Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.02.1996, Side 44

Læknablaðið - 15.02.1996, Side 44
150 LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82 ferð, eftir því hvort þeir voru farnir að taka T4 eða ekki. Hugsanlegt er að skýra megi lægri tíðni já- kvæðra TPO-Ab og Tg-Ab meðal íslenskra Graves sjúklinga miðað við erlenda með mis- munandi joðneyslu sem gæti haft áhrif á meingerð sjúkdómsins. Inngangur Graves sjúkdómur er sjálfsofnæmissjúkdóm- ur. Örvandi mótefni myndast gegn TSH (skjaldvakakveikju-) viðtökum (TSH receptor antibodies (TRAb)) á yfirborði skjaldkirtils- frumna og valda stjórnlausri hormónafram- leiðslu kirtilsins. Þessi mótefni eru mælanleg í sermi flestra sjúklinga með Graves sjúkdóm (1). Einnig finnast oft í þessum sjúklingum mótefni gegn thyroid peroxidasa (TPO-Ab) og þýróglóbúlíni (Tg- Ab) en þessi mótefni eru annars einkennandi fyrir Hashimotos sjúkdóm (chronic thyroiditis) og eru talin endurspegla vefjaskemmdir í kirtlinum (2). Til greiningar Graves sjúkdóms er yfirleitt ekki þörf á að mæla TRAb þar sem mælingar á skjaldkirtils- hormónum og TSH ásamt joðupptöku kirtils- ins duga oftast (3). Helstu not TRAb mælinga í klíník eru hjá ófrískum konum með virkan eða meðhöndlaðan Graves sjúkdóm, en mælist hjá þeim há TRAb gildi eru líkur á tímabundnum einkennum um ofstarfsemi skjaldkirtils hjá barni eftir fæðingu (1). Einnig virðast TRAb mælingar vera hjálplegar til að segja fyrir um svörun Graves sjúklinga við skjaldhamlandi (antithyroid) lyfjameðferð en há gildi fyrir og við lok meðferðar auka líkur á endurkomu sjúkdómsins (1,3). Ekki hefur verið sýnt fram á forspárgildi TRAb mælinga varðandi útkomu eftir geislajoð- (131I-) meðferð (4,5). Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna tíðni jákvæðra mælinga á ofangreindum mót- efnum meðal íslenskra Graves sjúklinga. Þar eð joðmagn er talið hafa áhrif á virkni sjálfsof- næmissvörunar í skjaldkirtli (6) þótti forvitni- legt að gera mælingar á þessum mótefnum meðal íslenskra Graves sjúklinga og heil- brigðra einstaklinga því joðneysla Islendinga er ríkuleg samkvæmt mælingum sem gerðar hafa verið (7,8). Efniviður og aðferðir Sjúklingar: Á tímabilinu 1993-1995 var blóð- sýnum safnað frá 120 Graves sjúklingum, 47 sem ekki höfðu verið meðhöndlaðir og 73 sem höfðu verið meðhöndlaðir með 70 Gy I31I-geisl- un, einu og hálfu til 19 árum áður. Af með- höndluðu sjúklingunum voru 56 á uppbótar- meðferð með þýroxíni (T4) vegna vanstarf- semi skjaldkirtilsins eftir geislunina en 17 sjúklingar framleiddu enn nægjanlegt magn skjaldkirtilshormóna. Eingöngu var um að ræða sjúklinga sem höfðu fengið eina geisla- joðmeðferð. Sýni fengust einnig frá fimm sjúklingum með heitan hnút (toxic adenoma) sem fengið höfðu geislajoðmeðferð og störf- uðu kirtlar allra þessara sjúklinga eðlilega. Að- ferðum við sjúkdómsgreiningar hefur verið lýst (9). Viðmiðunarsýni voru fengin frá hópi 74 heilbrigðra einstaklinga. Upplýsingar um kynjaskiptingu og aldur einstaklinganna í hóp- unum eru sýndar í töflu I. Gerðar voru sermis- mælingar á TRAb, TPO-Ab og Tg-Ab auk hormónamælinga; T4, FT4 og TSH. Aðferðir: TRAb var mælt með aðferð sem byggir á getu mótefnanna til að hindra bind- ingu geislamerkts TSH við uppleysta TSH við- taka og voru notuð prófefni frá RSR Ltd, Car- diff, UK. TPO-Ab og Tg-Ab voru mæld með ELISA aðferð með prófefnum frá INOVA di- agnostics, Inc., San Diego, USA. Aðferðum við hormónamælingarnar hefur áður verið lýst (9). Tölfrœðileg greining: Öll viðmiðunargildi (reference values) eru 0,95 hlutfallsmark (fractile). Við ákvörðun á viðmiðunargildi hverrar aðferðar var notað stikabundið mat (parametric estimate) þar sem mælingarnar eða ákveðin vörpun þeirra (til dæmis log) eru normaldreifðar (10). Kí-kvaðratspróf (með Yates leiðréttingu) var notað við samanburð á hlutföllum og ópar- að t-próf við samanburð á meðaltölum. Bon- ferroni leiðrétting var notuð þegar fleiri en tvær breytur voru bornar saman. Besta lína til lýsingar á sambandi tveggja breyta var ákvörð- uð með aðferð minnstu kvaðrata (least squar- es). Tilgáta um normaldreifingu var prófuð með Kolmogorov-Smirnov prófinu. Til próf- unar á núlltilgátu var miðað við marktektar- kröfu 0,05 (significance level) og tvíhliða próf (two-tailed test). Niðurstöður Viðmiðunarmörk fyrir mótefnamælingarnar ásamt öryggisbilum eru sýnd í töflu II. Við útreikninga á mörkum fyrir TPO-Ab og Tg-Ab var stuðst við mælingar frá öllum einstakling- um í viðmiðunarhópnum en TRAb mælingar

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.