Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.01.1999, Side 62

Læknablaðið - 15.01.1999, Side 62
54 LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85 þola smækkun. Ekki má rita aftan á ljósmyndir. Ljósrit fylgi hverri mynd, þannig að ekki fari á milli mála hvernig hún snýr. Þetta er sérlega mikilvægt þegar um slœdur er að ræða. Gröf og teikningar skulu vera skýr og snyrtileg. Mikil- vægt er að gröf og teikningar séu einföld og að línur og tákn séu ekki l'leiri en svo, að auðvelt sé að greina. Tölvuunnar myndir berist á disk- lingi ásamt útprenti, taka þarf fram í hvaða vinnsluumhverfi unnið er. Tölur að baki súlum fylgi með. Myndir skulu ekki vera í þrívídd og ekki með bakgrunnsstrikum. Semja þarf sér- staklega um birtingu litmynda. Myndum, sem ekki eru runnar frá höfund- um, skulu fylgja skýringar ásamt skriflegu leyfi útgefanda. Málfar: Greinar skuli vera á góðri íslensku og skal íslenska öll erlend orð og heiti, verði því við komið. Sé íslenska heitið ekki vel þekkt hafið alþjóðlega heitið í sviga á eftir. Þetta skal gert í ágripi komi heitið fyrir þar og síðan aftur í fyrsta skipti er heitið kemur fyrir í megin- texta. Ef ekki er til gott íslenskt heiti er al- þjóðaheitið (latneskt eða engilsaxneskt) notað og skrifað með skáletri. Elugtök sem ekki verða íslenskuð með góðu móti skulu skilgreind í stuttu máli og alþjóðaheitið síðan sett í sviga aftan við skilgreininguna. í megintexta eru skammstafanir ekki notað- ar. Undantekningar eru viðurkenndar fræðileg- ar skammstafanir, til dæmis á sjúkdómaheitum, en þá skal óstytt heiti ávallt standa á undan skammstöfun þegar hún er notuð í fyrsta sinn í textanum. Lyfjaheiti skulu rituð á þann íslenska hátt sem gert er í Sérlyfjaskrá, til dæmis atenólól, dexa- metasón, erýtrómýcín, hýdróklórtíazíð, amíl- óríð, cefradín, ceftríaxón og svo framvegis. Meðferð og mat efnis: Sé frágangur hand- rits ekki í samræmi við ofangreindar leiðbein- ingar verður handritið endursent án frekari um- fjöllunar á því stigi með ábendingum þar um. Að öðru leyti eru öll handrit send í ritrýni utan ritstjórnar. Ritrýnar eru venjulega úr hópi lækna sem teljast sérfróðir um það efni er viðkomandi grein fjallar um. Umsögn þeirra og leiðbein- ingar eru síðan sendar höfundum ineð athuga- semdum frá ritstjórn. Athugasemdir geta lotið að efnisvali, efnismeðferð, túlkun niðurstaðna, töflum/myndum, ályktunum, málfari, stíl og svo framvegis. Höfundar fá ekki að vita, hver dómari er og dómarar fá ekki uppgefin nöfn höfunda eða stofnanir sem höfundar vinna við. Höfundum er skylt að svara gagnrýni, sem fram kann að koma. Ritstjórn er eftir sem áður endanlegur úr- skurðaraðili um birtingarhæfni greinar. Prófarkarlestur: Höfundar fá senda próf- örk að lokinni yfirferð starfsmanna Lækna- blaðsins og skulu þeir lesa próförk og leiðrétta, sé þess þörf, og nota til þess prófarkartákn þau sem eru í íslenskum staðli IST 3. Leiðréttingar skulu greinilega gerðar, svo að auðskilið sé, til hvers er ætlast. Höfundar skulu bera saman handrit og próförk og ganga úr skugga um, að efnið sé rétt upp sett, að villur hafi verið leið- réttar og nýjar hafi ekki slæðst inn. Próförk skal skilað sem allra fyrst. Óleyfilegt er að gera efnisbreytingar í próf- örk. Leiðbeiningar í samantekt Öllum greinum ber að skila í tölvutæku formi ásamt með útprenti. Taka skal fram í hvaða vinnsluumhverfi grein er unnin. Handriti skal skilað með tvöföldu línubili á A4 blöð með 40 mm spássíu vinstra megin. Hver hluti handrits skal byrja á nýrri blaðsíðu í eftirtalinni röð: Titilsíða, höfundar, stofnanir, lykilorð Ágrip og heiti greinar á ensku Ágrip á íslensku Meginmál Þakkir Heimildir Töflur og myndir skulu vera á ensku eða íslensku að vali höfunda Tölvuunnar myndir komi á disklingi ásamt útprenti Sérstaklega þarf að semja um birtingu lit- mynda Höfundar sendi tvær gerðir handrita til rit- stjórnar Læknablaðsins, Hlíðasmára 8, 200 Kópavogur. Annað án nafna höfunda, stofnana og þakka sé um þær að ræða. Greininni þarf að fylgja bréf þar sem lýst er yfir af hálfu þess höf- undar sem annast bréfaskipti að allir höfundar séu lokaformi greinar samþykkir og þeir afsali sér birtingarrétti til blaðsins. Senda má greinar í tölvupósti sem viðhengi. Taka þarf fram vinnsluumhverfi.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.