Læknablaðið - 15.12.1999, Page 83
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
1009
Ársþing Skurðlæknafélags íslands og
Svæfinga- og gjörgæslulæknafélags
íslands árið 2000
verður haldið á Hótel Sögu fimmtudaginn 6. og föstudaginn 7. apríl. Ágrip erinda berist fyrir
1. febrúar 2000. Þau ágrip sem samþykkt verða af vísindanefnd félaganna til flutnings á
þinginu verða birt í Læknablaðinu. Ágripin skulu send með tölvupósti sem viðhengi til
Gunnhildar Jóhannsdóttur, sjá netfang að neðan. Ágrip sem ekki er unnt að senda þannig
skulu send á disklingi til ritara þingsins.
Við lok þingsins verða verðlaun afhent fyrir bestu erindin eins og veriö hefur.
• Eftirtalin atriði komi fram í þeirri röð sem hér segir: Titill ágrips, nöfn og vinnustaður
höfunda, inngangur, efniviður og aðferðir, niðurstöður og ályktanir.
• Nafn flytjanda skal feitletrað.
• Hámarkslengd ágripa er 1800 letureiningar (characters).
• Höfundar skulu láta þess skýrt getið hvaða útbúnað í fundarsal þeir óska eftir að nota
við flutning erindisins.
Nánari upplýsingar um þingið veita:
Hannes Petersen Sjúkrahúsi Reykjavíkur
Eiríkur Jónsson Sjúkrahúsi Reykjavíkur
Helgi H. Sigurðsson Landspítalanum
Þorsteinn Jóhannesson Fjórðungssjúkrahúsinu á ísafirði
Aðalbjörn Þorsteinsson Landspítalanum
Felix Valsson Landspítalanum
Sveinn Geir Einarsson St. Jósefsspítala, Hafnarfirði
Einar Einarsson Lækningu, Lágmúla
Ritari þingsins er Gunnhildur Jóhannsdóttir, handlækningadeild Landspítalans, sími: 560
1330, bréfsími: 560 1329, netfang: gunnhild@rsp.is
Heilsustofnun NLFÍ
Læknir óskast til afleysinga
Læknir óskast til starfa við Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði. Um er að ræða 12 mánaða
afleysingastöðu sérfræðings sem möguleiki er að framlengja til lengri tíma. Æskilegt er að
viðkomandi sé sérfræðingur í endurhæfingar-, hjarta-, gigt- eða taugalækningum. Þá gæti
staðan verið tilvalin fyrir reyndan heimilislækni, sem vill breyta til um tíma, með áhuga eða
reynslu í endurhæfingu og meðferð stoðkerfisvandamála.
Heilsustofnun er staðsett í friðsælu og fallegu umhverfi. í stofnuninni er starfandi framsæk-
ið teymi fagfólks sem notar það besta úr hefðbundinni læknisfræði og náttúrulækningum til
endurhæfingar og forvarna gegn sjúkdómum. Vinnuandi er eins og best verður kosið.
Staðan er laus eftir nánara samkomulagi. Upplýsingar veitir Guðmundur Björnsson yfir-
læknir í símum 483 0300 og 581 1821.