Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.01.1999, Side 13

Læknablaðið - 15.01.1999, Side 13
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85 1 1 Fig. 1. Annual number ofnew patients entering renal replacement therapy in Iceland 1968-1997. Kviðskilun (peritoneal dialysis) hófst árið 1985. Fyrsta nýrað var grætt í íslenskan sjúk- ling í London árið 1970. íslendingar hafa haft þá sérstöðu að ígræðslur hafa alfarið verið framkvæmdar erlendis en meðferð eftir það verið í höndum lækna hér á landi. Nýrna- ígræðslur hafa til þessa oftast verið fram- kvæmdar á Rigshospitalet í Kaupmannahöfn, en einnig á Salgrenska sjúkrahúsinu í Gauta- borg og Massachusetts General Hospital í Boston. Island er þátttakandi í norrænu sam- starfi um líffæraígræðslur (Scandiatransplant). Tilgangur þessarar rannsóknar var að meta þróun og árangur meðferðar við lokastigs- nýrnabilun á íslandi 1968-1970. Greint verður frá faraldsfræði sjúkdómsins, svo og afdrifum þeirra liðlega 200 sjúklinga sem meðhöndlaðir voru á þessu tímabili. Við höfum borið saman árangur skilunarmeðferðar og nýrnaígræðslu. Þá höfum við borið saman árangur meðferðar við lokastigsnýrnabilun hérlendis og meðal ná- grannaþjóða. Efniviður og aðferðir Gerð var afturskyggn rannsókn á þeim hópi íslenskra sjúklinga er byrjaði í nteðferð vegna lokastigsnýrnabilunar á árabilinu 1968-1997. Teknir voru í rannsóknina allir sjúklingar sem gengust undir meðferð í sex vikur eða lengur. Frá upphafi hefur upplýsingum um alla sjúk- linga sem hefja meðferð vegna lokastigsnýma- bilunar verið safnað í gagnagrunn blóðskilun- ardeildar Landspítalans. Frá 1971 hefur þessi gagnagrunnur átt hlut að gagnagrunni Euro- pean Dialysis and Transplantation Association (EDTA). Upplýsingar fengust úr gagnagrunni blóðskilunardeildar og úr sjúkraskrám. Aflað var upplýsinga um aldur, kyn, orsök nýrnabil- unar, tegund meðferðar við lokastigsnýrnabil- un, dagsetningu upphafs meðferðar, flutning milli mismunandi tegunda meðferðar, dauðs- föll og dánarorsakir. Arlegt nýgengi og algengi meðhöndlaðrar lokastigsnýrnabilunar var ákvarðað í lok hvers árs og greint eftir aldri við upphaf meðferðar, kyni og grunnsjúkdómum. Þá var rannsökuð lifun þessa sjúklingahóps og metnir þættir sem áhrif kunna að hafa á hana. Einnig var metin lifun nýrnagræðlinga. Athugun á lifun sjúk- linga og nýrnagræðlinga er hvarvetna miðuð við fimm ár. Auk þess að tíunda ofangreindar upplýsingar fyrir allt tímabilið og frá ári til árs er sjúklingum skipt í þrjá hópa, einn fyrir hvern áratug, til þess að meta betur þær breytingar sem orðið hafa. Lífár (patient-years) í meðferð- artegund er samanlagður allur tími sem sjúk- lingar eru í viðkomandi meðferð reiknaður í ár- um. Árleg dánartíðni í meðferð við lokastigs- nýrnabilun er skilgreind sem fjöldi látinna á 100 lífár. Við tölfræðilega úrvinnslu var notað forritið Statview (Abacus Concepts Inc., Berkeley,
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.