Læknablaðið : fylgirit - 01.08.1978, Side 70

Læknablaðið : fylgirit - 01.08.1978, Side 70
68 Þröstur Laxdal ACTINOMYCOSIS 4 tilfelli af Barnadeild Landakotsspitala Actinomycosis, eða svonefnd ígulmygla, er talin fágæt hér á landi og jafnvel svo, að ekki þykir lengur ástæða til árlegrar skráningar hennar í íslenskar heilbrigðis- skýrslur. ('•') Hér er greint frá 4 börnum, er lágu á barnadeild Landakotsspítala á árunum 1969—1976 með þennan sjúkdóm. Fyrst skulu þó rifjuð upp nokkur atriði í sambandi við sjúkdómsvald og helstu sjúkdómsmyndir. SÝKILL Sýkill sá, er langoftast veldur ígulmyglu í mönnum, er kenndur við Israel, þýskan skurðlækni, sem fyrstum tókst að sýna fram á actinomyces í mannslikamanum fyr- ir réttri öld síðan(7). Orðið actinomyces þýðir geislasveppur eða ígulsveppur og er dregið af hinum geislóttu hreiðrum (colonium) með kylfu- laga þráðendum, sem finnast í svokölluð- um brennisteinskornum (sulfur granulum). Þessi nafngift er þó nánast vandræðaleg, eftir að ljóst er orðið, að hinn Gram-já- kvæði, greinótti, þráðlaga sýkill, er mun skyldari bakterium en sveppum og er inn limaður í flokkinn actinomycetales ásamt mycobacteria, Nocardia og Streptomy- ces(5). Actinomyces israeli vex aðeins við anae- robe- eða microaerophil-skilyrði og getur verið erfiður ræktunar, einkum vegna mengunar frá öðrum bakterium. Sýkillinn er endogen hjá mönnum og finnst aðal- lega í munnholi, en einnig í tractus intesti- nalis og hefur ekki fundist lifandi utan mannslíkamans. Ekki er vitað með vissu, hvers vegna hann verður af og til sjúk- dómsvaldur (pathogen), en oft er saga um einhvers konar trauma á slímhúð, sem gef- ur sýklinum kost á loftfælnu umhverfi, svo sem í sambandi við tannlæknisaðgerð, hálskirtlatöku, aðskotahluti, botnlangatöku eða perforatio á görn. Actinomyces israeli veldur hægfara, langvinnri sýkingu, og myndar djúpar í- gerðir, sem seinna hafa tilhneigingu til fistla- og örvefsmyndana. Hinar velþekktu, gulleitu sulfur granulur, sem sjást oft i vel útgrafinni ígerð, eru ekkert annað en samantvinnuð, greinótt, mycelia hreiður. Þessi korn eru einkennandi fyrir sjúkdóm- inn, en ekki afgerandi, því þau geta fund- ist við aðrar bakteriu- og sveppasýking- ar(,!). Actinomyces sýking virðir engin vefja- mörk og étur sig gjarnan inn í nálæg líf- færi, en fjarlæg meinvörp þekkjast einnig. SJÚKDÓMSFLOKKAR Actinomycosis hefur verið skipt í 3 meg- inflokka, eftir uppruna sjúkdómsins, þ.e.a.s. cervicofacial, abdominal og thoracal acti- nomycosis. 1) Cervicofacial actinomycosis nær yfir rúmlega helming allra tilfella. Hörð, sárs- aukalaus bólga myndast yfir kjálka eða á hálsi, stækkar smám saman, stríkkar á húð og gerir hana gljáandi, rauða eða blá- leita, áður en ígerðin brestur fram og skil- ur eftir sig ganga, sem haldist geta opnir og vessandi svo vikum skiptir. Einnig getur ígerðin þrengt sér inn á við, með fistlum inn í munnhol, eða valdið osteo- myelitis á mandibula. Alla jafnan eru þess- ir sjúklingar hitalausir. 2) Abdominal actinomycosis er næstal- gengust, u.þ.b. 25% allra sjúklinga. Oft- ast myndast þá kviðarígerðir, mánuðum eftir botnlangatöku eða rof á meltingar- vegi. Hafa þær tilhneigingu til að stað- setjast sem actinomycoma, en geta átt til að breiðast til lifrar eða í gegnum dia- phragma upp í thorax. Ósjaldan er hita- hækkun, nætursviti og þyngdartap.

x

Læknablaðið : fylgirit

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.