Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2007, Blaðsíða 27
DV Helgarblað Föstudagur 11. maí 2007 27
arðaloforðum með öllum þeim
samningum sem hafa verið undir-
ritaðir frá áramótum,“ bendir hún
á. „Auðvitað allt með fyrirvara um
samþykki Alþingis, en það er búið
að skuldbinda næstu ríkisstjórn
mikið. Ég er mjög sátt við að vera að
hætta í stjórnmálum og það er nota-
legt að hætta sáttur. Samfylkingin er
á góðu róli, er komin til að vera og
í mínu kjördæmi eru afburða ein-
staklingar sem ég hef mikla trú á.
Björgvin og Lúðvík með reynsluna,
Róbert og Guðný fersk og flott.“
Þegar Margrét talar um alþingis-
menn segir hún alltaf „við“ en ekki
„þeir“. Þar sem hún hefur afgerandi
skoðanir á því hvernig breyta má
viðhorfi almennings til þingsins
liggur beinast við að spyrja hana
hvort hún hafi ef til vill hugsað sér
að gerast markaðsstjóri Alþingis?
„Nei, ekki aldeilis!“ svarar hún.
„Þá hefði ég verið þingmaður áfram
og sótt um að verða forseti þings-
ins. Það er mjög langt í að ég fari á
eftirlaun og þótt biðlaun alþingis-
manns séu vissulega betri en marg-
ur verkamaðurinn hefur, þá hyggst
ég ekki vera á þeim heldur fara út
á vinnumarkaðinn. Mig langar að
takast á við eitthvað sem er krefj-
andi. Heilbrigðismálin hafa heill-
að mig sem og fangelsismálavinna
með börn og unglinga.“
„Mér finnst gaman að öllu kynn-
ingarstarfi þannig að tækifærin eru
óteljandi. Mér hefur dottið í hug að
opna ráðgjafarstofu og aðstoða fólk
við hvernig á að komast gegnum
kerfið, enda þekki ég vel til þeirra
mála eftir störf mín sem alþingis-
maður. En ég kvíði ekki framtíðinni.
Ef mér bjóðast ekki verkefni þá bý
ég þau til. Mér leiðist aldrei.“
Margrét Frímannsdóttir er mik-
il manneskja. Burtséð frá hvar
fólk stendur í pólitík er alveg víst
að margir munu sakna hennar af
Alþingi, jafnt almenningur sem
starfsfólk þingsins, sem flutti henni
kveðjusöng á Stokkseyri.
„Þau höfðu breytt textanum
við Braggablús og sungu til mín
Möggublús. Málverkið sem þau
gáfu mér heitir „Byr undir báða
vængi“ og svo gáfu þau mér ynd-
islega plöntu. Og nei, ég gat ekki
haldið aftur af tárunum. En það eru
hins vegar ekki tíðindi þótt ég tár-
ist. Ég græt ef ég sé eitthvað fallegt
eða horfi á sorglega bíómynd... Ég
er tilfinningavella!“
annakristine@dv.is
„Það er alveg ljóst
að Alþingi þarf að
draga úr neikvæðu
umræðunni, opna
jafnvel störf þingsins
þannig að fólk
geti fylgst með
nefndarfundum
nema þegar fjallað
er um mál sem varða
einstaklinga eða önnur
trúnaðarmál.”
Fædd í Reykjavík 29. maí 1954. Kjörforeldrar: Frí-
mann Sigurðsson (f. 20. okt. 1916, d. 5. apríl 1992) yf-
irfangavörður á Litla-Hrauni og Anna Pálmey Hjart-
ardóttir (f. 29. jan. 1910) húsmóðir, amma Margrétar.
Foreldrar: Hannes Þór Ólafsson (f. 22. febr. 1931, d.
29. maí 1982) og Áslaug Sæunn Sæmundsdóttir (f. 22.
ágúst 1936).
Fyrrverandi eiginmaður (3. júní 1972) Baldur Birg-
isson (f. 30. ágúst 1952) skipstjóri. Þau skildu. Börn
Margrétar og Baldurs: Áslaug Hanna (1972), Frímann
Birgir (1974).
Eiginmaður (12. ágúst 1990) Jón Gunnar Ottósson
(f. 27. nóv. 1950) náttúrufræðingur, forstjóri Náttúru-
fræðistofnunar Íslands. Stjúpbörn Margrétar og börn
Jóns Gunnars: Auður (1973), Rannveig (1978), Ari
Klængur (1980).
Margrét lauk gagnfræðaprófi og landsprófi frá
Gagnfræðaskóla Selfoss. Auk þess stundaði hún nám
í öldungadeild Fjölbrautaskóla Suðurlands. Störf hjá
Hraðfrystihúsi Stokkseyrar, verslunarstörf. Kennari
við grunnskóla Stokkseyrar, leiðbeinandi við félags-
málaskóla UMFÍ.
Stjórnmálaferill:
Alþingismaður Suðurlandskjördæmis 1987-2003
(Alþýðubandalag og Samfylking), alþingismaður
Suðurkjördæmis síðan 2003 (Samfylking).
Varaþingmaður Suðurlandskjördæmis frá í októb-
er 1983 og frá október 1984 til janúar 1985.
Formaður þingflokks Alþýðubandalagsins 1988-
1992. Formaður þingflokks Samfylkingarinnar 2004-
2006.
Fjárlaganefnd 1991-1995 og 2001-2003, heilbrigðis-
og trygginganefnd 1993-1995 og 1996-1998 og 2001-
2004, landbúnaðarnefnd 1995-1996 og 2005-2006,
menntamálanefnd 1995-1996, utanríkismálanefnd
1996-2000 (varformaður 1996-1998), umhverfisnefnd
1998-1999, efnahags- og viðskiptanefnd 1999-2001,
félagsmálanefnd 2003-2004, sérnefnd um stjórnar-
skrármál 2005-2006.
Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins 1996-2004 og
2005-, Íslandsdeild Alþjóðaþingmannasambandsins
1991-1999, Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins 2003-
2004.
Oddviti Stokkseyrarhrepps 1982-1990.
Í Vestnorræna þingmannaráðinu 1988-1990.
Sat á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 1989 og
1990.
Í stjórnarnefnd Ríkisspítalanna 1993-1995.
Í stjórn og formaður kjördæmisráðs Alþýðubanda-
lagsins á Suðurlandi.
Í stjórn Alþýðubandalagsins 1983-1987.
Formaður Alþýðubandalagsins 1995 fram að stofn-
un Samfylkingarinnar.
Talsmaður Samfylkingarinnar í kosningunum
1999.
Varaformaður Samfylkingarinnar 2000-2003.
Margrét Sæunn FríMannSdóttir