Læknablaðið : fylgirit - 01.08.1978, Page 57

Læknablaðið : fylgirit - 01.08.1978, Page 57
55 um yfir í blóðið. Það súrefni, sem í stað- inn flæðir í blöðrurnar nýtist við eðlileg efnahvörf. Höfundarnir mæla með því að gefa 70% súrefni og halda PaOi> um 250— 300 mm Hg. Þessi meðferð hefur borið góðan árangur(a e 10). Vitað er að mikið súrefni í langan tíma hefur eiturverkanir. Auk augnskemmda (retrolental fibroplasia) hjá börnum, er þekkt erting í hálsi og lungnabjúgur. Súr- efni gefið í háþrýstiklefa getur valdið al- varlegum krömpum. í geimferðum er gef- ið 100% súrefni með hálfrar loftþyngdar þrýstingi (PaO^ 247 mm Hg) og þolist vel í langan tíma. Það virðist því vera þrýst- ingurinn sem skiptir meira máli en þéttnin. Við eðlilegan þrýsting (1 loftþyngd) hafa ekki komið fram eiturverkanir við súrefni undir 50%, jafnvel í langan tíma, og ekki við 100% súrefni gefið í 24 klukkustundir eða minna. Fyrstu einkenni um eituráhrif eru særindi fyrir brjósti og minnkað vital capacitet. SJÚKRATILFELLI. „64 ára karlmaður innlagður til rannsóknar vegna slímniðurgangs. Hægðir sjúklings hafa í rúmt ár fyrir innlögn verið óreglulegar, á nokkurra daga fresti og spörðóttar en þarf oft á dag að losa sig við slím og froðukenndan vökva, með eða án flatus. Ekki hefur borið á blæðingu frá endaþarmi og engin svæsin verkjaköst en vægir kveisukenndir verkir í kvið. Sjúklingur hefur ekki einkenni frá efri meltingarvegum, þolir allan mat, hefur ekki megrast. Önnur kvörtun sjúklings er bakverkur og öðru hvoru sviði við þvaglát. Árið 1975 lá sjúklingur á Landakoti vegna óþæginda og biæðinga frá endaþarmi. Röntgen- skoðun á ristli sýndi þá loftblöðrur í nánd við flexura lienalis. Jafnframt var grunur um polyp i sigma og var þá gerð ristilspeglun (110 cm) og sást þá gyllinæð. en ekki annað at- hugavert. Eftir aðgerð við gyllinæð löguðust einkenni sjúklings. Helstu önnur atriði heilsufarssögu eru: Heyrnadeyfð á vinstra eyra eftir eyrnabólgu, höfuðkúpubrot í umferðarslysi 1976, fyrri saga um áfengismisnotkun og endurtekin þunglynd- isköst ásamt svefnleysi og taugaspennu. Sjúk- lingur tekur geðlyf eftir fyrirmælum geðlækn- is. Hann reykir 1—2 pakka af vindlingum á dag, hefur nokkurn hósta, en enga sögu um greinda lungnasjúkdóma. Við skoðun fannst ekkert athugavert nema offita, lungnahlustun var eðlileg. Blóðstatus, urea, sykur, electrolytar, calcium, fosfor, þvagsýra og helstu lifrarpróf reyndust öll eðlileg. 1 þvagi fannst eggjahvíta ++, fá- ein hvít blóðkorn og 100—150 rauð blóðkorn. Við röntgenrannsókn sást á yfirlitsmynd steinn i hægra nýra, en jafnframt sáust loftblöðrur svarandi til ristils, einkum sigmasvæðisins. Við bariumskoðun á ristli er útlit dæmigert fyrir loftblöðrur í ristli og ber mest á sjúkdómnum i sigmasvæðinu, en einnig upp i flexura lienalis (mynd 2). Röntgenmynd af maga og smágirni var eðlileg og sáust engin merki um loftblöðr- ur þar. Röntgenmynd af lungum var eðlileg. Gerð var ristilspeglun (Olympus fiberscope) og sást þá 20 cm frá anus fjölmörg kúlulaga æxli, sem skaga inn í lumen garnarinnar og þrengja nokkuð á stöku stað. Skoðun tekst þó vel upp í flexura lienalis og eru á nánast öllu þessu svæði innbunganir svipaðar að útliti en Figure 2. — a. Barium enema shows gas cysts at the splenic flexure. b. Close-up view. misstórar (mynd 3). Á nokkrum stöðum er grá- bláleitur blær á slimhúðarlþekjunni, en annars staðar líkjast þessi æxli veggstæðum sepum (polypum). Teknar eru biopsiur 15, 30, 40 og 50 cm frá anus og sýnir vefjarannsókn eðlilega ristilslímhúð nema stöku eosinophil frumur i stoðvef. Sjá litmynd bls. 56. Að rannsókn lokinni er gerð pyelo-lithotomia dx. Aðgerð heppnaðist vel og sjúklingur fór

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.