Læknablaðið - 15.01.1999, Blaðsíða 66
58
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
leggja komandi kjarabaráttu.
Haldin var kjaramálaráðstefna
á í vor sem leið og í kjölfarið
var ákveðið að skipa kjara-
málanefnd til að skipuleggja
aðkomu lækna að næstu kjara-
samningum. Allmargir reynd-
ir samningamenn hætta nú
störfum, en mikilvægt er að
okkur takist að nýta okkur
mikla reynslu þeirra.
Nú er hafin er vinna við að
koma á trúnðarmannakerfi LI.
Verða trúnaðarmenn tengiliðir
lækna og einstaka vinnustaða
við stjórn og skrifstofu LI í
öllum málum er varða hags-
muni félaga. I tengslum við
þetta verkefni hefur stuðn-
ingshópur lækna verið endur-
vakinn, en í honum eru læknar
sem aðstoðað geta félaga LI í
vanda hvort sem hann er af
faglegum eða persónulegum
ástæðum.
Allmargir aðalfundir LÍ
hafa ályktað um mikilvægi
þess að fyrir hendi séu mögu-
leikar á fjölbreyttum rekstrar-
formum í starfi lækna, og að
saman fari fagleg og fjárhags-
leg ábyrgð. Því miður taka
heilbrigðisyfirvöld oftar undir
það í orði en á borði. Skiln-
ingur fyrir faglegum og fjár-
hagslegum kostum sjálfstæðs
reksturs virðist þó aukast.
Stefnu LÍ verður fylgt eftir af
festu í þessum málaflokki á
komandi ári.
Breytinga á stöðu fram-
kvæmdastjóra heilbrigðis-
stofnana sem tóku gildi á ár-
inu hafa tvímælalaust dregið
úr áhrifum lækna á mótun
starfsemi á sínum vinnustöð-
um. Á smærri stöðum úti á
landi verður þessi staðreynd
einna átakanlegust þar sem
læknar bera alla ábyrgð en
hafa takmörkuð áhrif - þessu
verðum við breyta í sátt við þá
sem við störfum með í heil-
briðgisþjónustunni. Slíkbreyt-
ing er forsenda þess að eðlileg
fagleg þróun verði í læknis-
fræði á Islandi og að það tak-
ist að inanna allar læknastöður
í dreifbýli.
Fjölmörg önnur mikilvæg
mál hafa komið til kasta
stjórnar LI, en af þeim má
nefna tilkomu Fræðslustofn-
unar lækna, sem þegar hefur
hafið öflugt starf, Fagráð LI
um samræmdar leiðbeiningar
í læknisfræði og tengingu
læknasamtakanna við verald-
arvefinn. Þá stendur LI í
myndarlegri útgáfu á sögu
læknisfræði á Islandi, og mun
gerast aðili að Rannsóknar-
stofu í heilbrigðissögu.
Ekki verður annáll LI ársins
1998 ritaður án þess að minnst
sé á „gagnagrunnsmálið“. Það
verður að segjast hér að lík-
lega hefur aldrei svo mikil-
vægt mál sem snertir starf
lækna verulega verið afgreitt
af stjórnvöldum á svo skömm-
um tíma og með jafnmikilli
tregðu við að taka til greina
faglegar umsagnir. Nú liggur
fyrir að gagnagrunnsfrum-
varpið er orðið að lögum. en
eftir er að sjá hvernig læknum
gegnur að vinna eftir þeim.
Það sem er hvað óvenjulegast
við þetta mál er að hér virtist
stundum unnið gegn heil-
brigðri skynsemi af slíku of-
forsi að allmargir liggja sárir
eftir. Munu sum sár seint gróa
og kannski aldrei. Erfiðast
þótti mönnum að upplifa þeg-
ar umræðan gerðist persónu-
leg og ódrengileg. Á sama
tíma leitaði stjórn LÍ allra
leiða til að halda umræðunni
eins faglegri og málefnalegri
og kostur var. LI fékk líklega
einn færasta sérfræðing, þótt
víða væri leitað, í öryggismál-
um gagnagrunna í heilbrigðis-
þjónustu til að vera félaginu
til ráðgjafar. Ekki hvarflaði að
Heilbrigðisráðuneytinu að
leita eftir slíkri þekkingu held-
ur lét það væntanlegum starfs-
leyfishafa eftir að verða eins-
konar blaðafulltrúi ráðuneyt-
isins í nær allri umfjöllun og
kynningu á málinu. Slíkt boð-
ar ekki gott varðandi frekari
samvinnu á þeim vettvangi
þegar fagráðuneyti stendur ekki
faglega að verki. Líklega þarf
að ryksuga vel í einhverjum
hornum á þeim bæ á næstunni.
Aðalfundur LÍ hefur markað
félaginu skýra stefnu í þessu
máli en svo virðist sem ekki
sé endanlega bitið úr nálinni
með þetta umfangsmikla mál,
sem hægt hefði verið að ná
sátt um.
Það er eins með mörg önnur
mál sem snúa að læknasam-
tökunum, skoðanir manna eru
skiptar á þeim og þar þarf LI
eins og í öllum málum að
gæta hagsmuna allra sinna fé-
laga, þeirra sem eru með og
hinna sem eru á móti. Til leið-
beiningar eru lög félagsins,
siðareglur lækna og sam-
þykktir aðalfunda. Eitt er víst
að öll viljum við vera félagar í
samhentum og öflugun lækna-
samtökum, þannig hugum við
best að starfi læknisins, getum
haft veruleg áhrif á mótun
þess og heilbrigðiskerfis
framtíðarinnar. Megi sundur-
lyndisfjandinn hverfa út í
hafsauga!
Einn kollegi, sem reyndar
er mikill aðdáandi sígildrar
tónlistar, skaut að mér stað-
færðum texta úr söngleiknum
Tommy hér um daginn - „and
I think '99 is going to be a
good year“.
Gleðilegt nýtt ár!
Guðmundur Björnsson
formaður LI