Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.01.1999, Page 87

Læknablaðið - 15.01.1999, Page 87
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85 75 Fordómarnir hafa minnkað en geta blossað upp aftur þegar minnst varir - segir Ingi Rafn Hauksson formaður Alnæmissamtakanna Ingi Rafn Hauksson líti fyrir húsakynnum Alnœmissamtakanna við Hverfisgötuna. Alnæmissamtökin á fs- landi héldu upp á 10 ára af- mæli sitt í byrjun desember. Formaður þeirra er Ingi Rafn Hauksson og hann samsinnti því sem Sigurður segir um þá breytingu sem tilkoma lyfjanna hefur haft í för með sér fyrir HlV-já- kvæða og alnæmissjúklinga. „Já, lyfin hafa í rauninni gerbreytt lífi okkar. Við horf- um allt í einu fram til þess að lifa í 20-30 ár í viðbót en ekki þrjú eða fjögur eins og margir hafa reiknað með. Það getur verið erfitt að byrja upp á nýtt með nýja lífssýn eftir að vera búinn að sætta sig við að vera að deyja. Þessi breyting hefur ekki síst verið erfið fyrir þá sem brugðist hafa við veikinni með því að deyfa sig með neyslu áfengis eða annarra vímuefna. Þeir þurfa að taka sér tak því það er ekki hægt að neyta áfengis með lyfjunum, það getur unnið gegn áhrifum þeirra. Á því hafa sumir flask- að.“ - Fylgir lyfjunum ekki tölu- vert álag? Töílurnar eru marg- ar og sumir finna fyrir auka- verkunum. „Jú, magnið er mikið. Við grínumst stundum með það að það sé best að borða lyfin með mjólk út á eins og morgun- korn. Og aukaverkanirnar eru miklar þótt þær séu mismun- andi. Sumir eru að taka jafn- mikið af lyfjum gegn auka- verkunum og gegn alnæmis- veirunni svo það bætist alltaf við lyfjaskammtinn. Helstu aukaverkanir lyfjanna eru húðvandamál, doði og exem, og svo nýrnavandamál.“ - En hvernig hafa þeir það sem ekki þola lyfin? „Þeir hafa það ekkert allt of gott. Það er náttúrulega enn verra fyrir þá að horfa upp á alla hina sem þola lyfin. Ég þekki einn sem ýmist er að taka lyf eða hætta á þeim af því hann þolir þau ekki. Hann er alltaf á ferðinni inn og út af spítölum. Það er ekki auðvelt fyrir hann að horfa upp á okkur hina sem erum komnir í fulla vinnu.“ Samfélagið tekur okkur vel - Hvernig tekur lífið við ykkur aftur? „Samfélagið tekur okkur alveg ágætlega. Hins vegar gengur mörgum erfiðlega að breyta lífsmynstrinu frá því að vera heima á örorkubótum og fara svo að vinna. Margir byrja í hlutastarfi og þá skerð- ast örorkubæturnar fljótt og jafnvel hlutfallslega meira en sem nemur laununum. En þeim sem eru komnir á fullt á vinnumarkaði gengur ágæt- lega.“ - En hvernig hefur kerfið brugðist við, heilbrigðis- og félagsþjónustan? „Það er ekkert yfir heil- brigðiskerfinu að kvarta, við fáum alla læknisþjónustu ókeypis sem er meira en gert er í mörgum öðrum löndum. Félagsþjónustan mætti vera betri, það kerfi getur verið ákaflega þungt í vöfurn."
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.