Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.05.1998, Qupperneq 51

Læknablaðið - 15.05.1998, Qupperneq 51
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 411 Verða einhverjar hömlur á sölu upplýsinga úr svona einkareknum gagnagrunni? Geta lyfjafyrirtæki til dæmis leitað til starfs- leyfishafa til að fá markaðsupplýsingar hvernig þeirra lyf eru notuð á Islandi. Hvaða aldurshóp- ur notar hvert lyf og svo framvegis. Hverjir nota samkeppnislyfin. Verður hægt að sjá hvaða læknir ávísar hverju lyfi? Verða leyfðar rannsóknir sem stóru lyfjafyr- irtækin gera eftir að lyf hefur verið sett á mark- að. Þá er verið að rannsaka hversu vel lyfið verkar, hvort komi fram einhverjar aukaverk- anir og eiturverkanir og hvers vegna sumir sjúklingar geta ekki notað lyfið. Einnig er ver- ið að rannsaka áhrif lyfja á lífsgæði. Geta tryggingafélög fengið áhættumat á ein- saklingum eða hópum? Þá væru íslenskir sjúklingar farnir að taka þátt í svona rannsóknum og úrvinnslu án þess að gera sér grein fyrir því með því einu að mæta til læknis. Nútíma rannsóknir á DNA og meðferð erfða- fræðilegra upplýsinga er afar umdeilt svið. Gráu er bætt ofan á svart varðandi friðhelgi persónuupplýsinga, ef unnið verður úr erfða- fræðilegum upplýsingum hömlulaust og það ásamt íslenskum ættfræði- og heilbrigðisgögn- um. DNA einstaklings er víst betra auðkenni en fingrafar og það eitt sér talið gefa nánast ótak- markaðar upplýsingar um einstaka persónu og jafnframt upplýsingar um áa í marga ættliði og afkomendur borna og óborna. Verðmæti gagnanna, áhætta Talið er að kostnaður við skráningar sé þriðj- ungur af kostnaði við heilbrigðismál. Heil- brigðismál kosta nú 40-50 milljarða árlega og fara því 13-17 milljarðar árlega í að skrá og nýta upplýsingar. Á síðastliðnum 20 árum hafa Islendingar því varið einum 260-340 milljörð- um króna til þessa verkefnis. Segjum sem svo að mat á verðmæti auðlindarinnar væri 300 milljarðar króna, eða ef til vill 3000 milljarðar. Svona miklar upplýsingar og mikil verðmæti skapa hættu á misferli og afbrotum og má þar til nefna: Upplýsingar verði seldar til dæmis lyfjafyrirtæki sem ekki hefði aðgang að gagna- grunninum. Upplýsingar um heilsufar einstak- linga eða starfshópa væru seldar til hagsmuna- aðila svo sem innlendra eða erlendra trygg- ingafélaga. Möguleikar á fjárkúgun vegna upp- lýsinga um til dæmis rangferðrun barns. Iðnað- amjósnir verði stundaðar. Og síðast en ekki síst að gagnagrunnurinn í heild sinni væri afritaður og seldur. Því felst greinileg áhætta í að leiða öll gögn- in saman í eina tölvu það er hætta á að gagna- gmnnurinn geti valdið einstaklingum eða hóp- um tjóni. Niðurstaða Eg tel að frumvarpið brjóti gegn 71. gr. Stjórnarskrár lýðveldisins Islands um friðhelgi einkalífs, heimilis og fjölskyldu. Framvarpið stangast í grundvallaratriðum á við tölvulögin (3), lög um réttindi sjúklinga (4) og læknalög (5). Af framansögðu má ljóst vera að verulegar hættur felast í því að skrá upplýsingar á heilsu- sviði í allsherjargagnagrunn og ætla má að til lengdar muni það leiða til trúnaðarbrests milli sjúklinga og lækna. I 5. gr. frumvarpsins segir svo: Heilbrigðis- ráðherra veitir leyfi til aðgangs að upplýsing- um úr sjúkraskrám og öðrum heilsufarsupplýs- ingum. Aðgangur skal þó jafnframt háður sam- þykki viðkomandi heilbrigðisstofnunar eða heilbrigðisstarfsmanns sem þær hefur skráð á eigin starfsstofu. Eg dreg þá ályktun að heilbrigðisráðherra hafi ekki heimild til að veita leyfi til aðgangs að upplýsingum úr sjúkraskrám til þeirra nota sem frumvarpið gerir ráð fyrir. Verði frumvarpið hins vegar að lögum er það von mín að læknar muni ekki veita samþykki sitt til þess að heisufarsupplýsingar verði færð- ar í gagnagrunninn. HEIMILDIR 1. Frumvarp til laga um gagnagrunna á heilbrigðissviði. 122. Löggjafarþing 1997-1998. Þskj. 1134-661. mál. 2. Tulinius H. Trúnaður eða leynd. Morgunblaðið 1998, 18. aprfl: 40. 3. Lög um skráningu og meðferð persónuupplýsinga, 1989, nr. 121, 28. desember. 4. Lög um réttindi sjúklinga, 1997, nr. 74, 28. maí. 5. Læknalög, 1988, nr. 53, 19. maí.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.