Læknablaðið - 15.02.1996, Page 85
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
185
AGA er eitt af stærstu framleiðslufyrirtækjum lofttegunda í heimi,
og mikilvægur söluaðili lofttegunda til lækninga á sjúkrahúsum og heilsugæslu-
stöðvum.
AGA er einnig einn af stærstu styrkveitendum til rannsókna á sviði lækna-
vísinda.
Rannsóknarsjóður AGA er rekinn sameiginlega af Karolinska Institutet og AGA
AB og hefur á undangengnum níu árum veitt styrki til 170 rannsóknarverkefna.
Árið 1996 hefur sjóðurinn eina milljón sænskra króna til úthlutunar.
Fyrir rannsóknaraðila á öllum Norðurlöndum.
Rannsóknarsjóður AGA á sviði læknavísinda stendur öllum rannsóknaraðilum
á Norðurlöndum opinn, hvort heldur læknum, dýralæknum eða tannlæknum.
Ert þú með verkefni í gangi eða hugmynd, sem hefur eða gæti haft þýðingu við
notkun lofttegunda í lækningaskyni? Verkefnið eða hugmyndin getur varðað
bæði hefðbundnar lofttegundir eins og súrefni og glaðloft, sem og aðrar áhuga-
verðar lofttegundir til dæmis koldíoxíð, eðallofttegundir, köfnunarefni eða
háhreinar lofttegundir og loftblöndur.
Aðilar frá Karolinska Institutet og AGA skipa stjórn sjóðsins, sem veitir
styrktarféð.
Prófessor Dag Linnarsson — Karolinska Intitutet
Prófessor Gunnar Bomann — Akademiska Sjukhuset, Uppsala
Dr. Jan Eklund — Karolinska Sjukhuset
Prófessor Hugo Lagercrantz — Karolinska Sjukhuset
Prófessor Göran Hedenstierna — Akademiska Sjukhuset, Uppsala
Prófessor Per Rosenberg — HUCS, Helsingfors
Dr. Lars Irestedt — Karolinska Sjukhuset
Rolf Petersen — AGA AB
Umsóknargögn.
Umsóknargögn eru fáanleg hjá ÍSAGA hf, Breiðhöfða 11, 112 Reykjavík eða
beint frá AGA AB, Medicinska Forskningsfond, S-18181 Lindingö, Svíþjóð.
Umsóknarfrestur rennur út 19. febrúar 1996. Svör við umsóknum berast um
miðjan apríl og úthlutunarathöfnin verður í Stokkhólmi í maí næstkomandi.
Rannsóknarsjóður AGA AB á sviði læknavísinda á öllum Norðurlöndum
ísland: fSAGA hf, Pósthólf 12060,132 Reykjavík, sími 577 3000
Danmörk: AGA A/S, Vermlandsgade 55, 2300 Köbenhavn S, sími: 32 83 66 00
Noregur: AGA AS, Box 6039, Etterstad, 0601 Oslo, sími 22 72 76 00
Finnland: Oy AGA Ab, Karapellontie 2, 02610 Espoo, sími (9) 0-591 61
Svíþjóð: AGA Gas AB, 17282 Sundbyberg, sími 08 706 9500