarnám-
skeið fyrir þá sem þegar hafa
sótt námskeið í ortópedískri
medisín. Nánari upplýsingar
um námskeið þessi sem og um
nám almennt í greininni veitir
sjúkrahúslæknir í síma 4381128,
bréfsími 438 1628.
Fréttatilkynning