Læknablaðið : fylgirit - 01.08.1978, Síða 91

Læknablaðið : fylgirit - 01.08.1978, Síða 91
89 Árið 1968 lýstu Cairns og Linnér, hvor í sínu lagi, annarri og endurbættri aðgerð, sem nefndist trabeculectomia, og hefur sú aðgerð náð mikilli útbreiðslu við aðgerðir á gláku. Við þá aðgerð er gerður lítili flipi í ytri helming hvítu (mynd 5), þá er tekið úr innri hluta hvítu örlitið vefja- stykki með ,,Schlemm’s canal“ og siuvef (mynd 6) og síðan er hvítuflipinn saum- aður á sinn stað (mynd 7). Augnþrýstings- lækkun er góð eftir aðgerðina. Álitið er að aukið frárennsli á augn- vökvanum stafi af opnun inn í „Schlemm’s canal“, cyclodialysisverkun eða flæði í gegnum hvítuflipann. Upp á siðkastið hafa margir hallast að síðastnefndu skýringunni. Fyrstu árin var þessi aðgerð á tilrauna- stigi, en árið 1974 kom svo skriður á út- breiðslu hennar á Norðurlöndum. í nóv- ember 1974 var haldin ráðstefna (sympo- sium) um þetta efni á þingi Sænska augn- læknafélagsins í Stokkhólmi. Ég hafði um 7. MYND. GERT HEFUR VERIÐ UTUHÖGG OG HVÍTUFLIPINN SAUMAÐUR Á SINN STAÐ. nokkurra ára skeið haft áhuga á þessari aðgerð, sótti því þing þetta og kynnti mér í leiðinni þessar aðgerðir hjá prófessor E. Linnér á Sahlgrenska sjúkrahúsinu í Gautaborg og prófessor E. Gregersen á Rík- isspítalanum í Kaupmannahöfn. Árangur af aðgerðum þessum þótti eindregið lofa gcðu og áleit ég því rétt að hefja þessar aðgerðir hér heima. í janúar 1975 gerði ég fyrstu trabeculectomiuaðgerðirnar á Landa- kotsspítala og hef síðan notað nær ein- göngu þessa tækni við aðgerðir á gláku. í apríl 1976 tók ég saman fyrstu 20 trabe- culectomiuaðgerðir mínar og kynnti á fræðslufundi á Landakotsspítala. Of lang- ur tími er nú um liðinn til að rétt sé að birta það bráðabirgðauppgjör í heild, enda æskilegt að gera nýtt uppgjör úr efniviði þessum, sem vaxið hefur síðan. Af helstu niðurstöðum þessa bráðabirgðauppgjörs má þó nefna, að aðgerðir þessar voru allar án fylgikvilla og augnþrýstingslækkandi á- hrif voru góð. Til samanburðar hafði ég uppgjör frá Galin og fleirum í New York á efniviði, sem var 40 trabeculectomiur. Var árangur af þessum fyrstu 20 trabecul- ectomiuaðgerðum mínum fyllilega sam- bærilegur við það uppgjör. Klinisk reynsla sýnir að hefðbundnar eldri glákuaðgerðir hafa verulega fylgi- kvilla í för með sér. Trabeculectomia hefur ýmsa kosti umfram fyrri aðgerðir og eru þessir helstir: Forhólf sjaldan grunnt, minni tilhneig- ing til samvaxta (synechiae) og sjaldan æðulos (choroidal detachment), en þessir fylgikvillar voru ekki fátíðir við fyrri aðgerðir. Veitukúfur (filtration bleb) er yfirleitt lágur og þykkveggjaður. Hinsvegar eru þunnir, háir veitukúfar mjög algengir eftir fyrri aðgerðir og fylgir því aukin hætta á að gat komi á þá við hnjask og að sýking berist inn í augað. Trabeculectomiu er hægt að gera hvar sem er umhverfis glæru ef þörf krefur, þar sem veitukúfur er venjulega lágur og þykkveggjaður. Að endingu má geta þess, að það er al- mennt álit að eftir þessa nýju glákuaðgerð sé miklu minni hætta á drermyndun, en það er oft síðkominn fylgikvilli og verður því endanlegt mat á því að bíða síðari tíma. SUMMARY Microsurgery in ophthalmic surgery The use of microscope in ophthalmic surgery is described a brief historical review of its technical development and clinical use is given and modern trends in microsurgery of the eye are discussed. It is concluded that the use of the microscope has improved the results both in the treatment of traumatic lesions and in selective surgery. A new method in ophthalmic surgery, trabe- culectomy, is described, and an earlier report of the authors first consecutive twenty trabe- culectomies are reviewed. The results from those are in accordance with results reported by Galin et al. It is concluded that trabeculectomy has successfully decreased I.O. pressure with less risk of postoperative complications than the conventional glaucoma operations.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.