Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2007, Page 57
Skilur
gullið frá
draslinu
Bandarísku ólíkindatólin í
hljómsveitinni Rage Against
The Machine er komnir
aftur eftir sjö ára fjarveru.
Sögusagnir um að hljóm-
sveitin sé á leið í hljóðver
á nýjan leik eru komnar
á kreik. Endurkoma
þeirra á Coachella
hátíðinni í síðasta
mánuði þótti mögn-
uð. Fjórir tónleikar
hafa þegar verið
skipulagðir og er
sveitin sögð
vera á leið í
tónleikaferð
um heim-
inn.
Bandaríska sveitin Rage Against
The Machine er komin aftur sam-
an. Hljómsveitin fór mikinn all-
an tíunda áratug síðustu aldar,
gaf út breiðskífur á borð við Evil
Empire, Battle of Los Angeles og
seldu milljónir platna um all-
an heim. Árið 2000 lagði þessi
róttæka sveit upp laupana og
stofnuðu meðlimir sveitarinn-
ar að Zack de la Rocha undan-
skyldum, hina bitlausu sveit
Audioslave, sem nú hefur liðið
undir lok.
Eftir mörg árangurslaus
boð um að koma saman aftur,
samþykkti Rage Against The
Machine loks að koma fram
á Coachella tónleikahátíðinni
sem fram fór í síðasta mánuði í
Kaliforníu. Meðlimir sveitarinn-
ar létu hafa það eftir sér í viðtali
að ein af ástæðunum fyrir end-
urkomunni væri síðasta til-
raun þeirra til þess að fella
stjórn George W. Bush
forseta.
Grátið og faðmast
Viðmælandi DV
lýsti endurkomu tón-
leikum Rage Against
The Machine sem
tilfinningaþrungnu
kvöldi, áhorfendur hafi sýnt allar til-
finningar, grátið, hlegið og faðmast.
Tónleikarnir þóttu heppnast vel og
mátti sjá á andlitum sveitarmanna
að þeir nutu þess að spila saman, en
sögur um ósætti á milli de la Rocha og
Tom Morello, gítarleikara hafa lengi
verið uppi. „Rétta þarf yfir ríkisstjórn
Bandaríkjanna, hengja þá og skjóta
þá. Þá þarf að meðhöndla á sama hátt
og stríðsforingja nasista,“ sagði de la
Rocha við mikinn fögnuð tónleika-
gesta.
Ný plata í vændum?
Tónleikarnir á Coachella hátíðinni
áttu upphaflega að vera einu tónleik-
ar í endurkomu sveit-
arinnar. Nú hafa
fjórir tónleik-
ar verið skipu-
lagðir á næst-
unni og hávær
orðrómur er uppi
um að stórt heimstón-
leikaferðalag sé í vændum.
Tom Morello hefur einnig gefið í
skyn að hljómsveitin kunni að vera
á leið í hljóðver á næstu mánuðum.
„Endurkoma okkar er ekki bundin í
fortíðarþrá, tónlist og boðskapur okkar
hafa sjaldan verið jafn mikið í anda líð-
andi stundar og einmitt nú.“
valgeir@dv.is
SÍÐASTA TILRAUNIN TIL
ÞESS AÐ FELLA BUSH
DV Helgarblað föstudagur 11. maí 2007 51