Læknablaðið - 15.02.1996, Blaðsíða 54
FAM<
famciklovir
VIRK MEÐHÖNDLUN Á
ÁBLÆSTRI Á KYNFÆRUM
OG RISTLI
> LANGVARANDI VERKUN*
Famvir (SmithKline Beecham) RE
TÖFLUR; J 05 A B 09
Hver tafla inniheldur: Famciclovirum INN 125
mg eöa 250 mg.
Eiginleikar: Famcíklóvír er forlyf, sem eftir
inntöku breytist í pencíklóvír. í in vitro
tilraunum hefur verið sýnt fram á virkni gegn
herpes simplex veirum 1 og 2, varicella-
zoster veiru, Epstein-Barr veiru og
cýtómegalóveiru. Pencíklóvír virkjast í
veirusmituðum frumum með hraðri
fosfóryleringu í þrífosfat, fyrir áhrif
týmidínkínasa sem veiran framleiðir.
Þrífosfatið hamlar nýmyndun DNA veiranna. í
ósmituðum frumum, sem komast í snertingu
við pencíklóvír, er þrífosfat vart greinanlegt.
Því er ólíklegt að ósmitaðar frumur verði fyrir
áhrifum af virkum skömmtum af pencíklóvíri.
Aðgengi pencíklóvírs eftir inntöku
famcíklóvírs er 77%.
Ábendingar: Ristill, áblástur á kynfærum
(herpes genitalis).
Frábendingar: Ofnæmi fyrir famcíklóvíri.
Varúð: Sjúklinga með skerta nýrnastarfsemi
skal meðhöndla með lægri skömmtum til að
fyrirbyggja að lyfið safnist fyrir.
Aukaverkanir: Aukaverkanir sem hefur
verið lýst eru enn sem komið er byggðar á
klínískum prófunum. Hinar algengustu,
höfuðverkur og ógleði, voru yfirleitt vægar.
Einnig hefur versnun á lifrarstarfsemi og
brenglun á lifrarprófum verið lýst í klínískum
rannsóknum, en orsakasamband við lyfið er
óljóst.
Algengar (>1%J: Almennar: Höfuðverkur.
Meltingarvegur: Ógleði.
Milliverkanir: Engar milliverkanir sem skipta
máli hafa sést gagnvart címetidíni,
allópúrínóli, teófyllíni og dígoxíni. Próbenecíð
veldur aukinni blóðþéttni pencíklóvírs.
Skammtastærðir handa fullorðnum:
Ristill (herpes zoster): 250 mg þrisvar á dag
eða 500 mg tvisvar á dag í sjö daga.
Meðferð skal hefja strax og unnt er eftir að
útbrot koma í Ijós. Skammtar við skerta
nýrnastarfsemi eru lægri (sjá Sérlyfjaskrá).
Áblástur á kynfærum:
Frumsýking: 250 mg þvisvar á dag í 5 daga.
Endurtekinn herpes á kynfærum: 125 mg
tvisvar á dag í fimm daga.
Mælt er með því að hefja meðferð meðan
sjúkdómurinn er að búa um sig eða svo fijótt
sem unnt er eftir að útbrotin koma í Ijós.
Skammtar við skerta nýrnastarfsemi eru
lægri (sjá Sérlyfjaskrá). Sjúklingar með mikið
skerta nýrnastarfsemi á blóðskilun: Milli þess
sem sjúklingar eru í blóðskilun skulu líða 48
klst. milli skammta. Þar sem 4 klst. skilun
minnkar blóðþéttni pencíklóvírs um u.þ.b.
75% er mælt með því að gefa venjulegan
skammt af famcíklóvír strax á eftir skilun.
Skammtastærðir handa börnum: Klínísk
reynsla af meðferð barna er engin.
Varúðarráðstafanir: Herpes á kynfærum
smitast
við samfarir.
Hætta á smitun
er mest meðan
sjúkdómseinkennin
eru mest.Rétt er að
ráleggja sjúklingum
að forðast samfarir
meðan einkennin eru
til staðar jafnvel þótt
meðferð með veirusýkingarlyfi
sé hafin.
Pakkningar: Verð í janúar 1996.
Töflur 125 mg:
10 stk. (þynnupakkað) kr. 5.634
Töflur 250 mg:
15 stk. (þynnupakkað) kr. 15.474
21 stk. (þynnupakkað) kr. 21.091
Heimildir: 1. Sérlyfjaskrá 1996
2. Degreef et al. Intemational
Journal of Antimicrobial Agents
1994; vol 4, no. 4, 241-246
3. Stephen Tyring et al. Annals of
Internal Medicine 1995; vol 123, no
2, 89-96 4. Boyd M. Antiviral
Chemotherapy 1993; vol 3, 83-95
SB
SmithKlme Beecham
Stefán Thorarensen
SOmnMla i: ■ 10» Kotp.it ■ Slm 16* 6044
EINFÖLD SKÖMMTUN 1
HRÖÐ MINNKUN SJÚKPÓMS-
EINKENNA23