Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.1997, Síða 15

Læknablaðið - 15.12.1997, Síða 15
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83 801 galla hjá tvíburum fæddum á íslandi á 10 ára tímabili og bera það saman við nýgengi hjarta- galla hjá íslenskum börnum í heild. Efniviður og aðferðir: Rannsóknarhópurinn samanstóð af öllum tvíburum sem fæddust á íslandi á árunum 1986-1995 og greinst hafa með hjartagalla. Upplýsingar fengust frá Hag- stofu Islands um tvíbura fædda á tímabilinu og voru þær bornar saman við sjúkraskrár sér- fræðinga og Ríkisspítala. Þannig fundust allir tvíburar sem greinst hafa með hjartagalla og fæddir eru á rannsóknartímabilinu. Nýgengið var einnig skoðað sérstaklega fyrir fyrri og seinni hluta rannsóknartímabilsins. Þörf á meðferð, árangur meðferðar og dánarorsakir voru einnig skoðaðar. Kí-kvaðratspróf var not- að við tölfræðilega útreikninga þar sem það átti við. Niðurstöður: Nýgengi: Af 1089 lifandi fædd- um tvíburum voru 35 með hjartagalla, eða 3,21%, samanborið við um 1,0% nýgengi í samanburðarhópi. Þessi munur er tölfræðilega marktækur (p<0,001). Nýgengið var 2,13% á fyrri hluta tímabilsins en 3,78% á seinni hluta þess, sem er marktækur munur (p<0,005). Flokkun hjartagallanna: Af 35 tvíburum með hjartagalla voru 15 með alvarlegan galla (þörfnuðust meðferðar). Op milli slegla var algengasti hjartagallinn (40%). Kynjahlutfall: Hlutfallið drengur/stúlka var 0,591 samanborið við 1,1 í samanburðarhópi. Munurinn var ekki marktækur (p>0,05). Samsetning tvíburahóps- ins: Af tvíburum með hjartagalla voru 34% pör þar sem annar tvíburinn var drengur en hinn stúlka, 26% voru drengjapör og 40% stúlkna- pör. Aldur við greiningu: Flestir tvíburanna greindust á fyrstu fimm mánuðum ævinnar. Einungis tvö börn hafa greinst eftir sex mán- aða aldur. Meðferð: Tólf barnanna hafa geng- ist undir hjartaskurðaðgerð, eitt var með- höndlað í hjartaþræðingu og 10 hafa fengið lyfjameðferð. Dánartíðni: Sex tvíburar létust vegna afleiðinga hjartagallans (17%). Dánar- tíðnin meðal tvíburanna er marktækt hærri en meðal samanburðarhóps (p<0,005). Alyktun: Meðfæddir hjartagallar eru algeng- ari meðal tvíbura en hjá samanburðarhópi. Nýgengi þeirra er hærra á seinni hluta rann- sóknartímabilsins. Dánartíðni er einnig hærri meðal tvíburanna. Árið 1991 hófust glasa- frjóvganir á íslandi sem leiddu til mikillar fjölg- unar tvíburafæðinga. Frá sama tíma eykst ný- gengi meðfæddra hjartagalla meðal tvíbura. Frekari rannsókna er þörf til að kanna mögu- leg tengsl þessa. Inngangur Margar rannsóknir hafa verið gerðar á ný- gengi meðfæddra hjartagalla, sem eru meðal algengustu fæðingargalla. Þessar rannsóknir benda flestar til þess að nýgengi meðfæddra hjartagalla sé um 0,8-1,1% (1-3). Fáar rannsóknir hafa hins vegar verið gerðar á faraldsfræði meðfæddra hjartagalla hjá tví- burum og engin rannsókn er til sem nær til heillar þjóðar. Þá eru litlar upplýsingar til um það hvort tíðni og dreifing hjartagalla hjá tví- burum sé frábrugðin því sem almennt gerist. Rannsóknir erlendis frá gefa til kynna að ný- gengið sé hærra hjá tvíburum, eða um 1,5-2,5 sinnum hærra en nýgengi í þjóðfélaginu í heild (2,4-10). Stundum er þó einungis um að ræða hærra nýgengi meðal tvíbura af sama kyni eða eineggja tvíbura (6,9). Berg, Astemborski, Boughman og Ferencz komust að því að í hópi barna með hjartagalla í Baltimore-Washington rannsókninni (4) voru marktækt fleiri tvíburar en meðal samanburð- arhóps (p<0,03). Einnig voru marktækt fleiri stúlkur meðal tvíbura með hjartagalla en með- al tvíbura í viðmiðunarhópi (p<0,005). Hlut- fall eineggja tvíbura meðal tvíbura með hjarta- galla var ekki frábrugðið hlutfalli þeirra í við- miðunarhópnum. Ekki var marktækur munur milli einbura og tvíbura á eðli og dreifingu hjartagalla. Hjartagalli var til staðar í báðum tvíburum úr eineggja pari í 10% tilvika en ein- ungis í 2,5% tilvika meðal tvíeggja tvíbura. Hay og Wehrung (6) fundu aukna tíðni hjartagalla hjá tvíburum miðað við einbura. Það var þó bundið við tvíbura af sama kyni og draga þau þá ályktun að aukningin sé fyrst og fremst meðal eineggja tvíbura. Reyndar var tíðnin meðal tvíbura af gagnstæðu kyni lægri en meðal einbura. Báðir tvíburar voru með hjartagalla hjá 6,1% af tvíburum sama kyns en hjá 3,3% tvíbura af gagnstæðu kyni. Kynja- hlutfall var ekki frábrugðið því sem er meðal einbura. Kallén rannsakaði fæðingargalla hjá nánast öllum börnum fædduin í Svíþjóð 1973-1981 (5). Voru marktækt fleiri tvíburar en einburar með meðfæddan hjartagalla (p<0,01). Örlítil og ómarktæk aukning var á hjartagöllum meðal tvíburapara af sama kyni. Stúlkur með hjarta- galla í hópi tvíburanna voru marktækt fleiri en
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.