Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.1996, Síða 19

Læknablaðið - 15.02.1996, Síða 19
(flúoxetín) -árangursríkt íslenskt geðlyf Seról (flúoxitín) Framleiðandi: Omega Farma ehf. Hylki; N 06 A B 03 R B Hvert hylki inniheldur: Fluoxetinum INN, klóríð, samsvarandi Fluoxetinum INN 20 mg. Töflur; N 06 A B 03 Hver tafla inniheldur: Fluoxetinum INN, klóríð, samsvarandi Fluoxetinum INN10 mg. Eiginleikar: Flúoxetín er geðdeyfðarlyf, sem er talið verka þannig, að það blokkar upptöku serótóníns (5-HT) í taugaenda í heila. Lyfið hefur litil sem engin áhrif á noradrenalin eða önnur boðefni i heila. Flúoxetín minnkar matarlyst. Blóðþéttni lyfsins nær hámarki u.þ.b. 6 klst. eftir inntöku. Helmingun- artími flúoxetíns í blóði er 2-3 dagar. Aðalumbrotsefni flúoxetíns er norfiúoxetín, sem er álíka virkt og flúoxetín og helmingunartími þess er 7-9 dagar. Próteinbinding í plasma er um 94%. Um 80% af gefnum skammti skiljast út í þvagi, að mestu sem umbrotsefni. Vegna langs helmingunartíma lyfsins koma breytingar á skammtastærðum ekki fram fyrr en eftir nokkrar vikur. Ábendingar: Innlæg geðdeyfð (unipolar og bipolar). Alvarlegt, langvarandi þunglyndi, sem á sér ytri orsakir. Frábendingar: Meðganga og brjóstagjöf. Sérstakrar varúðar ber að gæta við flogaveiki, alvarlega nýrnabilun, lifrarsjúkdóm, nýlegt hjartadrep og hjá öldruðum. Varúð: Við þunglyndi getur sjálfsmorðshætta aukist í byrjun meðferðar. Flogaveikisjúklingar þurfa að vera undir mjög góðu eftirliti vegna aukinnar hættu á flogum. Aukaverkanir: Ógleði, óróleiki, slappleiki, niðurgangur, höfuðverkur, skjálfti, kvíði, sljóleiki, munnþurrkur og aukin svitamyndun. Ofnæmi með útbrotum og liðverkjum. Milliverkanir: Lyfið má ekki nota með MAO-hemjandi lyfjum og þar sem lyfið og umbrotsefni þess hverfa ekki úr líkamanum fyrr en mörgum vikum eftir að töku þess er hætt, er ekki óhætt að nota MAO-hemjandi lyf fyrr en liðið hafa a.m.k. 5 vikur frá því að töku flúoxetíns er hætt. Ekki ætti að nota tryptófan með þessu lyfi. Hækkun á litíumþéttni hefur sést eftir samtímis gjöf af flúoxetíni og þarf því að fylgjast vel með litíummagni í blóði. Skammtastærðir handa fullorðnum: Venjulegur upphafsskammtur er 20 mg, sem heppilegt er að taka að morgni. Verkun nær ekki hámarki fyrr en eftir 2-3 vikur. Fáist ekki fullnægjandi verkun má auka skammtinn smám saman, þó ekki í meira en 80 mg á dag. Við mikið skerta lifrar- eða nýrnastarfsemi og hjá öldruðum getur þurft að gefa lægri skammta en 20 mg á dag. Skammtastærðir handa börnum: Lyfið er ekki ætlað börnum. Pakkningar og verð 1. sept. 1995: Hylki 20 mg: 30 stk. - 4686 kr.; 100 stk. - 14374 kr. Töflur 10 mg: 30 stk. - 2443 kr.; 100 stk. - 7887 kr. Hámarksmagn sem ávísa má með lyfseðli er sem svarar 30 daga skammti. o OMEGA FARMA íslenskt almenningshlutafélag um lyfjaframleiöslu, stofnaö 1990
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.