Læknablaðið : fylgirit - 01.08.1978, Side 72
70
Telpan var sett á stranga rúmlegu, án lyfja,
og í fyrstu sáust greinileg batamerki. Hiti
lækkaði, hjartaskuggi minnkaði og núnings-
hljóð hvarf. Brátt fór þó ástand aftur versn-
andi, með hitatoppum upp i 39°, leucocytosis
í kringum 13.000, sökki um 120, og Hb. lækkun
úr 10.6 gr% niður i 8.8 gr%. Samfara minnk-
andi pericardial effusio fór nú að bera á vax-
andi pleuro-pericardial adhaesionum og pleurai
effusio. (Mynd 3).
Mynd III: — (Sj. I, — 3 mán. eftir innlögn:
Pleuropericardial fibrosis og skyggður
sinus phrenicocostalis sin).
Fig. III: — Case I, — 3 months after ad-
mission: Pleuropericardial fibrosis with
left pleural effusion.
Leit að orsakavaldi hafði ekki borið árang-
ur og hafði þá athyglin einkum beinst að
collagen sjúkdómum og hvers konar sýkingum.
Gerð var pleural ástunga og fengust 2 ml. af
strágulum vökva, sem sýndi töluvert af seg-
menteruðum leucocytum og fáeina digra, staf-
laga, Gram-positiva þræði. Þar sem bakteríu-
og svepparæktanir reyndust hins vegar nei-
lcvæðar, var helst hallast að því, að hér væri
um litarútfellingu að ræða. Veiruræktanir frá
pleural vökva voru einnig neikvæðar, svo og
frá blóði og hálsi. Eftir síendurteknar, nei-
kvæðar ræktanir var ákveðið að hefja stera-
meðferð, þar sem sjúkdómsástand fór heldur
versnandi. Voru þá 3 mánuðir liðnir frá fyrstu
komu sjúklings á deildina og aldrei borið á
einkennum frá öðrum líffærum en pericardium
og pleura. Á þessari meðferð fór ástand mjög
batnandi, þótt ennþá kæmu fárra daga hita-
toppar með 1—2ja vikna millibili.
Tveim vikum eftir upphaf sterameðferðar
fór hins vegar að bera á torkennilegum húð-
laesionum. Byrjaði þetta með rauðbláum blett-
um á stórutám beggja fóta og jarka vinstri
fótar. Stækkuðu þessir blettir á næstu dögum
og varð yfirborð þeirra smáhnökrótt, en Þykk-
ildi í húðinni umhverfis. (Mynd 4).
Sjá litmynd á bls. 72.
Skömmu seinna kom svipuð laesio á nates.
Gerð var ástunga á þessum laesionum í fimm
skipti og gulhvítur vessi sendur í smásjár-
skoðun og ræktanir. Við smásjárskoðun sást
fjöldi af hvítum blóðkornum og tvisvar svip-
aðir þræðir og fundust í pleuraexudati, en að
vísu mun fíngerðari. Ræktanir voru hins veg-
ar alltaf neikvæðar fyrir sveppum og bakteri-
um og höfðu þó sýklalyf aldrei verið gefin
frá komu sjúklings á spítalann.
Bólguhersli á nates var nú skorið i burtu i
heilu lagi. 1 sömu svæfingu var skorið dýpra
inn á laesio á jarka og komu þá i fyrsta sinn
fram dæmigerðar sulfur granulur, er sýndu
Gram-jákvæða mycelia-Þræði við Gram-litun.
Ræktanir frá báðum stöðum voru neikvæðar
sem fyrr. Vefjarannsókn á natesfleyg sýndi aft-
ur á móti miklar bólgubreytingar i Jeðurhúð,
er náðu niður í fitu. Víða voru abscessar og í
miðjum sumra þeirra mátti sjá sveppacoloniur,
sem að byggingu voru geislalaga, svöruðu að
útliti til actinomyces israeli og höfðu jákvæð-
ar sérlitanir (Mynd 5 og 5a. og 6).
Sjá litmyndir á bls. 72 og 73.
Var nú rúmt 1/2 ár liðið frá fyrstu peri-
carditis einkennum stúlkunnar og mál til kom-
ið að hefja raunhæfar aðgerðir. Um leið og
sterar voru minnkaðir, var byrjað á cryst.
penicillini 6 millj. ein. á dag í æð i 10 daga
og síðan gefið 1.2 millj. proc. penicillin á dag
í vöðva í 20 daga. Þá fékk stúlkan ofnæmis-
svörun, svo breytt var yfir í tetracyclin per
os og gefið 1 gr á dag í 25 daga til viðbótar,
þannig að meðferð vrar alls gefin í 81 vikur.
Pleural effusio hvarf skjótt og húðmeinvörp
þornuðu upp á 3 vikum og almenn líðan breytt-
ist mjög til batnaðar.
Sjúkrasaga II.
Þ.T. 8 ára drengur úr Reykjavík, var inn-
lagður á Landakotsspítala i janúar 1970 vegna
bóigu vinstra megin á hálsi, sem fyrst hafði
sést 8 dögum fyrir innlögn og stækkað frem-
ur ört, án hitahækkunar né annarra einkenna.
Fyrra heilsufar gott. Hafði farið til tannlækn-
is 3—4 vikum áður en bera tók á umræddri
bólgu og var þá dreginn úr honum skemmdur
jaxl.
Við skoðun sást og fannst ávöl fyrirferðar-
aukning neðarlega, vinstra megin á hálsi yfir
musculus sternocleidomastoideus, 2x4 cm á
stærð, með sléttu yfirborði, fremur þétt átöku,
en hreyfanleg og eymslalaus að kalla. Á næstu
5 dögum stækkaði þessi fyrirferðaraukning,
varð hnökróttari og lóðaðist bæði við húð og
undirlag. Á yfiriiggjandi húð fór einnig að bera
á örlitlum rauðum bletti, sem stækkaði upp i
1 cm í þvermál á einum sólarhring. Tennur
voru nýviðgerðar og hálskirtlar eðlilegir.
Hvergi var eitlastækkanir að finna og dreng-
urinn hélst hitalaus.
Blóðhagur var eðlilegur, að sökki undan-
teknu, sem var 40 mm/klst.
Exstirpatio á þessum tumor gekk dálítið erf-
iðlega, vegna mikilla samvaxta við umhverfi,
og varð jafnframt að taka smá hluta af musc-
ulus sternocleidomastoideus. Gulleitt graftar-