Læknablaðið - 15.11.1999, Page 60
904
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
Högni Óskarsson
Eftirskjálftar aðalfundar 1999
Árið sem er að líða hefur
einkennst jarðfræðilega af
tvennu, bið eftir Suðurlands-
skjálfta og enn meiri bið eftir
Kötlugosi. Sumir höfðu svip-
aðar væntingar til aðalfundar
LI. En eins og í jarðskorpunni,
þá gerðist lítið.
Fyrsti eftirskjálfti
Ekki er laust við að áleitnar
spurningar hafí leitað á hug-
ann eftir lok aðalfundar LÍ í
síðasta mánuði. Ein slík snýst
um það hvort aðalfundir valdi
því hlutverki sem þeim er
ætlað, það er að móta stefnu
félagsins í heilbrigðismálum
og standa vörð um hagsmuni
félagsmanna. Eftir að hafa
setið flesta aðalfundi síðast-
liðinn áratug þá er ég farinn
að hallast að þeirri skoðun að
hvorki aðalfundir né læknafé-
lagið í núverandi mynd valdi
hlutverkinu. Þó ber að geta
þess að stjórn og nefndir hafa
unnið að mörgum málum,
stundum tekist frábærlega,
stundum ekki.
Tæplega 20 ályktunartillög-
ur lágu fyrir aðalfundi, og
hálfur tugur bættist við á fund-
inurn. Tillögurnar fjölluðu um
hin aðskiljanlegustu mál, flest
sjálfsögð, sem stjórn ætti að
leysa innan þess ramma, sem
henni er settur; önnur sem
hafa verið samþykkkt aftur og
aftur, án þess að gára lygnt
yfirborð stjórnsýslunnar.
Einnig voru tvö stórmál til af-
greiðslu. Sextán tillagnanna
voru samþykktar, nokkrum
vísað til stjórnar og aðrar guf-
Högni Óskarsson.
uðu upp. Er ég viss um að
enginn fundarmanna man um
hvað þær snerust eða veit um
afdrif þeirra. í stað þess að
taka fyrir meginþema, sem
ræða má af einhverju sem
nálgast djúphygli, þá varð að-
alfundurinn, eins og svo
margir áður, útþynntur efnis-
lega, kraftlítill, leiðinlegur og
órökvís.
Lítum á stóru málin.
Spenna hafði byggst upp fyrir
gagnagrunnsmálið, ekki síst
fyrir það frumkvæði stjórnar
að leggja fram ályktunartil-
lögu um að gagnagrunnslögin
stönguðust á við siðareglur
lækna. I greinargerð var ekki
að fínna nein haldbær rök
þessu til stuðnings. Talsmenn
tillögunnar staðhæfðu að hún
bryti í bága við alls kyns siða-
reglur og lög, án rökstuðn-
ings. Það var heldur neyðar-
legt fyrir stjórnina, að fyrr á
fundinum staðfestu fulltrúar
World Medical Association að
vinnsla heilsufarsupplýsinga
eins og fram á að fara í gagna-
grunni væri í samræmi við
samþykktir WMA. Tillaga
stjórnar kom breytt úr milli-
nefnd og hljóðaði efnislega á
þá leið, að gagnagrunnslög-
unum væri áfátt í því að þar
væri ekki ákvæði um upplýst
samþykki. Var sú tillaga sam-
þykkt (19:7). Viðbótartillaga
um að þetta skyldi einnig eiga
við um aðra gagnagrunna var
felld (19:12). Rök Þorgeirs
Ljósvetningagoða um að ein
lög skyldu gilda fyrir alla í
þessu landi voru þorra fundar-
manna greinilega ekki kær.
Setur þetta nýkjöma stjórn í
vanda. Önnur viðbótartillaga
var einnig felld (15:10). Hún
var samorða stefnu sem stjórn
LI mótaði í byrjun maí þess
efnis, að gerð yrði krafa um
umfjöllun og samþykki tölvu-
nefndar og vísindasiðanefndar
fyrir rannsóknum í gagna-
grunni ef ekki yrði af upplýstu
samþykki. Að lokum var til-
laga undirritaðs samþykkt um
að stjórn LI fylgdist með að
farið yrði að íslenskum lögum
og alþjóðasamþykktum við
framkvæmd laga um miðlæg-
an gagnagrunn (20:2).
Fyrir utan mótsögnina í
efnislegri niðurstöðu fundar,
það er að bæði beri að fara eft-
ir gildandi lögum og reglum
og eins eftir sérkröfum sem
snerta aðeins einn gagnagrunn
af mörgum, þá er það einnig
áhyggjueíni hve lítil þátttaka
var í atkvæðagreiðslum. Hlaut
fyrri tillagan stuðning 19 af
rúmlega 50 atkvæðisbærum
fulltrúum, sú seinni 20.