Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.02.1996, Side 73

Læknablaðið - 15.02.1996, Side 73
ENAPRÍL (enalapríl maleat) -áhrifaríkt lyf við háþrýstingi Enapríl (enalapríl maleat) Framleiðandi: Omega Farma ehf. Töflur; C 02 E A 02 R B Hver tafla inniheldur: Enalaprilum INN, maleat, 5 mg, 10 mg eða 20 mg. Eiginleikar: Lyfið hamlar hvata, er breytir angiotensin I í angiotensin II, sem er kröftugasta æðasamdráttarefni likamans. Lyfið erforlyf. U.þ.b. 60% frásogast, umbrýst í lifur í enalaprílat, sem er hið virka efni. Áhrif lyfsins ná hámarki eftir 4-6 klst. og geta haldist í 24 klst. Helmingunartími er um 11 klst., en er mun lengri, ef nýrnastarfsemi er skert. Lyfið útskilst í þvagi. Ábendingar: Hár blóðþrýstingur. Hjartabilun. Frábendingar: Ofnæmi fyrir lyfinu. Meðganga og brjóstagjöf: Lyfið má alls ekki nota á meðgöngu. Lyf í þessum flokki (ACE-hemlar) geta valdið fósturskemmdum á öllum fósturstigum. Lyfið skilst út í brjóstamjólk en áhrif á barnið eru ólíkleg þegar lyfið er notað í venjulegum skömmtum. Varúð: Gæta skal varúðar við gjöf lyfsins hjá sjúklingum með skerta nýrna- og lifrarstarfsemi. Lyfið getur valdið of mikilli blóðþrýstingslækkun, ef sjúklingar hafa misst salt og vökva vegna meðferðar með þvagræsilyfjum. Aukaverkanir: Algengar(> 1%): Ofnæmi, hósti, svimi, höfuðverkur. Sjaldgæfar( 0,1-1%); Þreyta, slen, lágur blóðþrýstingur og yfirlið. Ógleði, niðurgangur. Húðútþot, ofnæmisbjúgur. Vöðvakrampar. Skert nýrnastarfsemi. Kreatínín, urea, lifrarenzým og bilirúbín geta hækkað, en komast í fyrra horf, ef lyfjagjöf er hætt. Milliverkanir: Blóðþrýstingslækkandi verkun lyfsins eykst, ef tíazíðþvagræsilyf er gefið samtímis. Blóðkalíum getur hækkað, ef lyfið er gefið samtímis lyfjum, sem draga úr kalíumútskilnaði. Ef litíum er gefið samtímis, getur enalapríl dregið úr útskilnaði litíums. Ofsömmtun: Gefa saltvatnslausn eða angiotensin II. Einkenni ofskömmtunareru lágur blóðþrýstingurog yfirlið. Skammtastærðir handa fullorðnum: Viðhækkaðan blóðþrýstingiVe njulegur upphafsskammturer 10-20 mg einu sinni á dag. Ekki er mælt með hærri dagsskammti en 40 mg. Við hjartabilun: Upphafsskammtur er 2,5 mg á dag, sem auka má við smám saman á 2-4 vikum. Venjulegur viðhaldsskammtur er 20 mg á dag, gefinn í einum eða tveimur skömmtum. Skammtastærðir handa börnum: Lyfið er ekki ætlað börnum. Pakkningar og verð 1. sept. 1995: Töflur 5 mg: 30 stk. — 1167 kr.; 100 stk. — 3517 kr. Töflur 10 mg: 30 stk. — 1775 kr.; 100 stk. — 5289 kr. Töflur 20 mg: 30 stk. - 2641 kr.; 100 stk. - 7780 kr. o OMEGA FARMA íslenskt almenningshlutafélag um lyfjaframleiðslu, stofnað 1990

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.