Læknablaðið : fylgirit - 15.12.1994, Síða 56
50
LÆKNABLAÐIÐ/FYLGIRIT 27
Bakveiki borin saman við samfallsbrot i hrygg hjá
E 71 konum 71-84 ára.
Björn Einarsson 1)3), Asbjorn Jónsson 2), Gunnar
Sigurðsson 3), Nikulás Sigfusson 1)
Rannsóknarstöð Hjartavemdar 1), Röntgendeild 2) og
Lyflækningadeild Borgarspitalans.
Tileaneur rannsóknarinnar var að kanna samband
bakveiki og samfallsbrota hjá eldri konum, og skoða líkur
á samfallsbrotum eftir því hvemig bakveikin hegðaði sér
Aðferð: í Öldrunarrannsókn Hjartavemdar vora ffá mars
1993 til ágúst 1994 skoðaðar 514 konur á aldrinum 71-84
ára, sem bjuggu utan stofhana Bakveiki var til staðar hjá
242 (47 %) kvennanna. í Röntgenmyndatöku af hrygg
fóra 128 (53 %) konur, þar sem þær vora með sögu um
samfallsbrot eða úrkólkun úr baki (55 konur), höfðu
lækkað meira en 4,0 cm í líkamshæð á 25 áram (36
konur), höfðu daglega bakverki eða minnkaða færni til
daglegra athafna (36 konur).
Niðurstöður: Fjöldi kvenna með samfallsbrot vora 69,
sem era 53 % af þeim sem í röntgenmyndatöku fóra, 28
% af þeim sem bakveikar vora, en 13 % af heildar
hópnum. Marktækt samband var á milli eigin hugmynda
kvennanna um tilvist samfallsbrota eða úrkölkunar og
Álvktun: Ekki er hægt að að leiða líkur á tilvist
samfallsbrota eða úrkölkunar í hrygg, hjá konum á
aldrinum 71-84 ára, út ffá hegðun bakverkja, minnkunar í
líkamshæð eða eigin hugmyndum þeirra um orsakir
bakveikinnar Þvi verður ekki komist hjá röntgenmynd af
hrygg vilji maður vita hvort um samfallsbrot sé að ræða
Algengi samfallsbrota er varasamt að fiillyrða um í þessari
rannsókn, þar sem skilmörk fyrir röntgenmyndatöku
reyndust ekki vera í sterku sambandi við tíðni
samfallsbrota.
röntgenmynda, þótt samband væri ffekar veikt (sensitivity
63%, specificity 26 %) Hinsvegar var ekki samband milli
tilvistar samfallsbrota og aldurs, alvarleika bakverkja,
minnkaðrar fæmi til "atferlis daglegs lífs"( ADL),
staðsetningu eða útbreyðslu bakverkja, hvað linaði
bakverkina, eða verkjalyfjanotkunar Vægt samband var á
milli tilvistar samfallsbrota og minnkaðrar iikamshæóar
(r=0,65) Úrkölkun úr hrygg var til staðar við öll
samfallsbrot >
E 72
Þróun öldrunarþjónustu á Íslandi,
fimm daga öldrunarlækningadeild.
Magna F. Birnir, Halldór Halldórsson, Antonía
Lýðsdóttir. Öldrunarsvið FSA.
Til þess að mæta þörfum vaxandi hóps aldraðra hafa
óskir um nýbreytni og fjölbreytni í öldrunarþjónustu
aukist. Þess vegna var ráðist í rannsókn á gildi 5 daga
öldrunarlækningadeildar. Rannsóknin hlaut styrk úr
Framkvæmdasjóði aldraðra. Rannsókninni var ætlaö að
prófa hvort 5 daga öldrunarlækningadeild væri fýsilegur
kostur fýrir ákveðinn hóp aldraðra og aðstandendur þeirra.
Einnig hvort tveggja eða þriggja vikna meðferð gæti aukið
lífsgæði og líkamlega fæmi þeirra einstaklinga sem þátt
tóku í rannsókninni
Tilgátur rannsakenda voru að lífsgæði og dagleg hæfni
öldrunarsjúklinga ykjust eftir meðferð á virkri 5 daga
öldrunarlækningadeild. Einnig aö lífsgæði og dagleg hæfiii
sjúklinganna verði 14 dögum eftir útskrift og 3 mánuðum
eftir útskrift í réttu hlutfalli við þau meðferðarmarkmið
sem náðust meðan á meðferð stóð.
Hér er um að ræða atferlisrannsókn (Action research).
Magn- og gæðaaðferðaffæði voru notaðar við
gagnasöfhun og úrvinnslu. Tuttugu og tveir einstaklingar
fengu meðferð sem fólst í því að farið var nákvæmlega í
gegn um líkamleg, andleg og félagsleg vandamál á
sólarhringsgrundvelli. Leitaði fagfólk lausna og
meðferðarmarkmið voru sett í samráði við sjúkling og
aðstandendur. Stuðst var við hugmyndafræði Callista Roy
innan hiúkrunar. Nottingham Health Profile (NHP)
spumingalistinn var notaður við eigið iifsgæðamat
sjúklingsins, en listi yfir athafnir daglegs lífs (ADL) var
notaður til að meta likamlega fæmi. Hjúkrunarffæðingur
heimsótti hvem einstakling tveim vikum eftir útskrift og
einnig þrem mánuðum effir útskrift. Lífsgæða- og
ADLmat fór fiam bæði skiptin.
Fimm daga deild virðist vera fysilegt meðferðarform
fýrir ákveðinn hóp aldraðra. Lífsgæði jukust hjá um það bil
þriðjungi sjúklinga, en breytingin var ekki varanleg.
Mikilvægasti þátturinn til að ná meðferðarmarkmiðum var
andlegt ástand, studdi það hugmyndaffæði Roys varðandi
áreiti, örvun og aðlögun. Lifsgæði og dagleg hæfiú
einstaklinganna voru eflir að meðferð lauk í réttu hhitfalli
við þau meðferðarmarkmið sem heilbrigðisfagfólk taldi að
náðst hefðu meðan á meðferðinni stóð. ADL listinn þjónar
vel þeim tilgangi að meta sjálfsbjargarhæfni og
útskriftarmöguleika. NHP sannaði ekki aðeins gildi sitt
sem mælitæki til að meta lífsgæði í rannsókninni heldur
einnig sem hjálpartæki við meðferð. Þeir einstaklingar sem
þátt tóku í rannsókninni 'voru áhugasamir um þjálfun og
fiæöslu, en hlutfallslega margir voru félagslega einangraðir
og einmana. Um það bil þriðjungur sjúklinganna náðu ekki
settum meðferðarmarkmiðum og fundu meira fýrir
félagslegri einangrun eflir útskrift. Þjónusta við aldraða
einstaklinga sem búa utan stofhanna á Akureyri virðist
ekki vera nægjanlega fjölbreytt eða markviss Sjúklingar,
aðstandendur og fagfólk, sem þátt tóku i rannsókninni.
voru ánægð með rekstrarformið.