Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.02.1996, Side 20

Læknablaðið - 15.02.1996, Side 20
(cisapríð) -eykur iðrahreyfingar Prestal (cisapríð) Framleiftandi: Omega Farma ehf. Töflur; A 03 F A 02 R E Hver tafla inniheldur: Cisapridum INN, mónóhýdrat, samsvarandi Cisapridum INN 5 mg, 10 mg eða 20 mg. Ábendingar: Starfrænar truflanir i meltingarvegi, t.d. bakflæði i vélinda og sein magatæming. Langtímameðferð við bakf læði í vélinda. Frábendingar: Þekkt ofnæmi fyrir einhverjum af innihaldsefnum lyfsins. Sjá einnig kafla um milliverkanir. Meðganga og brjóstagjöf: Reynsla af notkun lyfsins hjá konum á meðgöngutíma er takmðrkuð. Rannsóknir á dýrum benda ekki til fósturskemmandi áhrifa lyfsins. lyfið ætti þó ekki að nota á meðgöngutíma nema væntanlegt gagn fyrir móður sé talíð meira en hugsanleg hætta fyrir fóstrið. Lyfið skilst i litlu magni út í brjóstamjólk. Þó er ekki mælt með notkun lyfsins hjá konum með barn á brjósti. Aukaverkanir: Algengustu aukaverkanir eru niðurgangur (9%) og kviðverkir (3%), en þessi óþægindi eru yfirleitt timabundin. Algengar (>1%): Niðurgangur, kviðverkir, vindgangur og uppþemba. Sjaldgæfar (0,1-1%): Höfuðverkur, svimi, ógleði. Mjðg sjaldgæfar (<0,1%): Ofnæmi, krampaflog, einkenni frá extrapýramidalkerfi. Truflanir á lifrarstarfsemi, með eða án gallstíflu. Aukin tíðni þvagláta, háð skammtastærð. Gynaecomastia, galactorrhoea, en bein tengsl við notkun lyfsins hafa ekki að fullu verið sönnuð. Ef miklir kviðverkir verða eftir töku 20 mg taflna er mælt með, að skammtur sé helmingaður við hverja inntóku. Ef niðurgangs verður vart hjá smábörnum, skal minnka skammta. Milli vekanir: Vegna áhrifa lyfsins á magatæmingu getur það haft áhrif á frásog annarra lyfja, m.a. segavarnalyfja. Andkólinvirk lyf upphefja að verulegu leyti órvandi áhrif cisapriðs á hreyfingar í meltingarfærum. Rétt er að gera storkupróf hjá sjúklingum, sem ern á segavarnameðferð á fyrstu dðgum eftir að notkun lyfsins er hafin og henni hætt og ef nauðsyn krefur leiðrétta skammta af segavarnarlyfinu. Cisaprið getur flýtt áhrifum benzódiazepina og alkóhóls. Cisaprið er umbrotið að mestu fyrir tilstuðlan cýtókróm P450 3A4 enzým.Rannsóknir hafa sýnt. að ketókonazól til inntóku kemur í veg fyrir umbrot cisapríðs og leiðir þannig til hárrar blóðþéttni cisapriðs. Samtímis gjöf cisapríðs og ketókónazóls til inntóku getur leitt til lengingar QT-bils á hjartarafriti. In vitro rannsóknir benda til að ítrakónazól geti einnig komið i veg fyrir umbrot cisapríðs. Vegna þessa skal hætta meðferð með cisapríði hjá sjuklingum, sem þurfa á meðferð með ketókónazóli eða ítrakónazóli að halda. Varúð: Lyfið skal nota með varúð hjá fyrirburum, sem fæðast eftir skemmri en 34 vikna meðgöngu. Varúðar skal gæta við gjöf lyfsins hjá þeim sjúklingum. þar sem auknar maga- og þarmahreyfingar gætu haft hættu i fór með sér. Við lifrar- eða nýrnabilun er mælt með að skammtar séu í upphafi minnkaðir um helming. Skammtin má siðan auka m.t.t. áhrifa og aukaverkana. Hjá ðldruðum er stöðug blóðþéttni venjulega hærri vegna lengri helmingunartima. Meðferðarskammtar eru þó svipaðir og notaðir eru hjá yngri sjúklingum. örfá tilvik um lengingu QT-bils og/eða .torsade de pointes" hjartsláttartruflanir hafa komið fram hjá hjartasjúklingum. Ekki hefur verið sýnt fram á bein tengsl cisapríðs við þessi tilvik. Þrátt fyrir það skal gætavarúðar áður en lyfið er gefið sjúklingum með auknar likur á lengingu QT-bils (s.s. óleiðrétta elektrólýtatruflanir (kalium/magnesíum), meðfædd QT-bil lenging) eða sjúklingum, sem taka önnur lyf sem geta valdið lengingu QT-bils. Eiturverkanlr: Við ofskömmtun eru einkenni kviðverkir og niðurgangur og hjá börnum (yngri en 1 árs) sljóleiki og atonia. Meðferð: Lyfjakol og nákvæmt eftirlit. Mælt er með að athugað sé. hvort sjúklingar hafi lengingu á QT-bili. Einnig skal athuga þætti sem auka líkur á .torsades de þointes" eins og elektrólýtatruflanir (einkum kalíumskortur) og hægur hjartsláttur. Skammtastærðir handa fullorðnum: Venjulegir skammtar eru 15-40 mg, gefið sem 5-10 mg þrisvar til fjórum sinnum á dag. Við bakflæði í vélinda eru gefin 20 mg tvisvar sinnum á dag. Meðferðarlengd er venjulega 4-8 vikur. Við langtimameðferð á bakflæði i vélinda eru gefin 10 mg tvisvar sinnum á dag, fyrir morgunverð og að kvöldi fyrir svefn, eða 20 mg einu sinni á dag að kvöldi fyrir svefn. I alvarlegum tilvikum má auka skammtinn i 20 mg tvisvar sinnum á dag. Skammtastærðir handa börnum: Venjulegir skammtar eru 0,2 mg/kg líkamsþunga þrisvar til fjórum sinnum á dag. Lyfið skal tekið 15 mínútum fyrir mat. Pakkningar og verö 1. sept. 1995: Töflur 5 mg: 50 stk. - 1486 kr.; 100 stk. - 2820 kr. Töflur 10 mg: 50 stk. - 2531 kr.; 100 stk. - 4903 kr. Töflur 20 mg: 100 stk. — 9399 kr. o OMEGA FARMA íslenskt almenningshlutafélag um lyfjaframleiðslu, stofnað 1990

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.