Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.1999, Síða 48

Læknablaðið - 15.12.1999, Síða 48
Nuvelle (Schering) TÖFLUR; G 03 F B 01 R, E Hver pakkning inniheldur 16 hvítar og 12 bleikar töflur. Hver hvít tafla inniheldur: Estradiolum INN, valerat, 2 mg. Hver bleik tafla inniheldur: Estradiolum INN, valerat, 2 mg, Levonorgestrelum INN 75 mícróg. Eiginleikar: Nuvelle inniheldur estradíól valerat (valerinsýru ester af náttúrulega estrógen kvenhormóninu, estradíól) og samtengt prógestogen, levónorgestrel. Estradíól valerat bætir upp minnkaöa estrógenframleiðslu í líkamanum viö tíöahvörf. Levón- orgestrel viöbót á síöari hluta hvers tímabils viöheldur reglulegum tíðahring og vinnur gegn ofvexti í leg-slímhúð. Estradíól valerat og levónorgestrel frásogast vel frá meltingarvegi og koma fram í blóöi innan 15 mín. Við frásog og fyrstu umferð um lifur klofnar estradíól valerat í estradíól og valerin sýru. Á sama tíma um- brotnar estradíól áfram og er virkasta umbrotsefniö estrón. Próteinbinding estradíóls er 97%. Estradíól valerat er ekki útskiliö á óbreyttu formi umbrotsefni estradíóls eru skilin út í þvagi og galli. Levónorgestrel er útskiliö sem óvirk umbrotsefni í þvagi og saur. Ábendingar: Uppbótarmeöferö viö einkennum estrógenskorts viö tíöahvörf. Til varnar beinþynningu hjá konum meö aukna áhættu á beinþynningu (þ.e. eftir brottnám eggjastokka, snemm- bær tíöahvörf, ættgeng tilhneiging til beinþynningar, skert hreyfi- geta og langvinn meöferð meö sterum og konur undir kjör- þyngd). Nuvelle dugir ekki sem getnaðarvörn. Frábendingar: Þungun, truflun á lifrarstarfsemi, gula eöa þrá- látur kláði á fyrri meögöngu, Dubin-Johnsons heilkenni, Rotor heilkenni, segabláæöabólga eöa blóðsegamyndun eöa saga um það, sigðfrumublóðleysi, grunur um hormónatengda sjúkdóma eöa æxli í legi og brjóstum, ógreind óregluleg blæðing frá legi, truflun á blóöfituefnaskiptum, saga um meðgöngubólu (herpes gestationis), otosclerosis sem hefur versnað viö fyrri meðgöngu, endometriosis, alvarleg sykursýki meö æðabreytingum, brjósta- kvilli (mastopathy). Meöganga og brjóstagjöf: Lyfiö á hvorki aö nota á meögöngu- tíma né af konum meö barn á brjósti. Aukaverkanir: Langvarandi einhliða meöferð meö estrógenum getur hugsanlega aukið líkur á illkynja æxlum í legbolsslímhúö og brjóstum, en sú hætta minnkar viö notkun estrógen-gestagen blöndu, sem líkir eftir hormónaferli tíðahringsins. Fyrstu mánuöi meðferðarinnar getur boriö á milliblæöingum og spennu í brjóstum. Petta eru venjulega tímabundin einkenni og hverfa við áframhaldandi meöferö. Algengar (>1%): Brjóstaspenna, höfuöverkur, blæöinga- truflanir. Sjaldgæfar (0,1-1%): Bjúgur, vökvasöfnun, uppþemba og aukin matarlyst. Önnur einkenni sem geta komið fram eru: kvíði, hjartsláttarónot, depurö, svimi, meltingatruflanir, verkir í fótum, breytingar á kyn- hvöt, ógleði, útbrot, uppköst, þyngdarbreyting. Milliverkanir: Hætta skal notkun á hormónagetnaðar-vörnum þegar meðferð hefst með Nuvelle og nota getnaöarvarnir sem ekki innihalda hormón. Lyf sem virkja lifrarenzým, t.d. barbitúröt, flogaveikilyf og rífampicín, geta dregiö úr verkunum lyfsins. Varúð: Hætta skal töku lyfsins þegar í stað ef grunur er um þung- un, ef mígreni eöa slæm höfuðverkjarköst byrja eöa versna viö töku, ef slys, sjúkdómur eöa ráögerö skurðaðgerð eru talin geta aukið hættu á segamyndun, við gulu, lifrabólgu, versnun á floga- veiki og viö verulega hækkun á blóðþrýstingi, viö merki um blóð- tappa, bláæöabólgu eða segarek. Fyrirliggjandi sléttvöðvahnútar í legi geta stækkaö vegna áhrifa frá estrógenum. Ef þetta kemur í Ijós á aö hætta meðferð. Hjá sjúklingum meö vægan langvinnan lifrarsjúkdóm á að fylgjast með lifrarstarfsemi á 8-12 vikna fresti. Endurtekin milliblæðing á meöan á meðferð stendur kallar á athugun á legslímu og jafnvel töku vefjasýnis. Örsjaldan hafa komiö fram góökynja og enn sjaldnar illkynja æxli í lifur viö notkun hormónalyfja af svipuöu tagi og Nuvelle. Af þess- um sökum skal hafa lifraræxli í huga viö greiningu ef kviöverkir, stækkuð lifur eöa merki um blæðingar í kviðaholi koma fyrir. Athugið: Lyfið skal einungis gefiö eftir nákvæma almenna læknisskoöun og kvenskoðun. Slíka skoðun á aö endurtaka a.m.k. einu sinni á ári við langtímameðferð, en aö auki í hvert sinn sem ber á truflunum á blæðingum. Áöur en meðferð hefst þarf aö útiloka aö þungun sé til staöar. Skammtastærðir handa fullorðnum: 1 tafla daglega. Meöferö hefst á 5. degi tíða eða á hvaöa degi sem er eftir tíðahvörf. Fyrstu 16 dagana eru hvítu töflurnar teknar og síöari 12 dagana bleiku töflurnar. Blæðing, lík tíöum, kemur 2-3 dögum eftir aö byrjaö hefur verið á nýrri pakkningu. Ekki er gert hlé á milli pakkninga. Skammtastærðir handa börnum: Lyfiö er ekki ætlað börnum. Pakkningar og verð: 28 stk. (þynnupakkað) x 1; 1.599 kr. 28 stk. (þynnupakkað) x 3; 3.389 kr. Thorarensen Lyf Vatnagarðar 18 • 104 Rcykjavík • Sími 530 7100 nu i/elle ÖS TRADlÓL VALERAT + LEVÓNORGES TREL SCHERING meðferö vi Östradíólvalerat 2 mg í 28 daga og Levónorgestrel 75 ia síöustu 12 dagana
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.