Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.12.1999, Side 84

Læknablaðið - 15.12.1999, Side 84
1010 LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85 FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Á AKUREYRI Yfirlæknar Lausar eru til umsóknar tvær stöður yfirlækna við svæfinga- og gjörgæsludeild. Störfunum fylgir vaktaskylda og þátttaka í kennslu heilbrigðisstétta. Góð vinnuaðstaða og tækjakostur eru á svæfinga- og gjörgæsludeild. Framkvæmdar eru 3.500 skurðaðgerðir á ári að meðaltali. Deildin veitir einnig þjónustu við verkjameðferð við fæðingar og vegna langvarandi verkja. Á gjörgæsludeild eru um 450 innlagnir á ári að með- altali. Deildin hefur einnig umsjón með vöknun. Starfinu fylgir umsjón með daglegum rekstri á gjörgæsludeild, eftirlit með tækjabúnaði og skráningakerfi deildarinnar og kennsla og þjálfun heilbrigðisstarfsfólks innan sjúkrahússins. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningum sjúkrahúslækna. Nánari upplýsingar gefur Girish Hirlekar, yfirlæknir svæfinga- og gjörgæsludeiidar í síma 463 0100. Umsóknir ásamt upplýsingum um námsferil, fyrri störf og reynslu í kennslu og vísindastörf- um, sendist á þar til gerðum eyðublöðum í tvíriti til Þorvaldar Ingvarssonar, framkvæmda- stjóra lækninga, fyrir 20. desember næstkomandi. Öllum umsóknum um störfin verður svarað. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri - reyklaus vinnustaður - Heimasíða Læknafélags Islands http://www. icemed. is Á heimasíðu Læknafélags íslands er meðal annars að finna upplýsingar um stjórn LÍ og heiðursfélaga, lög félagsins, Codex Ethicus, ýmis önnur lög og reglugerðir er lækna varðar, samning sjúkrahúslækna, úrskurð Kjaranefnd- ar, gjaldskrá heilsugæslulækna, starfsemi skrifstofu LÍ, sérgreina- og svæðafélög lækna, Læknablaðið, læknavefinn, læknaskrár, Fræðslustofnun lækna, Orlofsnefnd læknafélaganna, Lífeyrissjóð lækna auk þess sem vísað er í margvíslegar tengingar á netinu sem geta komið sér vel.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.