Læknablaðið - 15.12.1999, Page 48
Nuvelle (Schering)
TÖFLUR; G 03 F B 01 R, E
Hver pakkning inniheldur 16 hvítar og 12 bleikar töflur.
Hver hvít tafla inniheldur: Estradiolum INN, valerat, 2 mg.
Hver bleik tafla inniheldur: Estradiolum INN, valerat, 2 mg,
Levonorgestrelum INN 75 mícróg.
Eiginleikar: Nuvelle inniheldur estradíól valerat (valerinsýru ester
af náttúrulega estrógen kvenhormóninu, estradíól) og samtengt
prógestogen, levónorgestrel. Estradíól valerat bætir upp
minnkaöa estrógenframleiðslu í líkamanum viö tíöahvörf. Levón-
orgestrel viöbót á síöari hluta hvers tímabils viöheldur reglulegum
tíðahring og vinnur gegn ofvexti í leg-slímhúð. Estradíól valerat og
levónorgestrel frásogast vel frá meltingarvegi og koma fram í
blóöi innan 15 mín. Við frásog og fyrstu umferð um lifur klofnar
estradíól valerat í estradíól og valerin sýru. Á sama tíma um-
brotnar estradíól áfram og er virkasta umbrotsefniö estrón.
Próteinbinding estradíóls er 97%. Estradíól valerat er ekki útskiliö
á óbreyttu formi umbrotsefni estradíóls eru skilin út í þvagi og
galli.
Levónorgestrel er útskiliö sem óvirk umbrotsefni í þvagi og saur.
Ábendingar: Uppbótarmeöferö viö einkennum estrógenskorts
viö tíöahvörf. Til varnar beinþynningu hjá konum meö aukna
áhættu á beinþynningu (þ.e. eftir brottnám eggjastokka, snemm-
bær tíöahvörf, ættgeng tilhneiging til beinþynningar, skert hreyfi-
geta og langvinn meöferð meö sterum og konur undir kjör-
þyngd). Nuvelle dugir ekki sem getnaðarvörn.
Frábendingar: Þungun, truflun á lifrarstarfsemi, gula eöa þrá-
látur kláði á fyrri meögöngu, Dubin-Johnsons heilkenni, Rotor
heilkenni, segabláæöabólga eöa blóðsegamyndun eöa saga um
það, sigðfrumublóðleysi, grunur um hormónatengda sjúkdóma
eöa æxli í legi og brjóstum, ógreind óregluleg blæðing frá legi,
truflun á blóöfituefnaskiptum, saga um meðgöngubólu (herpes
gestationis), otosclerosis sem hefur versnað viö fyrri meðgöngu,
endometriosis, alvarleg sykursýki meö æðabreytingum, brjósta-
kvilli (mastopathy).
Meöganga og brjóstagjöf: Lyfiö á hvorki aö nota á meögöngu-
tíma né af konum meö barn á brjósti.
Aukaverkanir: Langvarandi einhliða meöferð meö estrógenum
getur hugsanlega aukið líkur á illkynja æxlum í legbolsslímhúö og
brjóstum, en sú hætta minnkar viö notkun estrógen-gestagen
blöndu, sem líkir eftir hormónaferli tíðahringsins.
Fyrstu mánuöi meðferðarinnar getur boriö á milliblæöingum og
spennu í brjóstum. Petta eru venjulega tímabundin einkenni og
hverfa við áframhaldandi meöferö.
Algengar (>1%): Brjóstaspenna, höfuöverkur, blæöinga-
truflanir.
Sjaldgæfar (0,1-1%): Bjúgur, vökvasöfnun, uppþemba og aukin
matarlyst.
Önnur einkenni sem geta komið fram eru: kvíði, hjartsláttarónot,
depurö, svimi, meltingatruflanir, verkir í fótum, breytingar á kyn-
hvöt, ógleði, útbrot, uppköst, þyngdarbreyting.
Milliverkanir: Hætta skal notkun á hormónagetnaðar-vörnum
þegar meðferð hefst með Nuvelle og nota getnaöarvarnir sem
ekki innihalda hormón. Lyf sem virkja lifrarenzým, t.d. barbitúröt,
flogaveikilyf og rífampicín, geta dregiö úr verkunum lyfsins.
Varúð: Hætta skal töku lyfsins þegar í stað ef grunur er um þung-
un, ef mígreni eöa slæm höfuðverkjarköst byrja eöa versna viö
töku, ef slys, sjúkdómur eöa ráögerö skurðaðgerð eru talin geta
aukið hættu á segamyndun, við gulu, lifrabólgu, versnun á floga-
veiki og viö verulega hækkun á blóðþrýstingi, viö merki um blóð-
tappa, bláæöabólgu eða segarek. Fyrirliggjandi sléttvöðvahnútar
í legi geta stækkaö vegna áhrifa frá estrógenum. Ef þetta kemur
í Ijós á aö hætta meðferð.
Hjá sjúklingum meö vægan langvinnan lifrarsjúkdóm á að fylgjast
með lifrarstarfsemi á 8-12 vikna fresti. Endurtekin milliblæðing á
meöan á meðferð stendur kallar á athugun á legslímu og jafnvel
töku vefjasýnis.
Örsjaldan hafa komiö fram góökynja og enn sjaldnar illkynja æxli
í lifur viö notkun hormónalyfja af svipuöu tagi og Nuvelle. Af þess-
um sökum skal hafa lifraræxli í huga viö greiningu ef kviöverkir,
stækkuð lifur eöa merki um blæðingar í kviðaholi koma fyrir.
Athugið: Lyfið skal einungis gefiö eftir nákvæma almenna
læknisskoöun og kvenskoðun. Slíka skoðun á aö endurtaka
a.m.k. einu sinni á ári við langtímameðferð, en aö auki í hvert sinn
sem ber á truflunum á blæðingum. Áöur en meðferð hefst þarf aö
útiloka aö þungun sé til staöar.
Skammtastærðir handa fullorðnum: 1 tafla daglega. Meöferö
hefst á 5. degi tíða eða á hvaöa degi sem er eftir tíðahvörf. Fyrstu
16 dagana eru hvítu töflurnar teknar og síöari 12 dagana bleiku
töflurnar. Blæðing, lík tíöum, kemur 2-3 dögum eftir aö byrjaö
hefur verið á nýrri pakkningu. Ekki er gert hlé á milli pakkninga.
Skammtastærðir handa börnum: Lyfiö er ekki ætlað börnum.
Pakkningar og verð:
28 stk. (þynnupakkað) x 1; 1.599 kr.
28 stk. (þynnupakkað) x 3; 3.389 kr.
Thorarensen Lyf
Vatnagarðar 18 • 104 Rcykjavík • Sími 530 7100
nu i/elle
ÖS TRADlÓL VALERAT + LEVÓNORGES TREL
SCHERING
meðferö vi
Östradíólvalerat 2 mg í 28 daga og Levónorgestrel 75
ia síöustu 12 dagana