Læknablaðið : fylgirit - 01.08.1978, Síða 44

Læknablaðið : fylgirit - 01.08.1978, Síða 44
42 hann fór til Hafnar að afloknu embættis- prófi árið 1901. Andrés aflaði sér staðgóðrar menntunar í augnlækningum á árunum 1907—1910. Stundaði hann nám í Lundúnum, Kaup- mannahöfn, Osló og Vínarborg. Sjúkraskrár Andrésar hafa ekki varð- veitzt, svo að lítið er vitað um sjúklinga hans, en í sjúklingadagbók St. Jósefsspítaia eru skráðir sjúklingar þeir, sem hann legg- ur inn á spítalann, þau tæp þrettán ár, sem hann starfar í Reykjavík. Fyrsta sjúkling sinn leggur Andrés inn á Landakotsspítalann 11. maí 1910, 53 ára karlmann frá Patreksfirði með hægfara gláku. Gerir hann á honum frárennslis- aðgerð, þá fyrstu sinnar tegundar hér á landi, gluggskurð í hvítu með lituhöggi (sclerectomia ad modum Lagrange)- Frans- maðurinn Félix Lagrange (1857—1928) kom fyrstur fram með þessa aðgerð við hægfara gláku um svipað leyti og Holth með litustagið og Elliot með hvítuborunina (trepanatio corneo-scleralis ad modum Elliot), sem Andrés tekur upp árið 1914. Báðar þessar aðferðir hafa náð mikilli út- breiðslu og þá einkum hvítuborunin. í 1. töflu er greint frá helztu augnaðgerð- um, er Andrés gerir á Landakoti. Af 427 sjúklingum, sem hann leggur inn á spítal- ann er enginn sjúkdómsgreining í sjúk- lingadagbókunum á 89 sjúklingum, né held- ur hvaða aðgerð er gerð, eins og kemur fram í töflunni. Taflan gefur þó góða mynd af því, hvaða augnaðgerðir voru tíðastar. Eru glákuað- gerðir lang algengastar eða 195 af bók- færðum aðgerðum. Andrés leggur Lag- range aðferðina á hilluna árið 1914 og not- ar síðan eingöngu aðferð Elliots og fær að því er virðist betri árangur með henni, enda fjölgar glákuaðgerðum hans eftir það. í tíð Björns Ólafssonar er tárapoki ekki t.ekinn vegna bólgu og ígerðar í tárapoka. Andrés kemur heim með nýja aðferð við þessum kvillum. Hann nemur burtu tára- pokann og gerir hann a.m.k. 25 slíkar að- gerðir. Skjálgaðgerðir hans eru fáar. Gerir hann yfirleitt sinaskurð, stundum framdrátt á vöðva. Hann segir og frá styttingu á ytri réttilvöðva og lengingu á þeim innri. Flest- ar skjálgaðgerðir gerði hann á ungu fólki. Ekki veit ég hverskonar dreraðgerðir hann gerði, því í spítaladagbókunum er aðeins getið um „cataract operatio" og eru 53 bókfærðar þau ár sem hann starf- aði. Augnaloksaðgerðir gerir Andrés mjög fáar. Aðeins tvær aðgerðir eru skráðar vegna úthverfingar augnaloks og engar meiri háttar skapnaðaraðgerðir. Aðgerð, sem vert er að minnast á, er burtnám aukatárakirtla (gl. lacrimalis accessoriae) vegna tárarennslis eftir brott- nám tárapoka. Gerir hann þessa aðgerð a.m.k. tvisvar sinnum Einnig gerir hann lituhögg til þess að mynda nýtt ljósop, en sjúklingur hafði vagl á glæru í því tilviki. Til lyflæknismeðferðar á spítalanum á vegum Andrésar voru sjúklingar með eft- irfarandi sjúkdómsgreiningu: Neuritis op- tica, iridocyclitis, iritis rheumatica, iritis tuberculosa, ulcus serpens, keratitis og keratitis parenchymatosa. Fyrstu augniæknarnir urðu ekki lang- lífir. Andrés dó aðeins 47 ára gamall 9. febrúar 1923 á Landakotsspítala eftir mjög þunga legu. Að honum látnum skrifar landlæknir, Guðmundur Björnsson, í Lögréttu m.a.: „ . . . og mér er nær að halda að enginn íslendingur sakni þessa manns eins sárt og einmitt þeir sem bezt kunnu manninn að meta, en það vorum við læknar landsins. . . . A.F. var einn af fyrstu lærisveinum mínum og Guðmundar Magnússonar og var okkur báðum ljóst, að við höfðum þar gott mannsefni um að fjalla . . . Það er víð- kunnugt að Andrés gamli Fjeldsted var mesti listamaður, einkanlega á tréskurð. Og það má vel vera föðurarfur, að hugur Andrésar unga snerist snemma að þeirri grein læknisfræðinnar, sem var einna list- fengust, en það eru augnlækningar. Andrés var mikill maður vexti og prýði- lega vaxinn. Hann var göfugmenni og scmadrengur. Það er hart að missa slíka menn á bezta aldri. En það er gott að hafa átt þá, því að það eru þesskonar menn, sem hafa verið líf og sál, sómi og styrkur okkar litlu þjóðar frá því hún var í heim- inn borin“. (Lögrétta XVIII 4.—5. tbl.). Er Andrés dó var annar augnlæknir fyr- ir í Reykjavík, Helgi Skúlason, er hafði
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.