Læknablaðið : fylgirit - 01.08.1978, Qupperneq 88
86
sjám eru linsukerfin alveg aðskilin og er
það til mikilla þæginda, þar sem tveir
læknar geta þá unnið við mismunandi
stækkanir, þannig að aðstoðarlæknirinn
h.efur minni stækkun og þar með betra
heildaryfirlit. Einnig er það kostur við
þessar nýrri gerðir að hægt er að breyta
afstöðu smásjánna innbyrðis eftir þörfum.
Lýsing getur verið skástæð, öxulstæð (co-
axial) og rauflampalýsing (slit lamp). Öx-
ulstæða lýsingin er best við aðgerðir á
meðfæddu dreri (cataracta) til þess að sjá
augnbotnsendurskinið og við glákuaðgerðir
í forhólfshorni augans. Rauflampalýsingin
er mjög mikilvæg við skoðun á aðgerðar-
svæði á glæru, sérstaklega við glæru-
ígræðslu, og einnig er hún mjög þýðingar-
mikil þegar smásjá er notuð við gler-
hlaupsaðgerðir.
ÞRÓUN ÁHALDA.
Það er ekki svo ýkja langt síðan að fín-
gerðum vinnubrögðum við augnaðgerðir
voru takmörk sett af grófleika fáanlegra
áhalda. Það var ekki fyrr en í lok fjórða
áratugs þessarar aldar, með tilkomu nýrra
málmblandna, að mögulegtvar að framleiða
fíngerð áhöld, sem voru hentugri við ná-
kvæmar skurðaðgerðir á glæru. Fyrst eft-
ir að smásjáraðgerðir komu til sögunnar
var talinn kostur, að áhöldin í heild væru
sem smæst, en margir kjósa nú aftur stærri
handföng, sem fara vel í hendi, en oddur-
inn á að vera eins fíngerður og mögulegt
er, til þess að valda ekki óþarfa vefjaskaða
og til þess að skyggja ekki á við smásjár-
vinnuna. Á síðustu árum hafa komið fram
mörg endurbætt smááhöld, sem eru létt,
2. mynd: — Áhöld fyrir smásjáraðgerðir.
sterk og mött og má í því sambandi sér-
staklega nefna áhöld úr titanblöndu, sem
er álitið besta efnið (mynd 2). Einnig hafa
komið fram nýjar gerðir skurðhnífa með
demantsoddi, sem eru mjög beittir og henta
því vel.
ÞRÓUN SAUMEFNA.
Það var einnig á fjórða áratugnum, sem
byrjað var að nota fíngerða saumþræði í
glæru, í fyrstu kvenmannshár, en síðan
fíngert silki og gerviþræði. í fyrstu voru
þessi endurbættu áhöld og saumefni not-
uð við aðgerðir á glæru og reyndust vel.
Þeir saumþræðir, sem nú eru mest notaðir
og ekki eru sjálfeyðandi eru 8/0 silki (virg-
in silk) og 10/0 perlon, en helstu sjálfeyð-
andi efni eru collagenþráður og polygly-
colinsýruþráður (dexon)- Við smásjárað-
gerðir er hinn fíngerði einþátta perlonþráð-
ur bestur. Hann er mjög grannur eða 30
micron í þvermál og því vart sjáanlegur
með berum augum. Einnig þurfa nálar að
vera fíngerðar, helst ekki lengri en 4—-5
mm.
FYLGITÆKI SMÁSJÁRINNAR
í sambandi við þróun smásjáraðgerða
hafa smám saman komið fram margs kon-
ar tæki, sem eru tengd smásjánni. Má þar
nefna myndavél, kvikmyndatökuvél og lit-
sjónvarpstökuvél, sem eru gagnlegar við
kennslu. Ör þróun hefur verið í gerð vél-
knúinna áhalda til nota við aðgerðir á
fremri hluta augans. Einnig hafa verið
hönnuð vélknúin skurðtæki og önnur áhöld
fyrir glerhlaupsaðgerðir. Hannaður hefur
verið augasteinsbrjótur (phacoemulsifica-
tionstæki), sem notaður er við drerað-
gerðir. Að lokum mætti nefna skurðmæli-
sjá (metroscope), sem notuð er við sjón-
lagsbætandi skurðaðgerðir (refractive sur-
gery).
Á augndeild Landakotsspítala er aðgerð-
arsmásjá af Zeiss-gerð. Hún er fest á gólf-
stand og er með rennistækkun og raf-
stýrðri stillingu á brennivídd. Einnig er
hliðarskjár fyrir aðstoðarmann, en við-
fangslinsan er sameiginleg. Smásjáin var
ifullkcmin á sínum tíma og er ennþá góð
til margra nota. Tekin hefur verið sú
stefna af fjárhagsástæðum að endurbæta
hana með viðbótarútbúnaði í stað þess að
fá nýja. Nauðsynlegt er þó að fá innan tíð-