Læknablaðið : fylgirit - 01.08.1978, Side 12

Læknablaðið : fylgirit - 01.08.1978, Side 12
10 aðal þjóðhollra manna að hugsa fyrst um ai- menningsheill. Sé þetta haft að leiðarljósi, þá hef ég þá von og þá trú, að stjórn spítalans ráði því stóra eins og það væri smátt, að Landakots- spítali eigi langa æfi fyrir höndum, að hann standi nú við upphaf glæsilegrar þroska- brautar. HÁTÍÐARFYRIRLESTUR 1 tilefni 75 ára afmœlis St. Jósefsspítala, Landakoti bauð spítal- inn prófessor R. Hermon Dowling hingað til þess aö halda fyrir- lestur á einum hinna vikulegu frœðslufunda. Var fyrirlesturinn mjög vel sóttur og hafði öllum lœknum á höfuðborgarsvœðinu verið boðið að hlýða á fyrirlesturinn. 1 grein þeirri, sem hér fylgir á eftir hefir prófessor Dowling dregið saman meginatriði fyrirlestursins. Prófessor R. Hermon Dowling, M.D., F.R.C.P., lauk læknanámi við Queen’s University í Belfast 1959 og breska lyflœknaprófinu 1962. Eftir að hafa lokið upphafi sérnáms í Belfast starfaði hann um 10 ára skeið með prófessor C. C. Booth við Royal Postgraduate Medical School (Hammersmith Hospital) í London. 1966—1968 starfaði prófessor Doivling að rannsóknum með Dr. Donald Small og Prof- essor Franz Ingelfinger við Boston University and Medical School. Eftir það hóf hann aftur störf við Hammersmith Hospital þar til hann var ráðinn til að setja á stofn méltingarfræðideild við Guy’s Hospitál and Medical School 1974. Hann varð prófessor árið 1975. Hann er höfundur fjölmargra vís- indaritgerða í frœðigrein sinni og er þekktastur fyrir rannsóknir sínar á mjógirnissjúkdómum og efnahvörfum gállsýru.

x

Læknablaðið : fylgirit

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.