Læknablaðið - 15.12.1999, Síða 61
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
991
„Hvorki pyntingar né sársaukinn sem heltekur líkama minn
munu þagga niður í mér ... En þögnin sem þú viðheldur mun
hægt og hljótt uppræta mig að eilífu.“
People Against Torture, Kenya
„Frelsi frá pyntingum eru grundvallarmannréttindi.“
Inge Genefke
„Rannsóknir á fórnarlömbunt pyntinga hafa sýnt fram á
mikið þunglyndi og kvíða. Streituröskun eftir áfall (Post
Traumatic Stress Disorder - PTSD) og persónubreytingar eft-
ir hræðilega lífsreynslu eru skildgreind sem beinar afleiðing-
ar pyntinga í skilgreiningu ICD 10 á geð- og atferlisröskun-
um. (F-62 varanlegar persónubreytingar sem ekki eru af völd-
um heilaskaða og -sjúkdóms.)
Við verðum að undirstrika að hvað pyntingar varðar er ekki
unnt að aðgreina sálræn einkenni frá árásunum á líkamann og
hugann - jafnvel eftir að sýnileg ör eða merki hafa horfið.“
Delon Human, Inge Genefke. Joint statement on how to
diagnose torture victims. Torture 1999; 9:83.
legum aðferðum öllu í senn.
Frumkvöðlarnir í baráttu gegn
pyntingum skilgreindu ekki
aðeins afleiðingar pyntinga
heldur einnig markmiðið með
þeim og hverjir eru í áhættu-
hópi, hverjir eiga helst á hættu
að lenda í höndum pyntara og
hvers vegna.
Pyntingum er ekki beitt á
tilviljanakenndan hátt, þær
eru skipulagt valdatæki stjórn-
valda. Þeir sem fyrstir verða
fyrir barðinu á pynturum ein-
ræðisstjórnkerfa eru einstak-
lingar sem berjast fyrir al-
mennum inannréttindum, svo
sem félagafrelsi og málfrelsi.
Vinnubrögð pyntaranna eru
ekki heldur tilviljanakennd.
Pyntarar eru valdir af kost-
gæfni, þeir eru sérþjálfaðir og
læra fljótt hver af öðrum. Að
vera pyntari er ákveðin starfs-
grein.
Teikningar þeirra sem lent
hafa í klóm pyntara sýna að
aðferðirnar eru einkennilega
keimlíkar hvort heldur þeim
hefur verið beitt í Suður-, Mið-
eða Norður-Ameríku, Evrópu,
Asíu eða Afríku.
Niðurstöður kannana ineðal
flóttamanna sem leitað hafa
hælis í Skandinavíu sýna að
20-30% þeirra hafa verið
pyntaðir í heimalöndunum.
Þessir einstaklingar þarfnast
sérhæfðrar, skipulagðrar að-
stoðar til þess að komast út úr
vítahring afleiðinga pyntinga
sem eru bæði líkamlegar, sál-
rænar og félagslegar.
En það er samt hægt að
hjálpa þeim út úr vítahringn-
um. Starf litla læknahópsins
danska sem nú hefur breiðst
um allan heim hefur sýnt það
og sannað.
Mikilvægast af öllu í barátt-
unni gegn pyntingum er samt
umtalið, að brjóta niður þagn-
armúrinn sem viðheldur pynt-
ingunum, að afhjúpa þau
stjómvöld sem byggja vald
sitt meðal annars á pynting-
um: að þola ekki að pyntingar
viðgangist, það er málið.
-bþ-
HEIMILDIR:
Torture: never more 26 June. Copenhag-
en: IRCT; 1998.
Torture 1999; 9: no. 3.
Victims of torture. IRCT; 1999
Athugið að beinn sími
Læknablaðsins
„564 4104