Læknablaðið : fylgirit - 01.08.1978, Blaðsíða 42
40
auga og beitir aðferð, sem hann var vanur
að gera: hann gerir lituhögg og „Graefe’s
mod. perifer linear extractio“. Tókst sú
aðgerð vel. Fimm dögum síðar reynir Björn
að nema brott augasteininn á hægra auga,
án þess að gera lituhögg, en hann náði
ekki haldi á steininum og týndist hann í
glervökva. Nokkrum dögum síðar náðist
augnsteinninn þó við illan leik. Er sjúk-
lingur fór til síns heima hafði hún fengið
sæmilega sjón á það auga, sem fyrr var
skorið og gat lesið með + 13.0 gleri. Sjá
1. sögu. Lá hún 11 daga á spítalanum og
var dvalarkostnaður kr. 16.50.
Annar sjúklingur Björns á Landakoti var
38 ára gamall karlmaður til heimilis á
Patreksfirði. Var hann lagður inn 27. des.
1902. Hafði hann fyrir rúmu ári fengið
heimakomu í andlit með þeim afleiðingum
að drep kom í augnalok vinstra auga, sem
úthverfðust og gat sjúklingur því ekki
lokað auganu og var það að kalla bert.
Hafði myndazt sár á glæru af þeim sök-
um.
í klórcformsvæfingu er gerður húðflutn-
■ingur af framhandlegg á bæði augnalok
a.m. Krause.
Þpss háttar -aðgerðjr voru þá sjaldgæfar
á Norðurlöndum. Wolfe og Krause lánað-
ist fyrstum manna að flytja húð í fullri
þykkt úr einum stað á annan árið 1875.
Að mánuði liðnum fer sjúklingur heim
og eins og stendur í dagbókinni: „gróinn.
bætur þykkar, einkum sú efri, en eru að
þynnast“. Er þetta efalaust fyrsta lýtaað-
gerð, sem gerð er á spítalanum. Sjá 2. sögu.
Björn er frumkvöðull húðflutninga hér
á landi. Gerði hann allmargar slikar að-
gerðir með góðum árangri, en fyrstu að-
gerðina af þessu tagi sem vitað er um
gerði hann árið 1894.
Fyrstu glákuaðgerðina gerir Björn á
Landakoti 2. sept. 1903. Gerir hann lituhögg
(iridectomia) á glákublindu auga vegna
verkja, en þrýstingur lækkaði ekki og var
augað tekið eftir 3 vikur. Sjá 3. sögu.
Næsta glákuaðgerð er skráð 9. sept. 1903
á 64 ára gamalli konu frá Víðidalstungu,
sem var orðin blind á öðru auga og með
skert sjónsvið og háþrýsting með regnboga-
sjón á hinu. Sjá 4. sögu.
Beitir hann sömu aðferð þ.e. lituhöggi,
sem var eina aðgerðin, sem þekktist við
giáku á þeim tíma, ef undan er skilinn
hvítuskurður (sclerotomia), en Björn hætt-
ir að beita þeirri aðgerð árið 1896, er hann
sá að hún bar ekki tilætlaðan árangur.
Nokkru áður (1894) byrjaði hann á litu-
höggi, sem bar aðeins árangur, ef veita
myndaðist, en það var sjaldan. Þar sem
lituhöggið var gagnslítið við hægfara gláku
framkvæmir Björn tiltölulega fáa gláku-
skurði, unz han byrjar að gera litustag
(iridencleisis), sem er veituskurður og
reyndist farsæl glákuaðgerð og var þeirri
aðferð mikið beitt á Landakoti næstu sex
áratugina.
Árið 1909, síðasta árið, sem Björn lifði
gerbreyttist aðstaða hans til greiningar
hægfara gláku, því þá fær hann augn-
þrýstingsmæli (Schiötz tonometer), sem
gerir honum fært að greina þennan lævisa
sjúkdóm af meira öryggi og mun fyrr en
þegar hann þurfti eingöngu að styðjast við
augljós einkenni.
Þriðja marz þetta sama ár gerir hann
veituskurð, litustag (iridencleisis a.m.
Holth), sem er fyrsta raunhæfa aðgerðin
við hægfara gláku er gerð var hér á landi.
Ekki er vitað hvar Björn gerði þessa að-
gerð. Sjúklingurinn er hvorki lagður inn
á Landakot né Franska spítalann, þar sem
Björn gerði stundum aðgerðir. Fyrs’ta litu-
stagið á Landakoti gerir Björn 23. marz
1909, á 61 árs gömlum Reykvíking. Sjá
5. sögu.
Beitir Björn nú eingöngu litustagsað-
fe.ðinni við hægfara gláku og þá fáu mán-
uði, sem hann á eftir ólifaða gerir hann
20 slíkar aðgerðir á Landakotsspítala.
Holth’s aðgerðinni er lýst í 6. sögu. Tekið
er fram að tíu dögum eftir aðgerðina er
kominn „stór ödemkúfur yfir örinu“, sem
sýnir að veitan er opin og aðgerðin hef-
ur borið tilætlaðan árangur.
Þann 14. sept. 1909 gerir Björn nýja
glákuaðgerð, sem kennd er við Borthen
augnlækni í Bergen. Má merkilegt heita
að Björn gerir þessa aðgerð ári áður en
henni er lýst í fagtímariti. Aðgerðin er
fólgin í því að draga lituna undir augn-
slimhúðina án þess að klippt sé upp i hana
(iridotasis).
Aðgerð við bráðagláku gerir Björn í
Landakoti 5. sept. 1905 á 27 ára gamalli
konu í Reykjavík. Sjá 7. sögu. Gerir hann